Tina Braunstein skrifaði:
Hej Drops Sikke mange flotte opskrifter, I har på strømper. Jeg har ikke prøvet at strikke strømper før og jeg kan se, at der er mange forskellige muligheder for hæle, skafter mv. Jeg ønsker et par strømper, som sidder rigtigt godt på foden, og som ikke falder ned. Kan I hjælpe med, hvordan jeg finder rundt i, hvilke(n) opskrift(er), der er bedst? De må selvfølgelig også gerne se pæne ud, men god pasform er det vigtigste for mig. Mange tak for hjælpen! :-)
08.01.2026 - 08:14DROPS Design svaraði:
Hei Tina. Ja, vi har mange flott oppskrifter på strømper. Er veldig vanskelig å finne den beste sokken for akkurrat din fot, så bruk vår søkemotor og scroll deg igjennom det utvalget vi har. En sokk med vrangbord sitter alltid godt og en som har en bestmorhæl er alltid populær. Lykke til. mvh DROPS Design
26.01.2026 - 10:08
Simona skrifaði:
Hi! I would like to knit a toe up sock with diamond heel. Could you advise at which length should I start increase stitches on the heel? Thank you.
10.12.2025 - 19:24DROPS Design svaraði:
Dear Simona, we can provide such a precise assistance, but you can contact your favourite DROPS Store for further help. Happy knitting!
11.12.2025 - 08:15
Barbara skrifaði:
Er staan twee hoogtes op de foto bij deze sokken. In de beschrijving vind ik 1 lengte vanaf boven tot de hiel terug. Bij welke hoort deze beschrijving en wat is de lengte van de andere? Ik wil van beide hoogtes een paar breien. Bedankt alvast voor de extra info!
10.12.2025 - 10:03DROPS Design svaraði:
Dag Barbara,
Het lijkt inderdaad zo op de foto's dat er twee lengtes zijn, maar dit is optisch bedrog. Er is dus slechts 1 lengte.
10.12.2025 - 16:02
Twinkle Twist Socks#twinkletwistsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar í DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffi og demantshæl. Stærð 35 – 43.
DROPS 261-67 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá legg og niður að tá. Til að rýma fyrir hælnum eru lykkjur auknar út fyrir hælinn á meðan prjónað er niður á við. Þegar hælinn hefur náð tilgreindri breidd og lengd er lykkjum fækkað fyrir hæl á meðan prjónað er að tá. Útaukningin og úrtakan gefa hælnum tígullaga / demantslaga lögun. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fiesta. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6-7-8 cm. Prjónið síðan í sléttprjóni með sokkaprjóna 3, JAFNFRAMT sem í þessari umferð er fækkað um 14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 46-48-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-14-15 cm. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Nú á að auka út lykkjur fyrir hæl hvoru megin við 7-9-9 lykkjur fyrir miðju undir fæti. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð – látið þetta merki fylgja með áfram í stykkinu (= miðja undir fæti). ÚTAUKNING 1: Prjónið þar til 3-4-4 lykkjur eru eftir á undan lykkju merki og notið vinstri prjóninn til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn, prjónið 7-9-9 lykkjur sléttprjóni (miðjulykkjan af þessum lykkjum er lykkja með merki) notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn, prjónið slétt út umferðina (að lykkju með merki = miðja undir fæti). Næsta umferð: Prjónið stroffprjón og sléttprjón þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki – nú á að auka aftur út eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING 2: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og prjónað er slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn, prjónið 9-11-11 lykkjur slétt (miðjulykkjan af þessum lykkjum er lykkja með merki) notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og prjónað er slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn, prjónið slétt út umferðina (að lykkju með merki = miðja undir fæti). ÁFRAM ÚTAUKNING: Aukið út í annarri hverri umferð eins og útskýrt er að ofan alls 7-7-7 sinnum, það verða 2 lykkjur fleiri fyrir miðju undir fæti í hvert skipti sem aukið er út = 60-62-66 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, endið fyrir miðju undir fæti. Setjið 1 mæli-merki fyrir miðju í hællykkjurnar í þessari umferð – mikilvægt – mæli-merkið er notað til að mæla lengd fótar frá, þ.e.a.s. þetta merki á ekki að fylgja áfram með í stykkinu. ÚRTAKA 1: Nú á að fækka lykkjum fyrir hæl undir fæti. Næsta umferð: Prjónið þar til eftir eru 11-12-12 lykkjur á undan lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 19-21-21 lykkjur slétt (miðjulykkjan af þessum lykkjum er lykkja með merki), prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið slétt út umferðina (að lykkju með merki = miðja undir fæti). Næsta umferð: Prjónið slétt, en endið þegar eftir eru 10-11-11 lykkjur á undan lykkju með merki – nú á að fækka aftur lykkjum eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA 2: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið 17-19-19 lykkjur slétt (miðjulykkjan af þessum lykkjum er lykkja með merki), prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið slétt út umferðina (að lykkju með merki = miðja undir fæti). ÁFRAM ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð eins og útskýrt var að ofan alls 11-10-10 sinnum, það verða 2 lykkjur færri á milli úrtöku fyrir miðju undir fæti í hvert skipti sem lykkjum er fækkað = 38-42-46 lykkjur. FÓTUR: Prjónið síðan þar til stykkið mælist 16-17-18½ cm frá mæli-merki á hæl, mælt undir fæti. Það eru eftir 4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 19-21-23 lykkjur ofan á fæti og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-6-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2-3 sinnum = 10-10-10 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 20-22-23½ cm frá mæli-merki á hæl, mælt undir fæti. ATH: Sokkurinn er styttri en fótmálið, þar sem hann teygist við notkun. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #twinkletwistsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-67
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.