Ellen skrifaði:
Hei! Går det an å strikke denne i Big Merino? Kva pinnestr. sjal eg bruke i tilfelle?
24.01.2019 - 20:24DROPS Design svaraði:
Hei Ellen. Ja, Big Merino tilhører samme garnruppe som Paris, så garnene har i utgangspunktet samme strikkefasthet. Vær obs på at Big Merino er et ullgarn, mens Paris er 100% bomull, så plagget vil bli noe annerledes om du strikker i Big Merino. Når det kommer til pinnestørrelse må du selv justere dette slik at du oppnår den strikkefastheten som står i oppskriften. Alle strikker vi litt forskjellig, så noen kan bruke den pinnestørrelsen som står oppgitt, mens andre må gå enten opp eller ned for å få den samme strikkefastheten. God fornøyelse.
25.01.2019 - 07:40
DROPS Extra 0-618 |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa með stuttum ermum og röndum, prjónuð frá hlið frá ermi að ermi úr DROPS Paris. Stærð S – XXXL.
DROPS Extra 0-618 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Stærð S + M: * 4 umferðir í litnum bensín, 10 umferðir í litnum natur *, endurtakið frá *-*. 1 endurtekning frá *-* = 6½ cm. Stærð L + XL: * 4 umferðir í litnum bensín, 12 umferðir í litnum natur *, endurtakið frá *-*. 1 endurtekning frá *-* = 7½ cm. Stærð XXL + XXXL: 4 umferðir í litnum bensín, 14 umferðir í litnum natur *, endurtakið frá *-*. 1 endurtekning frá *-* = 8 cm. LEIÐBEININGAR RENDUR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina þá kemur það til með að hafa áhrif á staðsetningu randa, hægt er að stilla þetta af með því að prjóna nokkrar umferðir fleiri eða færri með litnum natur með jöfnu millibili. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 2 hnappagötum í hægri kanti í stroffkanti að framan ca 33-35-37-39-43-46 og 41-43-45-48-52-55 cm frá öxl og niður (e.t.v. að óskuðu máli). 1. HNAPPAGAT = fellið af 1 lykkju og fitjið upp 1 nýja lykkju yfir lykkjuna sem felld var af í næstu umferð (fallegast er að fella af í brugðinni einingu (séð frá réttu). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna fjölda lykkja er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónað er neðst á hægri ermi (stroffkanturinn er prjónaður á í lokin), aukið er út fyrir ermi í hvorri hlið, fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir fram- og bakstykki og síðan að miðju að aftan, héðan speglast stykkið. Prjónað er áfram og fellt af á fram- og bakstykki, fellt af fyrir ermi í hvorri hlið og síðan prjónað neðst á vinstri ermi á undan stroffkanti. Í lokin er stykkið saumað saman áður en prjónaður er stroffkantur meðfram opi á peysunni og neðst hringinn á báðum ermum. HÆGRI ERMI: Fitjið upp 64-68-70-72-78-80 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með litnum natur. Prjónið 3-5-5-7-7-10 umferðir sléttprjón, haldið síðan áfram í sléttprjóni og RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið þannig (fitjið upp í lok hverrar umferðar): 1 lykkja alls 8-6-4-2-1-0 sinnum og 2 lykkjur 0-2-4-6-7-8 sinnum = 80-88-94-100-108-112 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 9 cm (síðasta útaukning á nú að vera lokið) fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir fram- og bakstykki JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig (byrjið í lok umferðar frá réttu = að bakstykki) – ATH: Næstu umferðir eiga að vera prjónaðar í litnum natur og er viðbót við litinn natur í randarmynstri: Fitjið upp 72 nýjar lykkjur í lok umferðar. Snúið stykkinu. Prjónið 18 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 17 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, prjónið 36 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 35 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, prjónið 54 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 53 lykkjur slétt. Snúið stykkinu og prjónið brugðið yfir allar 152-160-166-172-180-184 lykkjur. Fitjið upp 72 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= að framstykki). Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 17 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, prjónið 36 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 35 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið 54 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 53 lykkjur brugðið og snúið stykkinu. Prjónið síðan RENDUR eins og áður fram og til baka yfir allar 224-232-238-244-252-256 lykkjur (rendur halda á fram frá þar sem þær hættu þegar nýjar lykkjur voru fitjaðar upp fyrir fram- og bakstykki) – ATH: Ystu 2 lykkjur í hvorri hlið eru nú prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 24-26-28-30-33-36 cm (nú eiga að vera prjónaðar ca 3-5-5-7-7-10 umferð í litnum natur) fellið af fyrstu 112-116-119-122-126-128 lykkjur í byrjun umferðar frá réttu að kanti að framan = 112-116-119-122-126-128 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram með rendur. