Hér er 5. vísbendingin fyrir Mystery Blanket CAL – með auðveldum leiðbeiningum skref fyrir skref – allir geta verið með! Þú finnur einnig 2 kennslumyndbönd neðst sem geta hjálpað þér!
Heklið 5 ll með heklunál nr 3,0 með bleiku.
Tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (= 1 fl), 11 fl um hringinn og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf – LESIÐ LITASKIPTI = 12 fl. Klippið frá.
LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Þegar draga á bandið í gegnum síðustu l á heklunálinni, skiptið um lit, dragið bandið í gegnum síðustu l á heklunálinni með nýja litum.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í ljós turkos. Heklið 4 ll (= 1 tbst).
UMFERÐ 2: 3 tbst í sömu l.
UMFERÐ 2: Dragið heklunálina úr lykkjunni og setjið heklunálina í gegnum 4. ll frá réttu (= 1 tbst).
Stingið síðan heklunálinni aftur í gegnum síðustu lykkjuna.
Bregðið bandi um heklunálina.
Dragið bandið í gegnum báðar l á heklunálinni (= fyrsta blómablað).
2 ll.
Heklið 4 tbst í næstu l, dragið heklunálina út lykkjunni og setjið í gegnum fyrstu (af 4 nýju) tbst og inn í síðustu lykkjuna.
Bregðið bandi um heklunálina og dragið bandið í gegnum báðar l á heklunálinni = 2 blómablöð. Heklið 2 ll.
Útskýring á allri umferð 2:
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í turkos. Heklið 4 ll (= 1 tbst), 3 tbst í sömu l, dragið heklunálina úr lykkjunni og setjið í gegnum 4. ll frá réttu (= 1. Tbst) og svo aftur í gegnum síðustu lykkjuna, bregðið bandi um heklunálina og dragið bandið í gegnum báðar l á heklunálinni (= fyrsta blómablað), * 2 ll, 4 tbst í næstu l, dragið heklunálina úr lykkjunni og setjið í gegnum fyrstu (af 4 nýju) tbst og inn í síðustu lykkjuna, bregðið bandi um heklunálina og dragið bandið í gegnum báðar l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* í hverja fl í allri umf og endið með 2 ll og 1 kl efst í fyrsta blómablaði í umf – LESIÐ LITASKIPTI = 12 blómablöð. Klippið frá.
Blómið er nú tilbúið og ferningur heklaður:
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í hvítt. Heklið 1 kl umf fyrsta ll-boga.
UMFERÐ 1: Heklið 2 ll (= 1. hst), 2 hst um sama boga, 2 hst um næsta boga, * 3 hst um næsta ll-boga, 2 ll, 3 hst um næsta ll-boga, 2 hst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og endið með 3 hst um síðasta ll-boga, 2 ll og 1 kl í 2. ll í umf = 32 hst og 4 ll-bogar.
p>UMFERÐ 2: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern hst að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 48 st, 4 ll-bogar.
UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (2 st, 2 ll, 2 st) í hvert horn alla umf og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 64 st, 4 ll-bogar.
UMFERÐ 4: 1 ll (= 1 fl), hoppið yfir 1. st, heklið 1 fl í hvern st að 2 ll-boga í hverju horni, heklið (1 fl, 1 hst, 1 fl) í hvert horn alla umf. Endið með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 72 fl og 4 hst um allan ferninginn. Klippið frá.
Baksiden:
Nú er eitt Margeritt blóm tilbúið, mál ca 9,5 x 9,5 cm.
Festið alla enda og heklið alls 5 ferninga með blómi alveg eins eða með litum að eigin ósk.
Sarah wrote:
Hejsa Kan man få en opskrift på en firkant uden blomst på? Det er mit første hækle projekt og kunne rigtig godt tænke mig at lave nogle felter uden blomster på. Men jeg er simpelthen ikke skarp nok til selv at lure mønsteret - dem jeg finder på nettet har ligesom for store huller i hjørnerne i forhold til dem der bliver lavet her.
08.06.2016 - 14:12