Magda skrifaði:
Thanks for the answer, but still counting from the back - 6+12+18+24+18+12=90 so it is left 10 chain stitches for first edge, counting 3 as first double crochet, still 7 chain stitches left, is to much for the edge
08.04.2026 - 14:13DROPS Design svaraði:
Dear Magda, work the 100 chains as follows: A.1 (6 sts), A.2 (12 sts), A.3 (1 st), A.2 (18 sts), A.4 (1 st), A.2 (24 sts), A.3 (1 st), A.2 (18 sts), A.4 (1 st), A.2 (12 sts), A.5 (6 sts) = 6+12+1+18+1+24+1+18+1+12+6=100 sts. At the beg of A.1 start with 3 chains (they are not included in the 100 chains). Can this help?
09.04.2026 - 10:16
Magda skrifaði:
Another question: is the sweater is made mainly from double crochet (as stated in instructions in Polish) or treble crochet - as stated in instructionsin English?
08.04.2026 - 13:52DROPS Design svaraði:
Witaj Magdo, sweter jest przerabiany słupkami (w ang UK ‘treble crochet’, ang USA ‘double crochet’). Pozdrawiamy!
08.04.2026 - 14:00
Magda skrifaði:
For size S the number of initial chain stitches is 100. However, counting the first 3 stitches as the first double crochet, then 6 for the edge, 12 for the front, 18 for the sleeve, 24 for the back, 18 for the sleeve, 12 for the front and 6 for the edge, the total is 99, not 100, hence the difference of one chain stitch?
08.04.2026 - 13:47DROPS Design svaraði:
Hi Magda, counting the first 3 stitches as the first double crochet, then 5 for the edge (see A.1 diagram and description of symbols), 12 for the front, 18 for the sleeve, 24 for the back, 18 for the sleeve, 12 for the front and 6 for the edge, the total is 100. Happy crocheting!
08.04.2026 - 13:54
Margit skrifaði:
Hei, hvordan finner jeg diagrammene A.1-A.9?
18.03.2026 - 15:29DROPS Design svaraði:
Hei Margit, Diagrammene er på bunnen av oppskriften, etter teksten. Med vennlig hilsen, Drops Team.
19.03.2026 - 06:27
Simore Edwige skrifaði:
Parfait Comment l imprimer ?
04.01.2026 - 21:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Simore, cliquez sur la petite icône imprimante en haut à droite de la page (à droite du nom du modèle) pour lancer la page des réglages de votre imprimante. Bon tricot!
05.01.2026 - 11:10
Tahereh Ghamati skrifaði:
I am interested this site and find it very useful, please update the knitting and crocheting models .
11.09.2025 - 12:16
Susanna Cenerini Farinella skrifaði:
Posso sapere cosa vuol dire "Inserire 1 segnapunti all’inizio della riga dopo il 1° bordo"? Il bordo di cosa? Grazie mille.
26.04.2025 - 23:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Susanna, i bordi sono formati dalle 6 catenelle iniziali e finali, come riportato nelle spiegazioni. Buon lavoro!
27.04.2025 - 23:55
Gudrun skrifaði:
Er man ment til å starte runde 2 med å lage to luftmasker eller gå inn i maske 2/3 fra krok?
10.03.2025 - 20:45DROPS Design svaraði:
Hej Gudrun, jeg finder ikke hvor du er i opskriften, hvor står det at du skal starte med 2 luftmasker?
14.03.2025 - 11:59
Alex Fisher skrifaði:
Hi there, I’ve worked the pattern out so please disregard my question from the 12th.
15.02.2025 - 22:28
Alex Fisher skrifaði:
Hello, please could you clarify whether the increases in the chain space on A3 and A4 are on the sleeve side or the back side. I can’t work out my stitch count. Many thanks.
12.02.2025 - 23:07DROPS Design svaraði:
Dear Alex, the chain stitch is the raglan stitch, which doesn't belong to either side. In A.3, the stitches before the chain space belong to the front piece/back piece and the stitches after the chain space for the sleeves. According to the chart, you will have more increases for the front piece/back piece (right side of chart) than the sleeve (left side of chart). In A.4, the stitches before the chain space belong to the sleeves and the stitches after the chain space are for the front/back pieces. According to the chart, you will have more increases for the front piece/back piece (left side of chart) than the sleeve (left side of chart). Happy crochetting!