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í byrjun næstu 2 umferða frá réttu = 110-114-117-120-124-126 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-32-34-37-40-43 cm (nú eiga að vera prjónaðar ca 3-5-3-6-5-8 umferðir í litnum natur). Setjið 1 merki í stykkið = miðja að aftan. Héðan speglast stykkið og HÉÐAN ER STYKKIÐ MÆLT! ( ATH: Miðju röndin að aftan (= natur) kemur til með að hafa aðra breidd en aðrar rendur í litnum natur). Prjónið síðan þannig: Prjónið 3-5-3-6-5-8 umferðir í litnum natur (eða eins margar umferðir í litnum natur eins og á undan merki), haldið síðan áfram með rendur eins og áður – ATH: Passið uppá að það séu jafn margar umferðir í hverri rönd báðum megin við merkin, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm frá merki er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða frá röngu (= að hnakka) = 112-116-119-122-126-128 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 112-116-119-122-126-128 nýjar lykkjur fyrir kant að framan á vinstra framstykki = 224-232-238-244-252-256 lykkjur. Haldið áfram með rendur eins og áður – ATH: Passið uppá að það séu jafn margar umferðir í röndum hvoru megin við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 21-23-25-28-31-34 cm frá merki (= 51-55-59-65-71-77 cm frá uppfitjunarkanti) prjónið stuttar umferðir á fram- og bakstykki JAFNFRAMT sem lykkjur á fram- og bakstykki eru felldar af þannig (byrjið í byrjun umferðar frá réttu (= framstykki) – ATH – næsta umferð er prjónuð í litnum natur eins og á hægri hlið á stykki: Prjónið 18 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 17 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, prjónið 36 lykkjur slétt, Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 35 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, prjónið 54 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 53 lykkjur brugðið. Snúið stykkin og fellið af fyrstu 72 lykkjur í umferð = 152-160-166-172-180-184 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið slétt yfir þessar lykkjur. Snúið stykkinu, prjónið 18 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 17 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, prjónið 36 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 35 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, prjónið 54 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu, lyftið 1. lykkju af prjóni, herðið á þræði og prjónið 53 lykkjur slétt. Snúið stykkinu og fellið af fyrstu 72 lykkjur í byrjun umferðar = 80-88-94-100-108-112 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið rendur eins og áður – passið uppá að rendurnar haldi áfram á sama hátt og í gagnstæðri hlið á stykki. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið í byrjun hverrar umferðar þannig: 2 lykkjur alls 0-2-4-6-7-8 sinnum og 1 lykkja alls 8-6-4-2-1-0 sinnum = 64-68-70-72-78-80 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 30-32-34-37-40-43 cm frá merki (= 60-64-68-74-80-86 cm frá uppfitjunarkanti) – leggið stykkið tvöfalt við merki í hnakka og passið uppá að hægri og vinstri hlið séu jafn langar og að það séu prjónaðar jafn margar umferðir í litnum natur og á hægri ermi á eftir síðustu rönd í litnum bensín. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Á ERMI: Prjónið upp 62-66-68-70-76-78 lykkjur neðst í kringum aðra ermina á stuttan hringprjón 4 með litnum natur. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið JAFNFRAMT sem í umferð 1 er aukið út um 14-14-16-18-16-18 lykkjur jafnt yfir = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm fellið LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið neðst í kringum hina ermina. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu: 149-153-157-165-169-173 lykkjur meðfram vinstra framstykki frá miðju aftan í hnakka að neðri kanti á hringprjón 4 með litnum natur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, stroff = 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist 3 cm. Nú er sett merki eftir 33-33-37-37-41-41 lykkjur talið út frá hnakka og niður meðfram framstykki. Haldið áfram með stroff eins og áður JAFNFRAMT er nú aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu (séð frá réttu) yfir 33-33-37-37-41-41 lykkjur = 8-8-9-9-10-10 lykkjur fleiri (þetta er gert til að koma í veg fyrir kanturinn verði stífur við hnakka). Endurtakið útaukningu þegar kantur að framan mælist 6 og 9 cm. Þegar kanturinn mælist 10 cm eru allar lykkjur felldar af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið meðfram hægra framstykki að miðju aftan í hnakka en þegar kantur að framan mælist 9 cm fellið af fyrir 2 hnappagötum - lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Saumið kanta að framan við miðju aftan í hnakka – saumið kant í kant í ysta lykkjuboga í ystu lykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-618
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.