TAFTI skrifaði:
Bonjour, je pense qu'il y a une erreur dans le nombre de ml pour la réalisation de la chainette du bandeau. Merci de vérifier Cordialement KT
26.05.2013 - 01:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tafti, les explications du bandeau sont juste, on crochète avec le fil en double et on monte 2 ml, et on augmente sur 2 rangs pour avoir 4 ms. Bon crochet!
27.05.2013 - 09:39
Spring in the Hair#dropsspringinthehair |
|
![]() |
![]() |
Heklað hárband með hekluðum blómum úr DROPS Cotton Viscose og heklað blóm á hárspöng úr DROPS Snow.
DROPS Extra 0-674 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fastalykkja í byrjun umferðar er alltaf skipt út fyrir 1 loftlykkju. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla saman 2 fastalykkjur, þetta er gert með því að stinga heklunálinni inn í fyrstu fastalykkju og sækja þráðinn, síðan er heklunálinni stungið inn í næstu fastalykkju og þráðurinn sóttur, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁRBAND MEÐ BLÓMI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hárbandið er heklað fram og til baka. Blómin eru hekluð í hring frá miðju og út. HÁRBAND: Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 4 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Cotton Viscose. UMFERÐ 1: Heklið 2 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni. UMFERÐ 2: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 4 fastalykkjur. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist ca 35 cm. Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Nú fækkar 4 fastalykkjur til 2 fastalykkjur með því að hekla 2 og 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju. Síðan eru 2 fastalykkjur heklaðar saman í 1 fastalykkju. Klippið frá og festið þræðina. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði í hvorum lit í DROPS Cotton Viscose (= 4 þræðir) ca 60 cm. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur. Festið annan endann í hornið á hárbandinu. Hnýtið hnút í annan endann. Gerið aðra snúru til viðbótar og festið í hina hliðina á hárbandinu. HEKLAÐ BLÓM ÚR DROPS COTTON VISCOSE Á HÁRBAND: Heklið með heklunál 4 og 2 þræði af sama lit í DROPS Cotton Viscose. Heklið 4 loftlykkjur og tengið í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja um hringinn, 3 loftlykkjur, * endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 3 loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 5 stuðlar og 1 keðjulykkja = 3 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá umferð 1, 4 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju neðst mitt í fyrsta blaði frá umferð 2, * heklið síðan 4 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í kringum næstu fastalykkju frá umferð 1, heklið síðan 4 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju neðst mitt í næsta blað frá umferð 2 *, endurtakið frá *-* þar til það eru alls 5 loftlykkjubogar, endið með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 6 loftlykkjubogar. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi. UMFERÐ 4: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar og 1 keðjulykkja = 6 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá umferð 3, 5 loftlykkjur *, heklið 1 fastalykkju neðst í kringum næstu fastalykkju frá umferð 3, 5 loftlykkjur, * endurtakið frá *-* þar til það eru alls 5 loftlykkjubogar, endið með 5 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 6 loftlykkjubogar. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi. UMFERÐ 6: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar og 1 keðjulykkja = 6 blöð. Klippið frá og festið þræðina. Heklið 1 blóm með tveimur þráðum, þ.e.a.s. 1 þráð í hvorum lit og saumið niður á hárbandið. HEKLAÐ BLÓM ÚR DROPS SNOW Á HÁRSPÖNG: Heklið með heklunál 6. Byrjið með litnum púðurbleikur DROPS Snow þannig: Heklið 4 loftlykkjur og tengið í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja um hringinn, 3 loftlykkjur, * endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 3 loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 5 stuðlar og 1 keðjulykkja = 3 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá umferð 1, 4 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju neðst mitt í fyrsta blaði frá umferð 2, * heklið síðan 4 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í kringum næstu fastalykkju frá umferð 1, heklið síðan 4 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju neðst mitt í næsta blað frá umferð 2 *, endurtakið frá *-* þar til það eru alls 5 loftlykkjubogar, endið með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 6 loftlykkjubogar. Skiptið yfir í litinn pastelbleikur. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi. UMFERÐ 4: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar og 1 keðjulykkja = 6 blöð. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá umferð 3, 5 loftlykkjur *, heklið 1 fastalykkju neðst í kringum næstu fastalykkju frá umferð 3, 5 loftlykkjur, * endurtakið frá *-* þar til það eru alls 5 loftlykkjubogar, endið með 5 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð = 6 loftlykkjubogar. Skiptið yfir í litinn ljós mosagrænn. Snúið stykkinu – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi. UMFERÐ 6: Heklið um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 keðjulykkja, 6 stuðlar og 1 keðjulykkja = 6 blöð. Þræðið blómið inn á hárspöng eða á borða. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsspringinthehair eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-674
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.