17.02.2025 - 00:49
Caramel Apple Cardigan#caramelapplecardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-38 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. UPPLÝSINGAR HEKL: Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum, þessar lykkjur koma í stað fyrsta stuðuls. Í næstu umferð er síðasti stuðull í umferð heklaður í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. 2 STUÐLAR SAMAN: Þegar útaukningu á berustykki er lokið er heklað um hvern loftlykkjuboga þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað í byrjun og lok umferðar þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= koma í stað fyrsta stuðul), heklið næstu 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gengum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, það eru 3 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul á sama hátt og heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð. Nú hefur verið fækkað um 2 lykkjur í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við fram og til baka, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar heklaðar fram og til baka, en í lok umferðar eru umferðirnar heklaðar saman til að forðast saum mitt undir ermi og ermin fái sömu áferð og afgangur af peysunni. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Lesið UPPLÝSINGAR HEKL og LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Notið DROPS Daisy og heklunál 4, heklið 100-104-108-112-116-120 loftlykkjur. Snúið stykkinu. Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir 6 loftlykkjur (= kantur að framan), A.2 yfir 12-13-14-13-14-15 loftlykkjur (= framstykki), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 18-18-18-22-22-22 loftlykkjur (= ermi), A.4 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 24-26-28-26-28-30 loftlykkjur (= bakstykki), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 18-18-18-22-22-22 loftlykkjur (= ermi), A.4 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 12-13-14-13-14-15 loftlykkjur (= framstykki) og A.5 yfir 6 loftlykkjur (= kantur að framan). Á eftir fyrstu umferð eru 104-108-112-116-120-124 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. Setjið eitt merki í byrjun umferðar innan við kant að framan við miðju að framan – stykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram fram og til baka þar til A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka. Það eru 136-140-144-148-152-156 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 26-26-26-30-30-30 stuðlar fyrir hvora ermi, 24-25-26-25-26-27 stuðlar fyrir hvort framstykki og 36-38-40-38-40-42 stuðlar fyrir bakstykki. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Nú er heklað áfram og aukið út eins og útskýrt er í A.6 yfir A.3 og A.7 yfir A.4, heklið svona alls 12-12-11-15-17-20 sinnum á hæðina, heklaðar hafa verið alls 16-16-15-19-21-23 umferðir frá byrjun á stykki. Það eru 280-284-276-328-356-396 stuðlar og 4 loftlykkjur í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 50-50-48-60-64-70 stuðlar fyrir hvora ermi, 48-49-48-55-60-67 stuðlar fyrir hvort framstykki og 84-86-84-98-108-122 stuðlar fyrir bakstykki. Nú er heklað áfram og aukið út eins og útskýrt er í A.8 yfir A.6 og A.9 yfir A.7, heklið svona alls 0-1-5-1-1-0 sinnum á hæðina. Það eru alls 280-292-316-336-364-396 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 50-52-58-62-66-70 stuðlar fyrir hvora ermi, 48-50-53-56-61-67 stuðlar fyrir hvort framstykki og 84-88-94-100-110-122 stuðlar fyrir bakstykki. Nú hafa verið heklaðar alls 16-17-20-20-22-24 umferðir frá byrjun umferðar og stykkið mælist ca 18-19-22-22-24-27 cm frá merki mitt að framan. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul, um hvern loftlykkjuboga eru heklaðir 2 STUÐLAR SAMAN – lesið útskýringu að ofan = 284-296-320-340-368-400 stuðlar. Heklið síðan með 1 stuðul í hvern stuðul og kant að framan eins og áður þar til berustykkið mælist 19-20-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið A.1/A.5 yfir 6 stuðla (= kantur að framan), heklið A.2 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðlar (= framstykki), hoppið yfir 52-54-60-64-68-72 stuðlar (= ermi), heklið 6-8-8-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.2 yfir 84-88-94-100-110-122 stuðlar (= bakstykki), hoppið yfir 52-54-60-64-68-72 stuðlar (= ermi), heklið 6-8-8-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.2 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðla (= framstykki), heklið A.1/A.5 yfir 6 stuðla (= kantur að framan). Nú er fram- og bakstykkið heklað til loka á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-204-216-236-256-284 lykkjur. Heklið A.1/A.5 yfir 6 stuðla (= kantur að framan), heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hverja af 6-8-8-12-12-14 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að næstu loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hverja af 6-8-8-12-12-14 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram þar til 6 stuðlar eru eftir, heklið A.1/A.5 yfir síðustu 6 stuðlana (= kantur að framan) = 192-204-216-236-256-284 stuðlar. Heklið svona fram og til baka þar til peysan mælist ca 47-49-51-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMAR: Ermarnar eru heklaðar til skiptist frá réttu og röngu til að áferðin verði eins og á berustykki. Stillið af að byrjað sé frá röngu ef síðasta umferð á berustykki var hekluð frá réttu eða byrjið frá réttu ef síðasta umferð á berustykki var hekluð frá röngu. Byrjið í 4-5-5-7-7-8 loftlykkju sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki – munið eftir UPPLÝSINGAR HEKL. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju, heklið 1 stuðul í hvern af 52-54-60-64-68-72 stuðlum sem hoppað var yfir á ermi og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 3-4-4-6-6-7 loftlykkjum undir ermi, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 58-62-68-76-80-86 stuðlar. Setjið merkiþráð í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Snúið stykkinu. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar áður en stykkinu er snúið við. Þegar ermin mælist ca 3 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 stuðlar færri). Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 12-11-5-3½-3½-3 cm alls 4-4-7-10-10-12 sinnum = 50-54-54-56-60-62 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 47-46-44-44-43-41 cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið DROPS Daisy og heklunál 4, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkju yst í hálsmáli í hægri kant að framan. Heklið 1 loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju frá uppfitjunarkantinum og heklið 1 fastalykkju í næstu loftlykkju, heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* í kringum allan kant í hálsmáli, endið með 1 keðjulykkju í síðustu loftlykkju í vinstri kanti að framan. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan, tölum er hneppt á milli 2 stuðla í hægri kanti að framan. Fyrsta talan er staðsett ca 2 cm frá kanti í hálsmáli, síðasta talan er staðsett ca 6-6-6-5-5-5 cm upp frá neðri kanti á peysu. Þær tölur sem eru eftir er skipt upp jafnt yfir á milli fyrstu og síðustu tölu. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelapplecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.