Wencke K Langeland skrifaði:
Kan et mønster i karisma byttes ut med muskat uten å gjøre endringer i mønsteret ?
13.12.2019 - 16:31DROPS Design svaraði:
Hej Wencke, ja DROPS Karisma og Muskat tilhører samme garngruppe B så det kan du let gøre :)
17.12.2019 - 11:49
Martina Hegert skrifaði:
Hallo, wie lang muss die Nadel sein, um den Pulli in einem Stück zu arbeiten? Gruß M.Hegert
28.09.2019 - 09:36DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hegert, für das Rumpfteil brauchen Sie eine 60 oder 80 cm lang Rundnadel, für die Ärmel brauchen Sie entweder nur Nadelspiel oder Nadelspiel + eine 40 cm Rundnadel. Viel Spaß beim stricken!
30.09.2019 - 08:37
Valeria skrifaði:
Magnifico !!!! Ho giusto da parte del filato in attesa di ispirazione, attendo le spiegazioni in italiano, intanto inizio con un campione. Complimenti per le splendide idee che pubblicate.
19.09.2019 - 11:04DROPS Design svaraði:
Buongiorno Valeria. Tradurremo il modello in italiano quanto prima. Buon lavoro!
19.09.2019 - 12:44
Martina Hegert skrifaði:
Hallo, ich möchte gerne diesen Pullover Stricken, aber eigentlich ist es nicht die richtige nadelstärke für die Wolle, oder? Und wenn ja, wie lang muss die Nadel denn sein? Vielen Dank für die Antwort im Voraus M. Hegert
07.05.2019 - 18:33DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hegert, die Maschenprobe ist 21 Maschen in der Breite, dh die gewöhnliche Maschenanzahl für Karisma, die Angabe der Nadelstärke ist nur eine Orientierungshilfe, und kann je nach jeder gewechselt, wichtig ist die Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe (hier = 36 R im Muster) zu haben. Viel Spaß beim stricken!
08.05.2019 - 07:23Lada skrifaði:
Such a beautiful garment! Indeed some things are forever.
18.12.2016 - 09:38
DROPS 43-6 |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa með áferðamynstri fyrir dömur og herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað neðan frá og upp.
DROPS 43-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig frá handvegi. Í lokin eru ermar saumaðar við handveg og hálsmál prjónað í hring á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Lykkjufjöldi í () = Herrastærð. Fitjið upp 188-192-200 (200-208) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Karisma og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið MYNSTUR – sjá mynsturteikningu og aukið út um 52-60-64 (64-68) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 240-252-264 (264-276) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-37-38 (40-42) cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur fyrir handveg, 116-122-128 (128-134) lykkjur á framstykki, fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, 116-122-128 (128-134) lykkjur á bakstykki, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg. Fram- og bakstykkið er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 116-122-128 (128-134) lykkjur. Fækkið lykkjum fyrir handveg í 2. hverri umferð: 2 lykkjur 2-2-2 (2-3) sinnum, 1 lykkja 2-2-3 (3-2) sinnum = 104-110-114 (114-118) lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-55-57 (60-63) cm fellið af miðju 16-18-18 (24-26) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið af lykkjur við hálsmál í 2. hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum, 1 lykkja 3 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64 (67-70) cm. BAKSTYKKI: = 116-122-128 (128-134) lykkjur. Fellið af fyrir handvegi eins og á framstykki = 104-110-114 (114-118) lykkjur. Þegar stykkið mælist 58-60-62 (65-68) cm fellið af miðju 36-38-38 (44-46) lykkjur fyrir hálsmáli. Eftir það eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64 (67-70) cm. ERMI: Fitjið upp 52-52-52 (56-56) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Karisma og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5, prjónið MYNSTUR- sjá mynsturteikningu (passið uppá að það sé ein mynstureining mitt á ermi) og aukið út um 2-2-2 (0-2) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 54-54-54 (56-58) lykkjur. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 26-26-28 (29-30) sinnum í dömustærð S+M og herrastærð S/M: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð og í dömustærð L og herrastærð M/L: Í 5. hverri umferð = 106-106-110 (114-118) lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-48-48 (52-53) cm fellið af 4 lykkjur mitt undir ermi og prjónið til loka fram og til baka. Fellið nú af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í 2. hverri umferð: 4 lykkjur 8 sinnum. Fellið af. Stykkið mælist nú 53-53-53 (57-58) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið ermar í. HÁLSMÁL: Takið upp ca 100-106 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 2,5 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm, fellið af. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 43-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.