Loretta skrifaði:
Buongiorno il diagramma A1 dopo i 10 punti ricomincia dall'inizio? Tra una nocciolina e l'altra della stessa riga ci devono essere sempre gli stessi punti anche alla fine , cosa vuol dire le tre catenelle sostituiscono il primo punto alto devo saltare il primo punto del diagramma?
01.06.2022 - 16:15DROPS Design svaraði:
Buonasera Loretta, il diagramma A.2 viene ripetuto sul giro. Durante la lavorazione di A.2, deve iniziare il giro in modo diverso a seconda della maglia di inizio: se il giro inizia con 1 catenella, deve lavorare 3 catenelle. Buon lavoro!
01.06.2022 - 21:28
Pien skrifaði:
Klopt het dat er 160 stokjes op de laatste toer zijn. Ik kom op 120 stokjes
19.03.2022 - 18:07DROPS Design svaraði:
Dag Pien,
Ja er horen 160 stokjes te zijn. In het begin, nadat je de lossen hebt gehaakt, haak je A.1 38 stokjes en A.1 en dan haak je nog eens A.1 aan de andere kant van de 38 stokjes. Je haakt dus niet heen en weer, maar in de rondte.
21.03.2022 - 07:12
Kristina skrifaði:
Hej! Vilken maska utgår A1 ( stjärnan) från? Sitter med första varvet klart, har 84 maskor och fyra luftmaskbågar. Om man tittar på bilden av väskan är det endast en luftmaskbåge i var sida på varje varv men enligt mönstret blir det fyra? Får inte ihop mönstret. Tacksam för hjälp, Med vänlig hälsning, Kristina
13.03.2022 - 22:44DROPS Design svaraði:
Hei Kristina Du ser bare halve siden av vesken og da ser du bare den ene luftmaskebuen. Du skal ha 4 luftmaskebuer, 2 i hver side, så du har heklet riktig. mvh DROPS Design
21.03.2022 - 11:40
Jo-anne Elliott skrifaði:
Can you help with the diagrams? In A.1 does it mean on the fifth round 10 double crochets are in one chain stitch? Is there a way to get a full written pattern?
13.03.2022 - 21:37DROPS Design svaraði:
Dear Jo-anne, in this round, you work 6 dc (US) or tr (UK) around the chain space (of ch2). All of our patterns are written in a single format, as they are published, usually in a mixed format between diagrams and written text. So there is no full text version of this pattern. You can read the following lesson to better understand crochet diagrams: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19 Happy crochetting!
13.03.2022 - 22:50
Mette skrifaði:
Flowets in bag
15.01.2022 - 20:58
Linda skrifaði:
Take your Dreams along
14.01.2022 - 15:04
Berry Bag#berrybag |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Hekluð taska / net úr DROPS Belle. Stykkið er heklað með kúlum og gatamynstri.
DROPS 229-2 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: ÞEGAR MYNSTUR A.1 ER HEKLAÐ, BYRJIÐ UMFERÐ OG ENDIÐ ÞANNIG: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÞEGAR MYNSTUR A.2 ER HEKLAÐ, BYRJIÐ UMFERÐ OG ENDIÐ ÞANNIG: Þegar umferðin byrjar með 1 stuðli, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Þegar umferðin byrjar með 1 loftlykkju, heklið umferðina þannig: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), 1 loftlykkja (fyrsta loftlykkjan í mynstri), heklið mynstur eins og áður þar til eftir er að hekla 1 stuðul (þessum stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkjur í byrjun á umferð) og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju (þetta er gert til að umferðin færist ekki til). ÞEGAR MYNSTUR A.3 ER HEKLAÐ, BYRJIÐ UMFERÐ OG ENDIÐ ÞANNIG: Fyrsta stuðli í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur og síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju frá fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. TASKA: Heklið 40 loftlykkjur - sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið nú báðum megin við loftlykkjuraðir þannig: Heklið A.1 í fyrstu loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja og eina af 38 loftlykkjum, A.1 í næstu loftlykkju, snúið stykkinu aðeins þannig að hægt sé að hekla áfram í hinni hliðinni þannig: Heklið A.1 í sömu loftlykkju eins og A.1 í hinni hliðinni, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 38 loftlykkjum í hinni hliðinni á loftlykkjuröðum og endið með A.1 í síðasta stuðul = 84 stuðlar og 4 loftlykkjubogar. Haldið áfram með A.1 og 1 stuðul í hvern stuðul. Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 4 stuðla jafnt yfir. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 160 stuðlar í síðustu umferð. Heklið A.2 hringinn. Endurtakið A.2a á hæðina. Þegar gatamynstrið mælist 33 cm, stillið af að endað sé með heilum hópi af kúlum (1 hópur með kúlum = 4 kúlur). Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið. AXLARÓL: Heklið 7 loftlykkjur með heklunál 4. Heklið A.3. Endurtakið A.3a á hæðina. Þegar axlarólin mælist ca 65 cm, endið fallega miðað við mynstur, heklið 1 kant í kringum axlarólina þannig (þ.e.a.s. heklað er um stuðlaumferð): Heklið 1 fastalykkju um fyrstu stuðlaumferð, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta stuðlaumferð *, heklið frá *-* yfir báðar hliðar á axlarólinni. Ef kanturinn dregst saman, er hægt að hekla fleiri loftlykkjur á milli fastalykkja. Klippið þræðina og festið. Saumið axlarólina á töskuna í hvora hlið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #berrybag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.