Annie skrifaði:
Bonjour, quand on fait les augmentations après le deuxième rang, doit-on laisser de l'espace entre l'épaule droite et la chaînette de l'épaule gauche ? Ou monter la chaînette de l'épaule gauche avec la dernière maille de l'épaule droite?
19.05.2013 - 04:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Annie, au 3ème rang, vous crochetez les mailles de l'épaule gauche (= 1 B dans chaque B), montez la chaînette de l'encolure dos et crochetez 1 B dans chaque B de l'épaule droite, à suivre. Bon crochet !
21.05.2013 - 08:40
Raluca skrifaði:
Hello, I cannot figure out how I should do the increases for the armholes. If I do the increases on 6 rows the armholes are asymmetric, because I start increasing for one armhole, and on the next row I increase for the other armhole. So there is a lag of one row between the increases which makes the armholes asymmetric. Is this how it is supposed to be?
08.05.2013 - 14:30DROPS Design svaraði:
Dear Raluca, you inc for the armholes at the end of each row, every row, each side so that you will have increased both sides (=RS rows as well as WS rows to have the correct number of sts). Happy crocheting!
08.05.2013 - 14:37
Gro skrifaði:
Stemmer garnmengdene her? Det er samme mengde fra nyfødt størrelse og den største barnestørrelsen...
07.05.2013 - 08:11DROPS Design svaraði:
Heisann. Garnmengden på denne modellen skal stemme. Om heklefastheten stemmer brukes det litt mer enn et nøste i de minste størrelsene og begge nøstene i de største størrelsene. mvh Drops design
10.05.2013 - 07:08
Rowena skrifaði:
Goedemiddag. Er staat bij de meeste vestjes "haak als linker voorkantkant, maar dan in spiegelbeeld". Dat lijkt mij erg lastig zonder patroon. Of kun je ook 2x de linkervoorkant haken en eentje ervan omdraaien?? Uiteraard die drie L van de knoopsgaten vervangen door een stokje. Of is dit niet mogelijk, het omdraaien van één voorpand??
02.01.2013 - 13:11DROPS Design svaraði:
Het is niet zo moeilijk als het lijkt. Je kan het zien als volgt (voorbeeld van dit patroon) Voor het rechter voorpand meerder je aan het begin van de toer (voor de hals) maar voor het linker voorpand meerder je aan het eind van de toer. Ik zou niet 2x het linker voorpand haken en dan omdraaien. Ik heb zelf duidelijk een goede/verkeerde kant als ik haak, dus de panden zouden niet gelijk worden als ik één omdraai.
05.01.2013 - 16:08Nathalie skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas comment faire les augmentation après le 4ème rang : à 5 cm, il est demandé d'augmenter de chaque côté et à tous les rangs 1x1B, 1x2B et 1x4B. Puis de continuer jusqu'à 11 cm (=1 cm après la dernière augmentation). Sauf que après les augmentations, je n'ai pas 10 cm de hauteur. Dois-je laisser des rangs sans augmentation pour arriver à 10 cm ?
19.09.2012 - 13:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Nathalie, après les augmentations, vous continuez "droit" (=sans augmenter) jusqu'à 11 cm puis vous mettez en attente et crochetez les devants. Bon crochet !
19.09.2012 - 14:43
Mina skrifaði:
Skjønner ikke ermhull økingen. Etter 7 cm skal mn starte økingen. Økingen består av 3 rader (1,2 og 4 staversøkning på hver side). Etter det skal man hekle 1 cm abeidet skal totalt måle 13 cm 13-7= 6 cm. Minus 1cm til pga den etter økingen. Da sitter igjen med 5cm som skal være det samme som de tre radene med økning. (5/3=1,66cm per rad) Og dette stemmer ikke overens med hekle fastheten. (10/12 =0,83 cm per rad)
17.06.2012 - 17:01DROPS Design svaraði:
Opskriften stemmer. Du øker slut på hver rad 3 gange i hver side = 6 rader i alt.
