Binding Romance#dropsbindingromance |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð bókakápa úr DROPS Safran. Stykkið er heklað í ömmuferningum. Þema: Valentínusardagur.
DROPS Extra 0-1656 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR HEKL: Ef óskað er eftir stærri eða minni bókakápu er hægt að hekla fleiri eða færri umferðir með ferningum. Fyrir hverja auka umferð kemur bókakápan til með að verða ca 4½ cm stærri og hver umferð færri kemur bókakápan til með að verða ca 4½ cm minni. UPPLÝSINGAR HEKL: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LITASAMSETNINGAR: FERNINGUR 1: Heklið 1 ferning. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum sinnep. Umferð 2 er heklað í litnum sæt orkidé. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 2: Heklið 4 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum ferskja. Umferð 2 er heklað í litnum sinnep. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 3: Heklið 4 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum ferskja. Umferð 2 er heklað í litnum magenta. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 4: Heklið 3 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum magenta. Umferð 2 er heklað í litnum ferskja. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 5: Heklið 3 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum magenta. Umferð 2 er heklað í litnum sinnep. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 6: Heklið 3 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað litnum sinnep. Umferð 2 er heklað í litnum magenta. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 7: Heklið 2 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum ferskja. Umferð 2 er heklað í litnum sæt orkidé. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 8: Heklið 2 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum sæt orkidé. Umferð 2 er heklað í litnum ferskja. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 9: Heklið 4 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum sæt orkidé. Umferð 2 er heklað í litnum magenta. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 10: Heklið 4 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum magenta. Umferð 2 er heklað í litnum sæt orkidé. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. FERNINGUR 11: Heklið 3 ferninga. Uppfitjun + umferð 1 er heklað í litnum sinnep. Umferð 2 er heklað í litnum ferskja. Umferð 3 er heklað í litnum marsipan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BÓKAKÁPA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af ömmuferningum sem heklaðir eru saman. Við frágang á stykkinu þá er heklað fóður í hvorri hlið sem heldur bókinni á sínum stað. Ef óskað er eftir stærri eða minni bókakápu – lesið LEIÐBEININGAR HEKL í útskýringu að ofan. FERNINGAR: Lesið UPPLÝSINGAR HEKL í útskýringu að ofan. Notið heklunál 2,5 og DROPS Safran og heklið ferninga eftir MYNSTUR A.1 – fjöldi ferninga og litir er útskýrt í LITASAMSETNINGAR. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir, hafa verið heklaðir alls 32 ferningar. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. FRÁGANGUR: Leggið ferningana út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2, passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp. Númer í mynsturteikningu vísa í númer sem útskýrð er í LITASAMSETNINGAR. Notið heklunál 2,5 og litinn marsipan til að hekla ferningana saman á breiddina, síðan á lengdina – sjá heklstefnu í A.2. Leggið 2 ferninga kant í kant þannig að hægt sé að hekla þá saman. Byrjið í miðju loftlykkju í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni niður frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið niður frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram hlið á ferningnum, heklið 1 loftlykkju og heklið síðan frá *-* meðfram næstu 2 ferningum á sama hátt. Heklið á þennan hátt þar til allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman. Heklið saman allar raðir á breiddina. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman á breiddina, heklið alla ferninga saman á lengdina á sama hátt, en gerið 2 loftlykkjur á milli ferninga til að stykkið verði ekki of stíft þegar heklað er saman. KANTUR: Stykkið er nú í rétthyrning með 8 ferninga á breidd og 4 ferninga á hæð. Nú er heklaður kantur að ofan og að neðan á bókakápunni (meðfram langhliðum) jafnframt því sem heklað er fóður í hvorri hlið – fóðrið er fest samtímis sem kanturinn er heklaður. Leggið stykkið með rönguna upp og brjótið niður ystu röðina með ferningum (= skammhlið) í annarri hliðinni á stykki, inn að röngu – þetta verður fóðrið sem heldur bókinni á sínum stað. Notið litinn marsipan, festið þráðinn með 1 keðjulykkju efst í hægra horni á bókakápunni á ferningunum sem liggja á móti hvor öðrum. Heklið 3 loftlykkjur, * hoppið fram og heklið 1 fastalykkju á milli næsta stuðlahóps (heklið um bæði lögin), heklið 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* þar til ferningurinn sem hefur verið brotið inn hefur verið heklaður niður að röngu, heklið 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur og heklið síðan frá *-* í næsta ferning. Haldið svona áfram þar til 2 ferningar eru eftir á langhlið. Brjótið inn ystu röðina með ferningum (= skammhlið) í hinni hliðinni á stykkinu, inn að röngu og heklið síðan í gegnum bæði lögin. Endið með 1 keðjulykkju í hornið. Endurtakið á sama hátt meðfram hinni langhliðinni. Nú er bókin sett í bókakápuna - setjið bókina í fóðrið í annarri hliðinni, brettið síðan bókina aðeins aftur og setjið bókina í fóðrið hinum megin. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsbindingromance eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1656
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.