DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Daisy yarn
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 255-38

#caramelapplecardigan

DROPS Design: Mynstur da-024
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-850 gr litur 13, mandla

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

TÖLUR:
DROPS TALA NR 515: 6 stykki í allar stærðir.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina með heklunál nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9.

UPPLÝSINGAR HEKL:
Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum, þessar lykkjur koma í stað fyrsta stuðuls. Í næstu umferð er síðasti stuðull í umferð heklaður í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

2 STUÐLAR SAMAN:
Þegar útaukningu á berustykki er lokið er heklað um hvern loftlykkjuboga þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Lykkjum er fækkað í byrjun og lok umferðar þannig:
Heklið 3 loftlykkjur (= koma í stað fyrsta stuðul), heklið næstu 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gengum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, það eru 3 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul á sama hátt og heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð. Nú hefur verið fækkað um 2 lykkjur í umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan og heklað er ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við fram og til baka, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar heklaðar fram og til baka, en í lok umferðar eru umferðirnar heklaðar saman til að forðast saum mitt undir ermi og ermin fái sömu áferð og afgangur af peysunni. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

BERUSTYKKI:
Lesið UPPLÝSINGAR HEKL og LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan.
Notið DROPS Daisy og heklunál 4, heklið 100-104-108-112-116-120 loftlykkjur.
Snúið stykkinu.
Fyrsta umferðin er hekluð frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir 6 loftlykkjur (= kantur að framan), A.2 yfir 12-13-14-13-14-15 loftlykkjur (= framstykki), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 18-18-18-22-22-22 loftlykkjur (= ermi), A.4 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 24-26-28-26-28-30 loftlykkjur (= bakstykki), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 18-18-18-22-22-22 loftlykkjur (= ermi), A.4 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.2 yfir 12-13-14-13-14-15 loftlykkjur (= framstykki) og A.5 yfir 6 loftlykkjur (= kantur að framan).
Á eftir fyrstu umferð eru 104-108-112-116-120-124 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. Setjið eitt merki í byrjun umferðar innan við kant að framan við miðju að framan – stykkið er nú mælt héðan.
Haldið áfram fram og til baka þar til A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka. Það eru 136-140-144-148-152-156 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 26-26-26-30-30-30 stuðlar fyrir hvora ermi, 24-25-26-25-26-27 stuðlar fyrir hvort framstykki og 36-38-40-38-40-42 stuðlar fyrir bakstykki.
Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu.
Nú er heklað áfram og aukið út eins og útskýrt er í A.6 yfir A.3 og A.7 yfir A.4, heklið svona alls 12-12-11-15-17-20 sinnum á hæðina, heklaðar hafa verið alls 16-16-15-19-21-23 umferðir frá byrjun á stykki.
Það eru 280-284-276-328-356-396 stuðlar og 4 loftlykkjur í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 50-50-48-60-64-70 stuðlar fyrir hvora ermi, 48-49-48-55-60-67 stuðlar fyrir hvort framstykki og 84-86-84-98-108-122 stuðlar fyrir bakstykki.

