DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cloud Fluff

Prjónuð peysa með ísettum ermum án sauma úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-14
DROPS Design: Mynstur sk-074
Garnflokkur A + B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 30 umferðir (15 umferðir taldar í sléttri lykkju) á hæð með klukkuprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 8,25. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – í hring:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsátt og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina.
Endurtakið umferð 2 og 3.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og lykkjan er prjónað saman.
Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri = alls 8 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð eru prjónaðar 3 lykkjur þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið.
Prjónið síðan áfram í klukkuprjóns mynstri. ATH! Þessi prjónamerki eiga ekki að færast til, aukið síðan út í sömu lykkju. Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn á milli 1. og 2. útaukninga á hvorri öxl verður sá sami.

ÚTAUKNING-2:
Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og lykkja er prjónað brugðið saman.
FYRSTA ÚTAUKNING Á ERMAKÚPU ER PRJÓNUÐ ÞANNIG:
Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkið þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju (þ.e.a.s. lykkju á hægri prjóni), en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í fyrstu útauknu lykkjunni (= brugðin lykkja). Í næsta skipti sem aukið er út á að auka í lykkju með prjónamerki.
ÖNNUR ÚTAUKNING Á ERMAKÚPU ER PRJÓNUÐ ÞANNIG:
Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkin þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í síðustu útauknu lykkjunni (= brugðin lykkja). Í næsta skipti þegar aukið er út er aukið í lykkjuna með prjónamerki.
Í næsta skipti eru 3 lykkjurnar prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið.
Prjónið síðan áfram í klukkuprjóns mynstri.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í eitt stykki ofan frá og niður. Aukið er út fyrir öxlum og ermakúpu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 62-62-66-72-72-76 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 54-54-58-62-62-66 lykkjur.
Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki þannig (prjónamerkin eru sett í lykkjurnar, byrjun á umferð er ca mitt að aftan): Prjónið 7-7-9-9-9-11 lykkjur slétt, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið 13 lykkjur slétt, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið 11-11-13-15-15-17 lykkjur slétt, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið 13 lykkjur slétt, setjið 4. Prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið slétt yfir 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem eftir eru. Lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis er hægri öxl, lykkjur á milli 3. og 4. prjónamerkis er vinstri öxl. Það á að auka síðar í lykkjur með prjónamerki. Setjið 1 prjónamerki í stykkið í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – í hring – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur og aukið út fyrir öxl þannig:

ÖXL:
Fyrsta útaukning er gerð í 2. umferð í klukkuprjóns mynstri (lykkjur með prjónamerki eru brugðnar lykkjur). Aukið út 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6-7-8-8-9-9 sinnum = 102-110-122-126-134-138 lykkjur. Aukið út í sömu lykkju, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn á milli 1. og 2. og 3. og 4. prjónamerki verður sá sami, útauknar lykkjur eru prjónaðar á undan 1. prjónamerki, á milli 2. og 3. prjónamerki og á eftir 4. prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Stykkið mælist ca 9-10-11-11-12-12 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsmáli. Nú eru lykkjur auknar út fyrir ermakúpu þannig:

