Hér er 4. vísbendingin fyrir Mystery Blanket CAL – með auðveldum leiðbeiningum skref fyrir skref – allir geta verið með! Þú finnur einnig 2 kennslumyndbönd neðst sem geta hjálpað þér!
Heklið 4 ll með heklunál nr 3,0 með litnum ljós turkos.
UMFERÐ 1: Heklið 1. st í 4. ll frá heklunálinni (3 fyrstu ll = 1. st).
UMFERÐ 1: Heklið 11 st í 4. ll frá heklunálinni.
UMFERÐ 1: Endið með 1 kl í 4. ll, dragið í þráðinn svo að opið dragist saman = 12 st.
UMFERÐ 2: 3 ll (= 1 st), 1 st í sama st, 2 st í hvern af næstu st alla umf = 24 st. Endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf – LESIÐ LITASKIPTI = 24 st. Klippið frá.
LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Þegar draga á þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni, skiptið um lit, dragið þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni með nýja litum.
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn turkos. 1 kl í fyrsta st, 5 ll.
UMFERÐ 3: 1 hst í 2. ll frá heklunálinni.
UMFERÐ 3: Heklið 1 hst í hverja af næstu 3 ll (= 4 hst), 1 kl í sama st.
Útskýring á allri umferð 3: Skiptið yfir í litinn turkos. * 1 kl í fyrsta/næsta st, 5 ll, 1 hst í 2. ll frá heklunálinni, 1 hst í hverja af næstu 3 ll (= 4 hst), 1 kl í sama st *, endurtakið frá *-* í hvern st hringinn alla umf og endið með 1 kl í 1. kl í umf – LESIÐ LITASKIPTI = 24 blöð. Klippið frá.
Blómið er nú tilbúið og ferningur heklaður.
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn hvítur og snúið stykkinu. Frá röngu er hekluð 1 kl í fremri lið á fyrsta st frá 2. umf á blómi.
UMFERÐ 1: 4 ll, hoppið yfir 3 st, 1 kl í fremri lið á næsta st frá 2. umf á blómi.
Útskýring á allri umferð 1: Skiptið yfir í litinn hvítur og snúið stykkinu. Frá röngu er heklað * 1 kl í fremri lið á fyrsta/næsta st frá 2. umf á blómi, 4 ll, hoppið yfir 3 st, * endurtakið frá *-* út umf og endið með 1 kl í 1. kl í umf = 6 ll-bogar.
UMFERÐ 2: Snúið stykkinu. Frá réttu er hekluð 1 kl í fyrsta ll-boga, 3 ll (= 1 st), 3 st í sama ll-boga.
UMFERÐ 2: Heklið * (2 st, 2 ll, 4 st) í næsta ll-boga, (4 st, 2 ll, 2 st) í næsta ll-boga *, 4 st í næsta ll-boga endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 32 st, 4 ll-bogar.
UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st, 4 ll-bogar.
UMFERÐ 4: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 64 st, 4 ll-bogar.
UMFERÐ 5: 1 ll (= 1 fl), hoppið yfir 1. st, heklið 1 fl í hvern st að 2 ll í hvert horn, heklið (1 fl, 1 hst, 1 fl) í hvert horn alla umf. Endið með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 72 fl og 4 hst um allan ferninginn. Klippið frá.
Bakhlið:
Nú er eitt Solsikkeblomst tilbúið, mál ca 9,5 x 9,5 cm. Festið alla enda og heklið alls 5 ferninga með blómi á sama hátt eða með litum að eigin ósk.
De las 4 pistas, es la más bonita!
19.04.2016 - 13:55