Nú er heklað áfram og aukið út eins og útskýrt er í A.8 yfir A.6 og A.9 yfir A.7, heklið svona alls 0-1-5-1-1-0 sinnum á hæðina. Það eru alls 280-292-316-336-364-396 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 50-52-58-62-66-70 stuðlar fyrir hvora ermi, 48-50-53-56-61-67 stuðlar fyrir hvort framstykki og 84-88-94-100-110-122 stuðlar fyrir bakstykki.
Nú hafa verið heklaðar alls 16-17-20-20-22-24 umferðir frá byrjun umferðar og stykkið mælist ca 18-19-22-22-24-27 cm frá merki mitt að framan.
Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul, um hvern loftlykkjuboga eru heklaðir 2 STUÐLAR SAMAN – lesið útskýringu að ofan = 284-296-320-340-368-400 stuðlar. Heklið síðan með 1 stuðul í hvern stuðul og kant að framan eins og áður þar til berustykkið mælist 19-20-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið A.1/A.5 yfir 6 stuðla (= kantur að framan), heklið A.2 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðlar (= framstykki), hoppið yfir 52-54-60-64-68-72 stuðlar (= ermi), heklið 6-8-8-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.2 yfir 84-88-94-100-110-122 stuðlar (= bakstykki), hoppið yfir 52-54-60-64-68-72 stuðlar (= ermi), heklið 6-8-8-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.2 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðla (= framstykki), heklið A.1/A.5 yfir 6 stuðla (= kantur að framan). Nú er fram- og bakstykkið heklað til loka á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið er nú mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-204-216-236-256-284 lykkjur.
Heklið A.1/A.5 yfir 6 stuðla (= kantur að framan), heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hverja af 6-8-8-12-12-14 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að næstu loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hverja af 6-8-8-12-12-14 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram þar til 6 stuðlar eru eftir, heklið A.1/A.5 yfir síðustu 6 stuðlana (= kantur að framan) = 192-204-216-236-256-284 stuðlar.
Heklið svona fram og til baka þar til peysan mælist ca 47-49-51-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMAR:
Ermarnar eru heklaðar til skiptist frá réttu og röngu til að áferðin verði eins og á berustykki. Stillið af að byrjað sé frá röngu ef síðasta umferð á berustykki var hekluð frá réttu eða byrjið frá réttu ef síðasta umferð á berustykki var hekluð frá röngu.
Byrjið í 4-5-5-7-7-8 loftlykkju sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki – munið eftir UPPLÝSINGAR HEKL. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju, heklið 1 stuðul í hvern af 52-54-60-64-68-72 stuðlum sem hoppað var yfir á ermi og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 3-4-4-6-6-7 loftlykkjum undir ermi, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 58-62-68-76-80-86 stuðlar. Setjið merkiþráð í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Snúið stykkinu.

Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar áður en stykkinu er snúið við.
Þegar ermin mælist ca 3 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 stuðlar færri).
Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 12-11-5-3½-3½-3 cm alls 4-4-7-10-10-12 sinnum = 50-54-54-56-60-62 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 47-46-44-44-43-41 cm.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið DROPS Daisy og heklunál 4, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkju yst í hálsmáli í hægri kant að framan. Heklið 1 loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju frá uppfitjunarkantinum og heklið 1 fastalykkju í næstu loftlykkju, heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* í kringum allan kant í hálsmáli, endið með 1 keðjulykkju í síðustu loftlykkju í vinstri kanti að framan. Klippið og festið þráðinn.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan, tölum er hneppt á milli 2 stuðla í hægri kanti að framan.
Fyrsta talan er staðsett ca 2 cm frá kanti í hálsmáli, síðasta talan er staðsett ca 6-6-6-5-5-5 cm upp frá neðri kanti á peysu. Þær tölur sem eru eftir er skipt upp jafnt yfir á milli fyrstu og síðustu tölu.

Mynstur

þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð <br />
<br />
= þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, byrjið á næstu umferð

1 loftlykkja = 1 loftlykkja
3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul = 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul
1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
1 stuðull sem heklaður er um stuðulinn fyrir neðan, stingið heklunálinni inn aftan frá = 1 stuðull sem heklaður er um stuðulinn fyrir neðan, stingið heklunálinni inn aftan frá
1 stuðull um loftlykkjubogann fyrir neðan = 1 stuðull um loftlykkjubogann fyrir neðan
2 loftlykkjur (= loftlykkjubogi) = 2 loftlykkjur (= loftlykkjubogi)
Diagram for DROPS 255-38
Diagram for DROPS 255-38
Diagram for DROPS 255-38
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelapplecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Susanna Cenerini Farinella skrifaði:

Posso sapere cosa vuol dire "Inserire 1 segnapunti all’inizio della riga dopo il 1° bordo"? Il bordo di cosa? Grazie mille.

26.04.2025 - 23:25

DROPS Design svaraði:

Buonasera Susanna, i bordi sono formati dalle 6 catenelle iniziali e finali, come riportato nelle spiegazioni. Buon lavoro!

27.04.2025 - 23:55

country flag Gudrun skrifaði:

Er man ment til å starte runde 2 med å lage to luftmasker eller gå inn i maske 2/3 fra krok?

10.03.2025 - 20:45

DROPS Design svaraði:

Hej Gudrun, jeg finder ikke hvor du er i opskriften, hvor står det at du skal starte med 2 luftmasker?

