Í þessu DROPS myndbandi sýnum við aðeins hvernig Sand Diamond Cardigan er prjónuð. Við notum lykkjufjöldann fyrir stærð M. Við höfum nú þegar prjónað kanta að framan með i-cord kanti, prjónað 24 umferðir í mynsturteikningu A.1 og prjónað mynsturteikningu A.2, A.3 og A.4 2 sinnum á hæðina (sjá myndband hluti-1). Þegar A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina eru prjónaðar að auki 2 mynstureiningar af A.3 á milli A.2 og A.4 (= 4 mynstureiningar af A.3).
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina hefur útaukning við miðju að framan verið prjónuð til loka, nema í stærð S en þar á að auka út fyrir laskalínu í hvert skipti í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. Lestu að neðan BERUSTYKKI undir þeirri stærð sem þú prjónar og hvernig þú prjónar næstu umferð (við notum prjónamerki á milli mynstureininga til að fá betri yfirsýn). Mundu eftir HNAPPAGAT. Þegar A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina hefur öll útaukning verið gerð til loka og það eru núna 317 lykkjur á prjóni og stykkið mælist ca 27 cm frá öxl (stærð M).
Þessi peysa er prjónuð úr DROPS Daisy, en í myndbandinu notum við DROPS Cotton Merino í lit nr 30.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.
Þú finnur einnig fleiri myndbönd fyrir þessa peysu að neðan.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.