ERMAKÚPA:
Prjónið 3 umferðir eftir síðustu útaukningu á öxl.
Í næstu umferð með brugðnum lykkjum (þ.e.a.s. uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman) er aukið út fyrir ermakúpu og prjónamerkin eru færð þannig:
HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið eins og áður að lykkju með 1. prjónamerki.
HÆGRI ERMAKÚPA: 1. útaukning á hægri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= lykkjan með 1. prjónamerki = ranga) – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið 1 lykkju eins og áður (= slétt lykkja), 2. útaukning á hægri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= brugðin lykkja) (= 4 lykkjur fleiri).
FRAMSTYKKI: Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með 4. prjónamerki, takið frá 2. og 3. prjónamerki.
VINSTRI ERMAKÚPA: 1. útaukning á vinstri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= brugðin lykkja), prjónið 1 lykkju eins og áður (= slétt lykkja), 2. útaukning á vinstri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= lykkjan með 4. prjónamerki = brugðin lykkja) (= lykkjur fleiri).
HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið út umferðina eins og áður.
Nú eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið.
Aukið út 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki og færið prjónamerkin í 4. hverja umferð alls 8-9-10-10-12-13 sinnum = 166-182-202-206-230-242 lykkjur.
Prjónamerkin eru færð í ystu lykkjuna hvoru megin við hvora ermakúpu í hvert skipti sem aukið er út, þ.e.a.s. það verða 4 lykkjur fleiri á milli prjónamerkja á ermakúpu í hverri útaukningu.
Stykkið mælist ca 20-22-24-24-28-29 cm, mælt frá prjónamerki mitt að aftan.
Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni þar til stykkið mælist 24-24-25-26-29-30 cm, mælt frá prjónamerki mitt að aftan.
Nú er aukið út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri) = 174-190-210-214-238-250 lykkjur.
Prjónið 1 umferð. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig, klukkuprjón er prjónað eins og áður.
Prjónið 27-29-31-33-37-39 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 34-38-42-42-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 53-57-63-65-73-77 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 34-38-42-42-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, endið með 26-28-32-32-36-38 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 118-126-138-146-162-170 lykkjur.
Haldið áfram hringinn með klukkuprjóns mynstri. Í fyrstu umferð með klukkuprjóns mynstri eru prjónaðar 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi án þess að prjóna lykkjurnar saman með uppslætti.
Þegar stykkið mælist 25-27-28-29-28-29 cm frá skiptingu, prjónið 3 sléttar umferðir. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING.

ERMI:
Setjið 34-38-42-42-46-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-44-48-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóns mynstri. Í fyrstu umferð með klukkuprjóns mynstri eru prjónaðar 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi án þess að prjóna lykkjurnar saman með uppslætti.
Þegar stykkið mælist 30-31-31-30-28-27 cm frá skiptingu, prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Annette Ekdala wrote:

Jag är snart färdig med min tröja och är väldigt nöjd med resultatet.Jag valde ett vitt garn och nu tycker jag att det på vissa ställen ser lite smutsigt ut. Funderar på om jag ska tvätta tröjan innan jag ger bort den till den som ska ha den. Har ni något råd?

21.04.2024 - 22:06

DROPS Design answered:

Hej Annette, Ja et vitt garn bliver jo let smutsigt. Gå ind på farvekortet her på hjemmesiden og læs Tvättråd noga til det garn du har valgt :)

23.04.2024 - 14:20

country flag Anja B wrote:

Ik wil dit patroon met 1 draad Sky breien . Is dat mogelijk ?

26.02.2024 - 11:26

DROPS Design answered:

Dag Anja,

Het gaat erom dat de stekenverhouding overeenkomt met de stekenverhouding in het patroon. Wellicht moet je dan dikkere naalden gebruiken als je met 1 draad Sky wilt breien.

28.02.2024 - 20:21

country flag Anette wrote:

Jeg forstår ikke, hvordan man skal tage ud til bærestykke/skuldre. Der står, at man skal tage ud i masken med mærket (vrangmaske), men også at der skal tages ud før 1. mærke, mellem 2. og 3. mærke og efter 4. mærke. Man kan jo ikke tage ud i masken før eller efter mærket - det er jo en retmaske m omslag?\r\nMvh\r\nAnette

16.01.2024 - 19:17

DROPS Design answered:

Hej Anette, vi har lavet 2 rigtig tydelige videoer til denne model, du finder dem nederst i opskriften - husk at du kan spole, køre den langsomt og stoppe den helt :)

17.01.2024 - 13:21

country flag Hannelore wrote:

Ich möchte dieses Modell nach dieser Anleitung mit nur einer Garnsorte stricken. Welches Garn kann ich nehmen und welche Menge brauche ich?