14.03.2025 - 11:59

country flag Alex Fisher skrifaði:

Hi there, I’ve worked the pattern out so please disregard my question from the 12th.

15.02.2025 - 22:28

country flag Alex Fisher skrifaði:

Hello, please could you clarify whether the increases in the chain space on A3 and A4 are on the sleeve side or the back side. I can’t work out my stitch count. Many thanks.

12.02.2025 - 23:07

DROPS Design svaraði:

Dear Alex, the chain stitch is the raglan stitch, which doesn't belong to either side. In A.3, the stitches before the chain space belong to the front piece/back piece and the stitches after the chain space for the sleeves. According to the chart, you will have more increases for the front piece/back piece (right side of chart) than the sleeve (left side of chart). In A.4, the stitches before the chain space belong to the sleeves and the stitches after the chain space are for the front/back pieces. According to the chart, you will have more increases for the front piece/back piece (left side of chart) than the sleeve (left side of chart). Happy crochetting!

17.02.2025 - 00:49

country flag Danielle Guill skrifaði:

I think there is a mistake in the diagram instructions for the line with the open circle. It says '1 double crochet around treble crochet below; insert hook from the back'. There is no treble crochet noted in any of the other diagram notes. I think the diagram instruction looks like it should be a back post double/treble crochet (or relief crochet through the back of the stitch below).

11.02.2025 - 13:44

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Guill, thanks for noticing, pattern has now been updated. Happy crocheting!

12.02.2025 - 10:14

country flag Ana skrifaði:

A minha dúvida é a mesma feita por "Titti Ambrosino ", dia 20/11/2024. Há algum vídeo onde se pode ver a explicação? Obrigada

28.12.2024 - 22:40

DROPS Design svaraði:

Bom dia, Pode encontrar no separador de vídeos nas explicações do modelo (junto à foto) alguns vídeos que a ajudarão a perceber como crochetar 1 ponto à volta de outro ponto. Encontra o link directo aqui: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=11995&cid=28 Bons crochés! Bom Ano!

02.01.2025 - 10:35

country flag Valérie skrifaði:

PS: je complète mon message précédent. J'utilise la laine Drops Merino extrafine.

28.12.2024 - 11:39

DROPS Design svaraði:

Notez aussi que si vous devez crocheter plus de rangs que pour l'échantillon, vous risquez de manquer de laine, pensez à en prévoir davantage. Bon crochet!

02.01.2025 - 13:53

country flag Valérie skrifaði:

Bonjour, j'ai choisi une laine différente pour ce modèle, mais qui était recommandée comme équivalente. Mon échantillon fait 18 m (=ok) pour 11 rangs (au lieu de 9), comment faire pour adapter le patron ? si j'ajoute des rangs sur le début, le cardigan devient beaucoup trop large. Merci pour votre aide

28.12.2024 - 11:37

DROPS Design svaraði:

Bonjour Valérie, essayez de refaire un échantillon en tentant de tirer vos brides un peu moins en hauteur, ça reste la meilleure des solutions. Si vous n'y arrivez toujours pas, tant que votre largeur est bonne, suivez bien les indications, et lorsque toutes les augmentations sont terminées, continuez en brides seulement sur les 284-400 brides jusqu'à la hauteur indiquée pour votre taille. Bon crochet!

02.01.2025 - 13:52

country flag Titti Ambrosino skrifaði:

Buongiorno, non ho capito come eseguire la “maglia alta intorno alla maglia alta sotto“ per il bordo del modello Caramel Apple Cardigan. Potreste aiutarmi? Grazie

20.11.2024 - 08:50

country flag Couteau Sylvie skrifaði:

Je commence avec 116 mailles puis 120 et 4 arceaux. À chaque raglan je passe de 1 maille à 15, donc 60 pour les quatre raglans. J'obtiens donc à la fin de ces 6 rangs 172 brides au lieu des 152 prévues. Merci pour la réponse

04.11.2024 - 17:56

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Couteau, notez que les augmentations se font différemment sur les manches/dos et devants; on augmente davantage de mailles avant l'arceau de A.3/A.6 et après l'arceau de A.4/A.7 qu'après l'arceau de A.3/A.6 et avant l'arceau de A.4/A.7, votre différence vient peut-être de là. Bon crochet!

05.11.2024 - 09:21