Lissi skrifaði:
Toll geworden! Danke für die supereinfache Anleitung. Muß noch zusammennähen! Oh je, das ist nicht so einfach;-).
27.11.2008 - 11:32
Jorunn Merete skrifaði:
Såg varm og god ut! Kunne tenkt meg ei slik sjølv;)
26.11.2008 - 20:00
Yvonne skrifaði:
Fantastiska mönster! När kommer dom ut i handeln?
12.11.2008 - 16:07
Drops Design skrifaði:
Jo men de 3 første forklaringer med ud og indtagninger på hver 2.p udligner hinanden. Og de 3 næste forklaringer på hver 4.p udligner hinanden. Og de 3 sidste forklaringer på hver 2.p udligner hinanden. God fornøjelse!
10.11.2008 - 10:26
Mette Marie skrifaði:
Hej. Jeg forstår ikke hvordan maskeantallet kan vedblive at være det samme på hver pind? Når jeg strikker den får jeg overskud af udtagninger, og når jeg tæller efter i opskriften virker det som om det konstant er et lille overskud af udtagninger? Hjælp?
08.11.2008 - 10:20
Janni skrifaði:
Denne ser god og varm ut,den vil jeg strikke
04.11.2008 - 22:05
Margit skrifaði:
Diese Mütze stricke ich für meinen Enkel; er liebt Mützen dieser Art: bitte Anleitung bis Größe 98/104 ausarbeiten
26.10.2008 - 00:13
Bitten skrifaði:
Sådan en har vi manglet, den vil jeg strikke mange af.
25.10.2008 - 01:05
Ulrike skrifaði:
Unheimlich suesse und schoene Muetze fuer kalte Wintertage! :-)
23.10.2008 - 11:57
Bella skrifaði:
Jättefin! har länge velat göra en sådan hjälmmössa i ett tjockare garn!!
17.10.2008 - 22:30
Pilot Cuddles#pilotcuddlesbonnet |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð húfa fyrir börn í garðaprjóni úr DROPS Snow eða DROPS Wish.
DROPS Baby 16-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út um 1 l á undan og á eftir l með prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkað er um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki þannig: Prjónið síðustu l á undan l með prjónamerki á hjálparprjón og setjið aftan við stykkið, takið 1 l óprjónaða (= l með prjónamerki), prjónið næstu l og l á hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er prjónuð fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. HÚFA: Fitjið upp 57-61-65 (67-67) l á prjóna nr 7 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, snúið við. Setjið 7 prjónamerki í stykkið (frá réttu) þannig: 1. PRJÓNAMERKI í 1 lykkju á prjóni. 2. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 11-12-13 (14-15). 3. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 21-23-25 (27-29). 4. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 29-31-33 (34-34). 5. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 37-39-41 (41-39). 6. PRJÓNAMERKI Í lykkju nr 47-50-53 (54-53). 7. PRJÓNAMERKI í síðustu lykkju á prjóni. Prjónið garðaprjón – JAFNFRAMT er aukið út og lykkjum fækkað þannig – LESIÐ LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Aukið út um 1 l Á EFTIR 1. prjónamerki í annarri hverri umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við 2. prjónamerki í annarri hverri umf. Aukið út um 1 l Á UNDAN 3. prjónamerki í annarri hverri umf. Aukið út um 1 l Á EFTIR 3. prjónamerki í 4. hverri umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við 4. prjónamerki í 4. hverri umf. Aukið út um 1 l Á UNDAN 5. prjónamerki í 4. hverri umf. Aukið út um 1 l Á EFTIR 5. prjónamerki í annarri hverri umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við 6. prjónamerki í annarri hverri umf. Aukið út um 1 l Á UNDAN 7. prjónamerki í annarri hverri umf. ATH: Passið uppá að lykkjufjöldinn verði sá sami allan tímann eftir hverja umf. Haldið áfram með útaukningu og úrtöku þar til stykkið mælist 13-15-16 (18-19) cm (mælt neðst við odd við 2. eða 6. prjónamerki). Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* JAFNFRAMT sem fellt er af. FRÁGANGUR: Bakstykki á húfu = affellingarkantur, þ.e.a.s. 2 heil horn og 2 hálf horn. Miðjan á 3 heilu hornunum á gagnstæðri hlið á stykki (= uppfitjunarkantur) nær niður á ennið að framan. Saumið húfuna saman kant í kant með 1 spori í hverja l meðfram affellingarkanti þannig: Saumið fyrsta hálfa hornið saman við helminginn á fyrsta heila horninu. Saumið síðan hinn helminginn af fyrsta hálfa horninu saman við fyrri helming af öðru heila horninu. Saumið síðan annan helminginn af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið. Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan – passið að sauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. SNÚRA: Heklið með 4 þráðum af Snow eða Wish og heklunál nr 10. Byrjið á að hekla 1 fl neðst í hornið í annarri hliðinni, heklið síðan ll í ca 20-22-24 (26-28) cm, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Endurtakið alveg eins neðst í horninu í hinni hliðinni |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pilotcuddlesbonnet eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.