DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

September Rose

Prjónuð peysa með öldumynstri og klauf í hliðum. Prjónuð úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-29
DROPS Design: Mynstur r-746
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ: S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 09, muskat

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
5 mynstureiningar á breidd með A.1 = 35 cm á breidd þegar stykkið hefur myndað öldur.
6 mynsturteiningar á breidd með A.1 = 42 cm á breidd þegar stykkið hefur myndað öldu.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA FYRIR ERMI:
Þegar fellt er af fyrir ermakúpu þá koma lykkjurnar í A.1 til með að færast til, þegar byrjað er að fækka lykkjum í A:1 þá eiga ystu 9 lykkjurnar í A.1 að úrtöku að prjónast í sléttprjóni og þær lykkjur sem eftir eru í A.1 eru prjónaðar í A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin. Prjónið neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp (aðeins laust) 103-113-123-136-146-158 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið mynstur frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, 6-11-16-14-19-25 lykkjur sléttprjón, A.1 alls 5-5-5-6-6-6 sinnum, 6-11-16-14-19-25 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 10 cm. Í lok næstu 2 umferða er fitjuð upp 1 ný lykkja (merkir enda á klauf) = 105-115-125-138-148-160 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú heldur mynstrið áfram frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, 9-14-19-17-22-28 lykkjur sléttprjón, A.1 alls 5-5-5-6-6-6 sinnum, 9-14-19-17-22-28 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjón. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð í hvorri hlið þannig: 3-6-8-7-9-11 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-3-3-4-4 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-3-4-5 sinnum = 87-87-91-106-106-112 lykkjur. Haldið áfram með mynstur með sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 36-38-40-41-43-45 cm setjið miðju 17-17-17-18-18-18 lykkjurnar á band fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið síðan af fyrir hálsmáli og ystu 9 lykkjur við hálsmál í hvorri hlið eru ekki prjónaðar núna í A.1 heldur eru þær prjónaðar í sléttprjóni – fellið af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni.
Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjurnar. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. Fellið af fyrir hálsmáli fyrst þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm.

ERMAR:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.
Fitjið upp (aðeins laust) 41-45-47-49-51-53 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan mynstur – fyrsta umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja i garðaprjóni, 2-4-5-6-7-8 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón, A.1, 2-4-5-6-7-8 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8-8-8-7-5-5 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 3-3-3-2-2-2 cm millibili alls 8-8-8-11-14-15 sinnum og með 4-4-2-3-3-1 cm millibili alls 3-3-5-4-2-3 sinnum = 63-67-73-79-83-89 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 45-45-44-43-41-41 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð – SJÁ ÚRTAKA FYRIR ERMI – í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-4-5-5-5-5 sinnum, 1 lykkja 1-2-3-5-7-9 sinnum og 2 lykkjur 5-5-5-5-5-5 sinnum = 17-19-19-21-21-23 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 53-54-54-54-54-55 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn á ermum og 1 kantlykkja í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum niður að klauf (saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið). Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjón.
Prjónið upp frá réttu ca 95-105 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan) á stuttan hringprjón 4.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.05.2019
Leiðrétting: DROPS Muskat litur 09, ljós brúnn
Yfirfarið á vefsvæði: 21.08.2019
Undir ERMI: Það á að prjóna sléttprjón á undan, á milli og á eftir A.1.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Annelies Rennert wrote:

Hallöchen, würde den pullover gern in Runden stricken und den fertig gestrickten Arm mit zu den Maschen dazu nehmen. Ist das machbar? Danke

02.05.2023 - 13:02

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rennert, vielleicht, dann sollen Sie sicher die Ärmel anders bearbeiten (mit Raglan vielleicht?) - dies bedeutet, Sie sollen dann das Ende von der Anleitung umändern bzw umrechnen. Beachten Sie, daß die Schulter dann anders aussehen würden. Viel Spaß beim stricken!

02.05.2023 - 14:50

country flag Martina Rumposch wrote:

Die Wolle ist für Größe M zu knapp bemessen. Hätte ich die Ärmel nicht versehentlich in S gestrickt, hätte sie nicht gereicht.

