Gitte skrifaði:
Kan jeg strikke denne model i Merino ekstra fine ? Målene burde vel være de samme som karisma ? Og er det ikke korrekt at jeg får en meget blødere model ?Kan ikke få omregner til at virke ! God sommer 😎
12.07.2018 - 11:58
Inés Arenas skrifaði:
Como aseguró los puntos cuando tengo que coser las mangas. Al pasar la máquina de coser por la sisa quedan bien asegurados los puntos tejidos? Tienen algún vídeo donde pueda ver como se hace? Es mi primer trabajo de este punto y como se hace circular al tener que cortar el tejido lo veo complicado. Lo he acabado y sólo me falta cogerlo, pero no me decido. Me podrian ayudar.\\\\r\\\\nMuchas gracias.\\\\r\\\\nInes
02.04.2018 - 20:46DROPS Design svaraði:
Hola Inés, puedes mirar en este vídeo como coser las mangas:
08.04.2018 - 18:46
Unni Roland skrifaði:
Finner ikke mål på brystvidde på ferdig plagg. Hva skal der være.
11.03.2016 - 10:26DROPS Design svaraði:
Hej Unni, Du tager bredden 57 (60-63) x 2 så får du brystvidden. God fornøjelse!
11.03.2016 - 10:33
Hilde skrifaði:
Klopt patroon wel? leeg vakje= licht grijs Zwart vakje= donker grijs Maar vest afbeelding is anders om!!! Wat moet ik nu breien? Heb wol besteld zo als wordt aangeven,
24.01.2015 - 23:52DROPS Design svaraði:
Hoi Hilde. Ja, je hebt gelijk, de beschrijving voor de teltekening is fout, dat moet omgekeerd. Maar dat heeft geen invloed op de hoeveelheid - die is correct. Ik heb de beschrijving van de symbolen aangepast.
26.01.2015 - 14:54
Hilde skrifaði:
Waar eindigt M1 in het telpatroon
23.01.2015 - 11:53DROPS Design svaraði:
Hoi Hilde. Als M.2 begint.
23.01.2015 - 15:53
DROPS Design skrifaði:
Det er nå rettet opp.
02.07.2008 - 15:08
Sanne Hein skrifaði:
Hej Vil lige gøre opmærksom på, at der er fejl i farveangivelserne på mønsteret. Det skal være omvendt. Mørkt felt = lys grå og lyst felt = mørk grå. Med venlige strikkehilsen Sanne
02.07.2008 - 12:15
DROPS 39-30 |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa með norsku mynstri úr DROPS Karisma. Stærð S-L.
DROPS 39-30 |
|||||||
RENDUR: Prjónið rendur með sléttprjóni þannig: * 1 lykkja ljós grár, 1 lykkja dökk grár *, endurtakið frá *-*. KANTUR: Prjónið 4 cm sléttprjón, 1 umferð brugðin (= uppábrot, héðan er nú mælt), 1 umferð sléttprjón með gráum og síðan 3,5 cm rendur. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Peysan er prjónuð á hringprjóna eftir kantinn og er klippt upp fyrir handveg og við miðju að framan í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 214 (218-228) lykkjur á hringprjóna 3 með gráum og prjónið KANT fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjóna 3, prjónið í hring JAFNFRAMT er aukið út um 5 lykkjur við miðju að framan (þessar lykkjur eru til að kippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur). Prjónið M.1 JAFNFRAMT er aukið út um 26 (34-36) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 240 (252-264) lykkjur (+ 5 lykkjur). Eftir M.1 er prjónað áfram með M.2 uppúr. Þegar stykkið mælist 35 (38-41) cm prjónið M.3 til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46 (49-51) cm er aukið út um 5 lykkjur á hvorri hlið (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur, passið uppá að 5 lykkjurnar sem klippa á upp í séu enn við miðju að framan), framstykki = 120 (126-132) lykkjur (+5lykkjur), bakstykki = 120 (126-132) lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 69 (72-75) cm fellið af miðju 30 (32-32) lykkjurnar (+5m) að framan fyrir hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fellið áfram af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 3 sinnum. Þegar stykkið mælist 72 (75-78) cm fellið af miðju 36 (38-38) lykkjurnar aftan við háls. Fellið síða af 2 lykkjur á hvorri hlið í næstu umferð við háls. Fellið af þegar stykkið mælist 74 (77-80) cm. ERMI: Fitjið upp 46 (48-50) lykkjur á sokkaprjóna 3 með gráum og prjónið KANTUR – sjá skýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, prjónið M.1 (passið uppá að fá eina mynstureiningu fyrir miðju á ermi) og aukið út um 8 (8-8) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 54 (56-58) lykkjur. Aukið síðan út mitt undir ermi: 2 lykkjur 32 (31-32) sinnum til skiptis í * 3. og 4. hverri umferð * = 118 (118-120) lykkjur. Eftir M.1 er prjónað áfram með M.2. Þegar stykkið mælist 39 (39-38) cm prjónið M.4 og síðan er prjónað til loka með gráum. Þegar stykkið mælist 49 (49-48) cm prjónið 2 cm sléttprjón með rönguna út fyrir fald yfir kant sem er klipptur á búk. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið merkiþráð niður mitt í útauknu lykkjurnar á hvorri hlið við miðju að framan. Saumið tvo sauma í saumavél hvoru megin við merkiþráðinn, 1. saumur = 1/2 lykkju frá merkiþræði, 2. saumur = 1/2 lykkju frá fyrri saum. Klippið upp fyrir handveg og upp við miðju að framan. Saumið axlasaum. Takið upp ca 130 lykkjur á hringprjón 3 með gráum meðfram vinstra framstykki, en eftir 1 cm eru prjónuð 7-8 hnappagöt jafnt yfir, 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í næstu umfer. Leggið saman kantana tvöfalda að röngu og saumið. Takið upp ca 100 lykkjur í kringum háls á hringprjóna 3 með gráum og prjónið fram og til baka þannig: 2,5 cm sléttprjón, 1 umferð sléttprjón með ljós gráum, 1 umferð brugðin með ljós gráum (= uppábrot), 2,5 cm sléttprjón með gráum. Fellið af og leggið kantinn saman tvöfalda að röngu og saumið. Saumið ermar í við búk frá réttu þannig: Saumið til skiptis 1 spor í síðustu umferð á ermi fyrir innan fald fyrir saum og 1 spor á búk á eftir saum frá saumavél. Snúið peysunni við með röngu út og saumið niður fald frá ermi yfir kant sem klipptur var í búk. Saumið tölur í. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 39-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.