Yveline Baudouin skrifaði:
Bonjour, J'ai fini un carré sans soucis mais une chose m'intrigue : Rg2: crocheter 2 brides autour des mailles en l’air du tour précédent. Rg3: crocheter 2 brides autour des mailles en l’air du début du tour, etc. précédent (autrement dit, dans l’espace avant le premier groupe de brides du tour précédent) etc. Quelle est la différence ? Merci ! :)
04.02.2025 - 14:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baudouin, à la fin du 2ème tour, vous crochetez le 6ème symbole autour des mailles en l'air de l'arceau du coin du tour précédent, aux tours 3 et 4, vous crochetez le 7ème symbole autour des mailles en l'air du début du tour mais aussi entre les 2 groupes de brides (le dernier que vous venez de faire et le1er groupe de brides au début du tour). Bon crochet!
04.02.2025 - 15:35
Sleeve It to Love#dropssleeveittolove |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað hulstur fyrir spjaldtölvu og lesbretti úr DROPS Safran. Stykkið er heklað í ömmuferningum. Þema: Valentínusardagur.
DROPS Extra 0-1652 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR HEKL: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit, heklið keðjulykkju í lok umferðar með nýja litnum sem skipta á yfir í. RENDUR: Uppfitjun í litnum magenta. Umferð 1 í litnum magenta. Umferð 2 í litnum bleikur. Umferð 3 og 4 í litnum marsipan. Endurtakið síðan litina í umferð 1 til 4. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning A.2 og A.3 er notuð fyrir frágang og sýna hvernig staðsetja á ferningana eftir mismunandi stærðum. A.2 á við um minnstu stærðina og A.3 á við um 3 stærstu stærðirnar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HULSTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af ömmuferningum sem eru heklaðir saman. Við frágang þá verður einn vasi og eitt lok. Í lokin eru tölur saumaðar á til að festa lokið með. FERNINGAR: Notið heklunál 2,5 og DROPS Safran. Lesið LEIÐBEININGAR HEKL, LITASKIPTI, RENDUR og MYNSTUR. Heklið eftir mynsturteikningu A.1 og rendur. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka er haldið áfram í hring á sama hátt þar til stykkið mælist ca 11-12-16-18 cm meðfram hvorri hlið, það er eftir ca 1 cm að loka máli. Skiptið yfir í litinn bleikur og heklið 1 umferð til viðbótar á sama hátt. Stykkið mælist ca 12-13-17-19 cm. Klippið og festið þræðina. Heklið alls 3-4-4-4 alveg eins ferninga. FRÁGANGUR: Notið heklunál 2,5 og litinn bleikur. Nú eru ferningarnir heklaðir saman í lengju þannig: Byrjið í miðju loftlykkju í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni niður frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið niður frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram hlið á ferningnum. Endurtakið þar til allir 3-4-4-4 ferningarnir hafa verið heklaðir saman í lengju. Stykkið mælist ca 36-52-68-76 cm. Leggið stykkið flatt með rönguna upp, brjótið lengjuna þannig að ca 12-20-24-29 cm af lengjunni liggi tvöföld (ranga á móti röngu), þetta verður vasinn sem lesbrettið eða spjaldtölvan á að liggja inn í, þeir ca 12-12-20-18 cm sem eru eftir á að vera lokið. Sjá mynsturteikningu A.2 eða A.3 sem sýna hvernig stykkið lítur út við frágang: ATH! Það er einungis í miðju stærðinni sem saumurinn á milli 2 ferninga liggur neðst á lesbrettinu / spjaldtölvunni eins og á myndinni, í hinum stærðunum þá getur saumurinn á milli ferninga verið meira sýnilegur. Notið heklunál 2,5 og litinn bleikur, byrjið neðst í brotinu í annarri hliðinni á stykkinu (sjá ör með 1 stjörnu) og heklið vasann saman í gegnum bæði lögin þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í horni á vasanum, heklið 3 loftlykkjur, * hoppið fram og heklið 1 fastalykkju á milli næsta stuðlahóps, heklið 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* þar til vasinn hefur verið festur meðfram þessari hlið (sjá ör með punkti). Nú er heklað meðfram lokinu þannig: Heklið á sama hátt, en í gegnum 1 lag fram og til baka efst í horninu. Í hverju horni er hekluð 1 fastalykkja, 4 loftlykkjur og 1 fastalykkja (= hnappagat). Haldið áfram þar til heklað hefur verið í kringum allan flipann (sjá ör með punkti í annarri hliðinni). Nú er heklað í gegnum bæði lögin þannig að vasinn verði einnig heklaður niður í þessari hlið – endið umferð með 1 keðjulykkju neðst í hulstrinu (sjá ör með 2 stjörnum). Klippið og festið þráðinn. Setjið inn lesbrettið / spjaldtölvuna í vasann og finnið rétta staðsetningu fyrir tölurnar. Saumið tölurnar og hneppið í gegnum loftlykkjubogana í horninu á lokinu. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropssleeveittolove eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1652
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.