26.07.2022 - 06:32

country flag Ava wrote:

Doing sleeves for 202-29. Are the decreases for the sleeves only done on the right side only and in just 1 end of the row? If decreasing on both ends it ends up to be over 17 stitches binded off.

21.02.2022 - 09:00

DROPS Design answered:

Dear Ava, cast off the stitches for sleeve cap at the beginning of each row on each side, ie in first size: cast off 4 sts at the beg of next 2 rows, then 2 sts at the beg of next 4 rows, then 1 stitch at the beg of next 4 rows, and 2 sts at the beg of next 10 rows. Happy knitting!

21.02.2022 - 10:26

country flag Ava wrote:

Sorry I’m doing pattern 202-29

15.02.2022 - 02:51

country flag Ava wrote:

Doing the back of 202-09, do I start to shape the shoulders when the neck is 16 1/2 inches? And as for the shoulder sides how do I know what length each side of the shoulders should be? Am I just binding off for the neck and not continuing the 2 sides for shoulders? I hope I’m making sense!

15.02.2022 - 02:48

DROPS Design answered:

Dear Ava, back piece is worked the same way as front piece except neck that will be cast off later, but then after you have cast off for neck, continue each shoulder separately as front piece: work until piece measures 17 3/4”-18 1/2”-19 1/4”-20”-21”-21 5/8” work 2 ridges over all stitches and bind off - work the other shoulder the same way. Happy knitting!

15.02.2022 - 09:15

country flag Trentin wrote:

Bonjour je n arrive pas à faire l encolure. J ai diminue pour l encolure mais je ne comprend pas les 9 mailles côté encolure qui se tricotent en jersey. Merci pour votre aide

15.06.2021 - 19:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Trentin, comme vous n'avez plus suffisamment de mailles pour tricoter le point fantaisie sur toutes les mailles, vous tricotez les autres mailles (= 9) côté encolure en jersey et plus en point fantaisie, et en même temps, vous rabattez les mailles de l'encolure au début de chaque rang à partir de l'encolure (= sur l'endroit pour le côté droit et sur l'envers pour le côté gauche du devant). Bon tricot!

16.06.2021 - 07:02

country flag Kathleen wrote:

On the increase tip for sleeves, it says to increase only on the right side. On the sleeve pattern instructions it says to increase one stitch on each side. Which one is it?

09.06.2021 - 20:42

DROPS Design answered:

Dear Kathleen, increase on the right side, in other words the side that will be outside of the piece, and on both side, in other words at the beginning and at the end of a row. Happy Stitching!

09.06.2021 - 20:46

country flag Katariina wrote:

Kumpaan sivuun olkapäissä tehdään 9s sileää neuletta (kaula-aukko vai kainalo) ja kuinka mallineutta jatketaan? Kuvassa ei näy 9s sileää, vaan näyttää että mallikuvio on jatkunut kunnes tehdään ainaoikeat kerrokset ennen päättämistä.

06.05.2021 - 17:20

country flag Kathleen wrote:

On the sleeves I cast on 47 stitches worked two ridges in garter stitch, knit 1Edge stitch in garter stitch, knit 5, knit A1, then it says to work stockenette? How many? And if I do there won’t be enough stitches to continue the pattern to finish this first row. Please explain

15.11.2020 - 02:43

DROPS Design answered:

Hi Kathleen, After the ridges the next row is : 1 edge stitch, 5 stitches in stocking stitch, A.1, then 1 stitch in stocking stitch, A.1, then 5 stitches in stocking stitch and 1 edge stitch. Happy knitting!

15.11.2020 - 11:24

country flag Kathleen wrote:

How do you continue the pattern after bind off of the 9 neck stitches? not enough stitches left to follow the pattern please explain

31.10.2020 - 16:57

DROPS Design answered:

Dear Kathleen, when there is not enough stitches for a whole repeat of the pattern, the stitches are knitted with stickinett stitch. Happy Knitting!

31.10.2020 - 18:34