11.09.2023 - 13:59

DROPS Design answered:

Liebe Hannelore, vielleicht können Sie mit 1 Faden der Garngruppe C mal versuchen - stricken Sie im voraus Ihre Maschenprobe, so können Sie auch mal schauen, ob Ihnen die Textur gefällt. Gerne kann Ihnen damit Ihr DROPS Händler - auch per Telefon oder per E-Mail weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

11.09.2023 - 16:08

country flag Sigrid Sørensen wrote:

Veldig synd at det ikke er presisert hvor mange masker som skal være på ermene og for- og bakstykke etter hvert parti med øking. Jeg har 12 masker for lite på bakstykket, 1 maske for mye på hvert erme og 10 masker for mye på forstykket. Jeg kan ikke se på verken oppskriften eller videoen hvordan det har blitt så feil. Hva har skjedd?

06.01.2023 - 15:44

DROPS Design answered:

Hej Sigrid, det er svært at gætte sig til hvad der er gået galt, prøv at få hjælp i butikken hvor du har købt garnet... Vi tager til os kritikken og prøver at lægge antal masker til for udtagninger fremover. :)

10.01.2023 - 11:58

country flag Merli wrote:

I have a question about the sleeve cap. I am making S size and after the 8 times increases my piece measures about 17 cm, whereas its should be 20 cm "The piece measures approx. 20-22-24-24-28-29 cm, measured from the marker mid-back." And after that it should be knitted to 24 cm. Can I just knit now to 24 cm or then everything will go out of porportion? I usually wear XS size clothes, so if the sweater would come out a little smaller, it shouldn´t be aproblem

28.10.2022 - 15:46

DROPS Design answered:

Dear Merli, yes sure you can continue working until piece measures 24 cm - just be aware that you might require more yarn if your tension is not the same. Read more here. Happy knitting!

31.10.2022 - 07:54

country flag Kasia wrote:

Witam, jak przerabiać oczka z narzutami na prawo ? Czy razem z oczkiem?

30.11.2021 - 17:35

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, chodzi o przerobienie oczka i narzutu razem na prawo? Napisz o który fragment wzoru chodzi. Pozdrawiam!

01.12.2021 - 08:31

country flag Kasia wrote:

Serdecznie dziękuję za pomoc w zrozumieniu opisu. Pozdrawiam

19.11.2021 - 14:44

country flag Kasia wrote:

Witam, proszę jeszcze o radę co zrobić w przypadku , gdy wszystkich oczek mam 176 a nie 174 czyli o 2 za dużo w rozm. X . Podzieliłam na przód, tył i rękawy nie licząc narzutów, no i zostały mi dwa oczka. Bardzo nie chciałabym pruć robótki . Nie rozumiem również polecenia aby przerobić 6 dodanych oczek pod rękawem, nie przerabiając razem oczek i narzutów? Bardzo proszę o pomoc

18.11.2021 - 20:30

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, 1. skoro musisz mieć parzystą liczbę oczek na ścieg angielski na okrągło, to podziel robótkę tak: przód i tył bez zmian, czyli po 53 oczka (106), a na rękawy zdejmij o 1 oczko (to nadplanowe) więcej. Później nabierz pod rękawem nie 6, ale 5 oczek. Nic nie będzie widać. 2. nabierasz oczka pod rękawem i przerabiasz je na prawo, dopiero od kolejnego okrążenia wykonuj ścieg angielski. Pozdrawiamy!

19.11.2021 - 08:55

country flag Kasia wrote:

Dzień dobry, Jeśli chodzi o podział robótki na tył przód i rękawy , jak liczyć oczka , bez narzutów i jak te dwa ( w sumie trzy) oczka dodane do każdego markera?

18.11.2021 - 16:48

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, jak dzielisz robótkę to liczysz oczka następująco: 1 oczko = oczko i narzut. Co do tych 2 dodanych oczek, to przerabiasz je w kolejnym okrążeniu następująco: 'W następnym okrążeniu przerobić te 3 oczka następująco: wykonać 1 narzut, zdjąć 1 oczko jak do przerobienia na lewo, przerobić narzut na prawo, wykonać 1 narzut, zdjąć 1 oczko jak do przerobienia na lewo'.> patrz DODAWANIE OCZEK. Koniecznie prześlij zdjęcia do naszej galerii :) Pozdrawiamy!

19.11.2021 - 09:03