Hanneke skrifaði:
Ik kan het onderscheid tussen averecht en een bolletje breien lastig zien in de telpatronen. Ik zie bovenin het patroon (onderaan het bovenste gedeelte van het telpatroon M1/M3) twee vakjes die heel duidelijk bolletjes lijken. Alle overige vakjes (zowel in M1/3 alsook M2)met een vlekje erin lijken me averechte steken. Klopt dat? Of heb ik bolletjes gemist? Als dat laatste zo is: waar zitten die dan in de telpatronen?
24.07.2022 - 15:59DROPS Design svaraði:
Dag Hanneke,
De bobbels zijn inderdaad die twee bolletjes bovenin in het telpatroon, verder zijn de stipjes allemaal averecht. Ook in M.2
16.08.2022 - 21:30
Jennifer skrifaði:
I am working on the sleeve cap of the Drops 38-2 and have a question regarding the shaping. The instructions state "Dec to shape the sleeve cap on every other row 4 sts 7 times and cast off." If I decrease 4 sts at the beginning of each row I will end up decreasing 12 sts on one side of the sleeve and 16 sts on the other side. This doesn't seem correct. Can you please confirm? Thanks!
10.11.2021 - 15:09DROPS Design svaraði:
Dear Jennifer, for shaping the sleeve cap, you should cast off on both sides. So cast off 4 stitches on the beginning of every row, 7 times (that way you will cast off at every other row on both sides). Happy Stitching!
10.11.2021 - 21:03
Jennifer skrifaði:
I am working on the sleeve cap of the Drops 38-2 (jacket with textured pattern) and the instructions are unclear to me. I am knitting back and forth on the needle. The instructions say to decrease every other row 4 stitches 7 times. Does this mean to decrease 2 stitches at both ends of the row or to decrease 4 stitches at the beginning of each row?
10.11.2021 - 02:51DROPS Design svaraði:
Dear Jenifer, cast off 4 stitches at the beginning of each row, 7 times. Happy Knitting!
10.11.2021 - 06:13
Maria Adriana Coludrovich skrifaði:
Simple and romantic
23.07.2020 - 15:20
DROPS 38-2 |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-lin með áferð. Stærð S-M-L.
DROPS 38-2 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu (1 mynsturteikning = 1 mynstureining). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. 1. umferð = rétta. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. KÚLA: Kúlan er prjónuð frá réttu. Aukið út um 3 lykkjur í 1 lykkju, prjónið 3 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur, í 4. umferð eru prjónaðar 3 lykkjur saman í 1 lykkju. HNAPPAGAT: Þegar stykkið mælist: 1 (1-1) 10 (11-11) 20 (21-21) 30 (32-32) 40 (42-43) 50 (52-54) cm fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan þannig: Prjónið 3. og 4. lykkju slétt saman og aukið út um 1 nýja lykkju yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 216 (220-228) lykkjur á hringprjón 3 með Bomull-lin og prjónið 4 cm PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í ystu 6 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan = kantur að framan, þessar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni áfram til loka. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið M.1 og aukið út 20 (32-40) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 236 (252-268) lykkjur. Prjónið áfram M.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44 (46-48) cm prjónið næstu umferð þannig: 60 (64-68) lykkjur framstykki, fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, 108 (116-124) lykkjur bakstykki, fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, 60 (64-68) lykkjur framstykki. Fram- og bakstykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 60 (64-68) lykkjur. Fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 (3-3) sinnum, 1 lykkja 2 (2-4) sinnum = 56 (56-58) lykkjur. Þegar stykkið mælist 51 (53-55) cm fellið af 6 lykkjur fyrir hálsmáli (= kantur að framan). Fellið áfram af við hálsmál í annarri hverri umferð: 1 lykkja 4 sinnum, eftir það í 3. hverri umferð: 1 lykkja 13 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54 (56-58) cm prjónið M.3 (en mynstureiningunni er snúið/niður) prjónið 2 umferðir perluprjón og 1 umferð sléttprjón, fellið af. Stykkið mælist ca 71 (73-75) cm. BAKSTYKKI: = 108 (116-124) lykkjur. Fellið af fyrir handveg og prjónið mynstur eins og á framstykki = 100 (100-104) lykkjur. Þegar stykkið mælist 68 (70-72) cm fellið af miðju 28 (28-28) lykkjur fyrir hálsmáli, fellið áfram af lykkjur við háls í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni. Fellið af eins og á framstykki. Stykkið mælist ca 71 (73-75) cm. ERMI: Fitjið upp 44 (44-44) lykkjur á sokkaprjóna 3 með Bomull-lin og prjónið 4 cm perluprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, prjónið M.1 og aukið út 14 (14-14) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 58 (58-58) lykkjur (passið uppá að það verði ein mynstureining mitt á ermi). JAFNFRAMT eftir perluprjón er aukið út mitt undir ermi: 2 lykkjur 25 (25-25) sinnum. Í stærð S: til skiptis í 3. og 4. hverri umferð og í stærð M+L: Í 4. hverri umferð = 108 (108-108) lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur). Eftir M.1 er prjónað til loka með M.2. Þegar stykkið mælist 44 (45-45) cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónið til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umferð 4 lykkjur 7 sinnum, fellið af. Stykkið mælist ca 50 (51-51) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Takið upp ca 162 lykkjur frá réttu í ystu lykkju í kringum hálsmál á hringprjóna 3 og prjónið 1,5 cm perluprjón fram og til baka, fellið af. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið nú kant með heklunál 3 neðst á fram- og bakstykki, ermum og í kringum hálsmál þannig: Heklið 1 fastalykkju * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í 1. loftlykkju, hoppið yfir 2 lykkjur (eða 3 lykkjur) og heklið 1 fastalykkju *. Saumið ermar í og tölur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 38-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.