28.12.2012 - 11:09
Sweet Buttercup Vest#sweetbuttercupvest |
|
|
|
Heklað vesti fyrir börn í sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð er 1. stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (á við um handveg og hálsmál): Ef auka á út um fleiri en 1 stuðul eru heklaðar jafn margar loftlykkjur og fjöldi stuðla sem á að auka + 2 loftlykkjur auka í lok á umferð, snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (nú hafa verið heklaðir 2 stuðlar), heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af þeim loftlykkjum sem eftir eru. Haldið síðan áfram að hekla eins og áður. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = skiptið út þriðja stuðul frá miðju að framan með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull um þessa loftlykkju. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá öxl og niður, fyrsta hnappagatið á að vera 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir hálsmáli): STÆRÐ 1/3 MÁN: 8, 11 og 14 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 9, 12 og 15 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 9, 13 og 17 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 10, 14 og 18 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 11, 15 og 19 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og bæði framstykkin eru hekluð hvort fyrir sig ofan frá og niður að skiptingu við handveg. Stykkin eru síðan saumuð saman og fram- og bakstykki er síðan heklað til áfram fram og til baka frá miðju að framan í sólfjaðramynstri til loka. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN: Heklið 10-12-14 (16-18) LAUSAR loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 8-10-12 (14-16) stuðlar í umferð. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 2 stuðla við hnakka – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 10-12-14 (16-18) stuðlar. Snúið stykkinu. Geymið stykkið og heklið vinstri öxl að aftan alveg eins. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á vinstri öxl að aftan. Heklið síðan 10-12-14 (16-18) loftlykkjur (= miðja aftan í hnakka), heklið 1 stuðul í hvern stuðul á hægri öxl að aftan. Snúið stykki. UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju aftan í hnakka = 30-36-42 (48-54) stuðlar í umferð. Haldið áfram með stuðla á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-9) cm er aukið út í lok hverrar umferðar fyrir handveg í hvorri hlið þannig – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: 1 stuðull 1 sinni, 2 stuðlar 1 sinni og 4 stuðlar 1 sinni = 44-50-56 (62-68) stuðlar í umferð. Þegar bakstykki mælist 11-12-13 (14-15) cm (á að hafa verið heklaður 1 cm eftir síðustu útaukningu) geymið stykkið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 10-12-14 (16-18) LAUSAR loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja loftlykkju = 8-10-12 (14-16) stuðlar. Snúið stykkinu. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 2-3-2 (3-3) cm aukið út um 1 stuðul við miðju að framan fyrir hálsmál – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu í hverri umferð alls 5-5-6 (6-7) sinnum, síðan er aukið út um 6-7-7 (8-8) stuðla 1 sinni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-9) cm er aukið út fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Eftir alla útaukningu eru 26-29-32 (35-38) stuðlar í umferð. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm – passið uppá að framstykkið sé jafn langt og bakstykki. Geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. ATH! Hnappagöt eru ekki gerð í vinstra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant með smáu spori. Saumið hliðarsauma kant í kant – nú eru 96-108-120 (132-144) stuðlar í umferð. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Haldið síðan áfram að hekla fram og til baka frá miðju að framan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul jafnframt er aukið út um 8 stuðla jafnt yfir (ekki er aukið út yfir ystu 4 stuðlana í hvorri hlið við miðju að framan = kantar að framan) = 104-116-128 (140-152) stuðlar í umferð. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum (= kantur að framan), * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* þannig að það verða 30-34-38 (42-46) loftlykkjubogar og eftir eru 6 eða 7 stuðlar, heklið 2 loftlykkjur og endið með 1 stuðuli í hvern af síðustu 4 stuðlum (= kantur að framan). Snúið stykkinu. Nú eru 31-35-39 (43-47) loftlykkjubogar með 4 stuðlum í hvorri hlið fyrir kant að framan. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, hoppið yfir fyrsta loftlykkjubogann, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull í næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 2 loftlykkjubogar eru eftir, heklið 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar í næsta loftlykkjubogar, hoppið yfir síðasta loftlykkjuboga og endið með 1 stuðul í hvern af 4 stuðlum í kanti að framan = 15-17-19 (21-23) sólfjaðrir með 4 stuðla í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4: 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga í stuðlahóp), 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar til 1 stuðlahópur er eftir, 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í þessum stuðlahóp og endið með 1 stuðul í hvern af 4 stuðlum í kanti að framan. Snúið stykkinu. Endurtakið umferð 4 þar til stykkið mælist ca 18-20-23 (23-25) cm frá öxl og niðu. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* þar til 1 stuðlahópur er eftir, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í þennan stuðlahóp og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í hvern af 4 stuðlum á kanti að framan, snúið við. Endurtakið þessa umferð þar til stykkið mælist ca 23-25-28 (30-32) cm frá öxl og niður. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í lokin meðfram vinstra opi með heklunál 3,5 með Baby Merino þannig: Byrjið neðst á hægra framstykki og heklið upp meðfram kanti að framan og hálsmáli að framan: * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* upp að axlasaumi, * hoppið yfir ca 2 cm, 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar í næstu lykkju, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* meðfram hnakka og fram að næsta axlasaum, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* meðfram hálsmáli að framan og meðfram kanti að framan. HANDVEGUR: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * hoppið yfir ca 2 cm, 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar í næstu lykkju, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* í kringum allan handveginn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í byrjun á umferð. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetbuttercupvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.