Francine Cassedy skrifaði:
CANADA:. Dans les explications, il n'est fait mention des boutonnières que lorsque l'on atteint les instructions du devant droit, un peu trop tard pour nous le rappeler. Il serait d'ailleurs plus pratique de mentionner à quels rangs il faut les faire.
21.04.2014 - 23:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cassedy, les indications sur les emplacement des boutonnières figurent au début des explications, en cm pour plus d'exactitude. Bon tricot!
22.04.2014 - 10:17
Rosmarie skrifaði:
Hallo, habe wohl nicht auf Frage gestellt, sorry. Wiederhole deshalb: Ich stricke gerade die Hose und mir ist nicht klar, ob das Bündchen an der Taille umgeknickt gehörtund ein Gummi benötigt wird, denn wie soll die Hose sonst halten? Danke für die Antwort
10.01.2014 - 20:51DROPS Design svaraði:
Liebe Rosmarie, der obere Teil ist im Bündchenmuster gestrickt und damit elastisch.
13.01.2014 - 09:31
Lone Helboe skrifaði:
Jeg kan ikke rigtig få mit strik til at passe, omkring ærmer. På tegning skal der være 4 cm rib, 29 cm (incl ribben) og derefter ærme på 12 cm i højde. Men i opskrift står der:Rygstk: Når arb måler 27 cm lukkes de midterste 18 m af til hals og hver skulder/ærme strikkes færdig for sig. Strik 2 p til over de 45 m i hver side – luk LØST af. 2 p det giver ikke ret høje ærmer.. Eller hvordan skal jeg læse det !!
10.06.2013 - 09:51DROPS Design svaraði:
Hej Lone. Du har delt dit arbejde ved 17 cm i rygstk og forstk'er. Du strikker rygstk frem og tilbage til 27 cm og lukker af for halsen og strikker de sidste p frem og tilbage. Totalt bliver din jakke 29 cm höj hvor af aermet er ca 12 cm höjt.
11.06.2013 - 15:22
Birgitte Nielsen skrifaði:
Vil lige høre, om jeg har forstået opskriften rigtigt. Er det sådan, at de mål diagrammet viser er i cm? M.v.h. Birgitte Nielsen
02.08.2012 - 18:33DROPS Design svaraði:
Ja, det er korrekt
19.09.2012 - 11:32
DROPS Design DE skrifaði:
Liebe Bettina, die 27 cm sind die Gesamthöhe (kleinste Grösse).
29.12.2010 - 08:52
Bettina Steffen skrifaði:
Aus der Anleitung ist nicht klar, ab welchem Punkt die cm-Angaben in der Höhe zu messen sind. So steht bei der Jacke, linkes Vorderteil: Weiterstricken bis Arbeit 27cm (...) misst und danach abketten. Gemäss Diagramm sollte die Arbeit insgesamt aber 38cm messen. Da stimmt doch etwas nicht?
26.12.2010 - 18:40
Merete skrifaði:
Kjempefin, flott at der er noe friskt til gutter også!
08.11.2008 - 18:58
Alvhild skrifaði:
Denne er kjempetøff til en liten gutt. Det er bra, for det er som regel mest til jenter. Gutter må da også ha klær.
21.10.2008 - 21:01
Wind and Waves#windandwavesjacket |
|
|
|
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn úr 2 þráðum DROPS Fabel og buxum úr 1 þræði DROPS Alpaca.
DROPS Baby 18-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið upp 2. og 3. lykkju frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 5, 9, 14 og 19 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 5, 10, 15 og 20 cm. STÆRÐ 12/18 MÅN: 5, 11, 17 og 23 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 5, 11, 16, 21 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 5, 11, 17, 23 og 29 cm. Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR: Ef axlir eru ekki saumaðar saman með lykkjuspori frá réttu, heldur með leggsaum frá röngu, verður að prjóna 1 auka umferð á öxl svo það myndist kantur fyrir saum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um buxur): Fækkið lykkjum þegar 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan á hringprjón. PEYSA: Fitjið upp 104-112-124 (132-144) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 2 þráðum Fabel. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið í garðaprjóni þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 – prjónið 1 umferð í sléttprjóni með kanta að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan) = 98-106-118 (126-138) lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið eftir 27-29-32 (34-37) lykkjur inn frá hvorri hlið (= 44-48-54 (58-64) lykkjur á milli merkja á bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni og með kanta að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 44-48-54 (58-64) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í báðum hliðum fyrir ermar: 3 lykkjur 2-1-3 (1-2) sinnum, 5 lykkjur 1-2-1 (2-2) sinnum, 7 lykkjur 1-1-1 (2-2) sinnum og síðan 9-10-11 (14-16) lykkjur 1 sinni = 98-108-118 (140-156) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm fellið af miðju 16-18-18 (20-20) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið að auki 2 umferðir yfir 41-45-50 (60-68) lykkjur í hvorri hlið – fellið laust af. ATH: LESIÐ LEIÐBEININGAR. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 27-29-32 (34-37) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanti að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok umferðar í hlið eins og á bakstykki = 54-59-64 (75-83) lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm setjið fyrstu 5-6-6 (7-7) lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 41-45-50 (60-68) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm, fellið LAUST af. ATH: LESIÐ LEIÐBEININGAR! HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd – munið eftir hnappagötum. FRÁGANGUR: Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori frá réttu (eða leggsaum frá röngu). Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 52 til 65 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á prjón 4 með 2 þráðum Fabel. Prjónið 4 umferðir slétt – JAFNFRAMT eftir 1 umferð er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Fellið af með sléttu frá röngu. Saumið tölur í. STROFF: Prjónið upp 32-36-36 (40-40) lykkjur á sokkaprjón 4 með 2 þráðum Fabel yst í kringum aðra ermina. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið. Fellið af þegar stroffið mælist 5 cm. Prjónið á sama hátt yst í kringum hina ermina. Brjótið uppá ermar eftir þörf. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað á hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Byrjað er á skálmum. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið laust upp 64-68-72 (76-80) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið í hring í 8-8-9 (9-10) cm. Haldið áfram í sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 8-8-10 (12-12) lykkjur jafnt yfir = 56-60-62 (64-68) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-10-11(11-2) cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 3.-4.-5. (6.-8.) hverri umferð, alls 8 sinnum = 72-76-78 (80-84) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið innan á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að það verði auðveldara að setja skálmarnar saman á hringprjón). Fitjið upp 1 nýja lykkju hvoru megin við fald fyrir saum = 74-78-80 (82-86) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið = 68-72-74 (76-80) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið síðan hina skálmina á sama hátt. BUXUR: Setjið skálmarnar inn á sama hringprjón 2,5 = 136-144-148 (152-160) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju að framan og eitt prjónamerki við miðju að aftan. Prjónið áfram í sléttprjóni í hring – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 124-132-136 (140-148) lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-35-38 (43-50) cm er aukið út um 24-24-24 (28-28) lykkjur jafnt yfir = 148-156-160 (168-176) lykkjur. Prjónið síðan stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið í 7-7-8 (9-9) cm. Fellið síðan LAUST af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Buxurnar mælast ca 36-42-46 (52-59) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op innan á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan saman op á milli skálma. |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #windandwavesjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.