Gladys skrifaði:
Hola , quisiera me puedan ayudar cómo hacer los brazos de conejo separador de páginas , Muchas gracias
12.12.2023 - 12:51DROPS Design svaraði:
Hola Gladys, la labor se trabaja sin necesidad de coser, se unen las partes mientras trabajas. Para comenzar el brazo, trabaja 4 p.b. en el borde del cuerpo, dentro del orillo en cada fila. Trabajas 4 p.b. por el lado derecho y luego 4 p.b por el lado revés (por detrás). Debería quedarte una vuelta de 8 p.b. Ahora trabajar 1 p.b en cada p.b en redondo 5cm.
17.12.2023 - 23:50
Riëtte Janssens skrifaði:
Super leuk patroon. Fijne uitleg. Is heel mooi geworden
20.09.2023 - 12:58
Beverly skrifaði:
Is there a knitted pattern for this pattern.
08.03.2013 - 20:49DROPS Design svaraði:
Dear Beverly, there is only a crocheted pattern for this bookmark, but also lot of videos to let you learn and start crochet. Happy crocheting!
09.03.2013 - 09:28
Beverly skrifaði:
Name her Easter since she is a cute little bunny for springtime.
08.03.2013 - 20:47
Bella, the Book Bunny#bellathebookbunnybookmark |
|
![]() |
![]() |
Heklað bókamerki með kanínu úr DROPS Alpaca. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-633 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umferð byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar. Snúið er við í hverri umferð með 1 loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BÓKAMERKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er höfuðið heklað og síðan er haldið áfram niður yfir búkinn. Eftir það eru leggir, fætur, hendur og eyru heklað. Allt er heklað með einum þræði og heklunál nr 2,5 HÖFUÐ: Heklið 4 loftlykkjur með litnum natur DROPS Alpaca og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 8 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 32 fastalykkjur. Síðan eru heklaðar 8 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. UMFERÐ 13: * 3 fastalykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 2 fastalykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* 8 fastalykkjur. Setjið smá vatt í höfuðið og heklið síðan opið saman að neðan með því að hekla 4 fastalykkjur í gegnum bæði lögin – ekki klippa þráðinn frá heldur haldið áfram að hekla búkinn. BÚKUR: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið til skiptis 2 umferðir í litnum natur og 2 umferðir í litnum ljós bleikur. Fyrst er hekluð 1 umferð með 2 fastalykkjum í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju en í annarri hverri umferð er aukið út um 1 fastalykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 fastalykkjur í ystu fastalykkju þar til 16 fastalykkjur eru í umferð. Haldið áfram með 20 umferðir með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Síðan er fækkað um 1 fastalykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð með því að hoppa yfir næst ystu fastalykkju þar til 10 fastalykkjur eru eftir, klippið frá þráðinn í litnum ljós bleikur og haldið áfram með litnum natur á fótum. LEGGUR: Heklið 1 fastalykkju með litnum natur í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, snúið með 1 loftlykkju og heklið fastalykkjur fram og til baka yfir 4 fastalykkjur þar til leggurinn mælist ca 10 cm , klippið þráðinn. Heklið annan legg á sama hátt yfir fyrstu 4 fastalykkjur neðst í hina hliðina á búknum. FÓTUR: Heklið 4 loftlykkjur með litnum svartur og tengið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. Haldið áfram að hekla hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til fóturinn mælist ca 3,5 cm, setjið smá vatt í fótinn og heklið saman með því að leggja hann tvöfaldan saman og hekla fastalykkjur í gegnum bæði lögin (= aftan á hæl). Heklið annað fót á sama hátt. Saumið fæturna neðst á hvorn legginn þannig að fæturnir vísa út í sitt hvora áttina. HANDLEGGUR: Heklið 4 fastalykkjur með litnum natur efst meðfram annarri hlið á búk, síðan eru heklaðar 4 fastalykkjur aftan við þær = alls 8 fastalykkjur. Haldið áfram að hekla hringinn með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til handleggurinn mælist 5 cm, klippið þráðinn. HÖND: Skiptið yfir í litinn ljós bleikur. Heklið 1 umferð með 2 fastalykkjur í hverja lykkju = 16 fastalykkjur. Síðan eru heklaðar 3 umferðir í hverja lykkju, síðan er hekluð 1 umferð þar sem allar fastalykkjur eru heklaðar saman 2 og 2. Klippið þráðinn. Setjið smá vatt í höndina, þræðið þráðarendann í kringum opið og herðið að. Heklið annan handlegg + hönd á sama hátt í hina hliðina á búknum. EYRA: Heklið 5 loftlykkjur með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum og 2 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 10 fastalykkjur. Haldið áfram hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til eyrað mælist ca 5 cm. Eftir það eru allar fastalykkjur heklaðar saman 2 og 2 = 5 fastalykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu fastalykkju og herðið að. Heklið tvö alveg eins eyru og saumið þau niður á höfuðið. ANDLIT: Saumið út augu, munn og veiðihár með litnum svartur og nef með litnum ljós bleikur. Saumið nokkur löng spor með litnum ljós bleikur neðst framan við á eyrum – sjá mynd. HÁLSKLÚTUR: Heklið 4 loftlykkjur með litnum ljós bleikur, snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 3 loftlykkjum. Snúið með 1 loftlykkju og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju upp úr þar til hálsklúturinn mælist ca 20 cm, klippið þráðinn. Hnýtið hálsklútinn í kringum hálsinn á kanínunni. Strauið stykkið létt þannig að búkurinn verði flatur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bellathebookbunnybookmark eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-633
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.