Manuela |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: 14-14-15-15-16-16 cm með ljós beige. 14-14-15-15-16-16 cm með fjólublár. 14-14-15-15-16-16 cm með natur. Prjónið síðan með daufbleikur til loka = ca 12-14-13-15-14-16 cm. RENDUR ERMI: 5-5-4-3-2-2 cm með daufbleikur. 14-14-15-15-16-16 cm með natur. 14-14-15-15-16-16 cm með fjólublár. Prjónið síðan með ljós beige til loka = ca 17-16-15-13-10-8 cm. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á umferð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur (+ 2 uppslættir, þeir tilheyra lykkjum) slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið um 2 lykkjur í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða + uppsláttur af prjóni eins og prjóna eigi slétt og setjið til baka snúið á vinstri prjón, prjónið næstu 3 lykkjur (+ 2 uppslættir) snúið slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. BAKSTYKI: Fitjið upp 79-88-94-106-118-130 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 6 með litnum ljós beige. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og klukkuprjón þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt saman og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Nú hefur fækkað um 26-29-31-35-39-43 lykkjur í umferð = 53-59-63-71-79-87 lykkjur (+ 25-28-30-34-38-42 uppsláttur). UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn. Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 2 lykkjur á prjóni, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Endurtakið umferð 2 og 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 55-61-65-73-81-89 lykkjur. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni eins og áður og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 18-20-22-26-28-32 lykkjur og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir öxl, fellið af næstu 19-21-21-21-25-25 lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur eru allir uppslættirnir felldir af eins og eigin lykkja, prjónið síðan þær 18-20-22-26-28-32 lykkjur sem eftir eru í umferð eins og áður. Prjóni nú hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka með klukkuprjóni, 2 lykkjur garðaprjón við handveg og 1 lykkja garðaprjón við hálsmál þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem fitjuð var upp lykkja fyrir handveg. Fellið af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur eru uppslættirnir felldir af eins og eigin lykkja. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið mynstur og rendur alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok 2 næstu umferða fyrir handveg = 55-61-65-73-81-89 lykkjur. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni eins og áður, en nú eru prjónaðar 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 18-20-22-26-28-32 lykkjur og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir öxl, fellið af næstu 19-21-21-21-25-25 lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur eru allri uppslættirnir felldir af eins og eigin lykkja, prjónið síðan þær 18-20-22-26-28-32 lykkjur sem eftir eru í umferð eins og áður. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka með klukkuprjón, 2 lykkjur garðaprjón við handveg og 1 lykkju garðaprjón við hálsmál þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá þar sem fitjuð var upp lykkja fyrir handveg. Fellið af, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur eru uppslættirnir felldir af eins og eigin lykkja. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 67-73-76-79-85-88 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 6 með litnum daufbleikur. Prjónið RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan og klukkuprjón þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt saman og 1 kantlykkju garðaprjón. Nú hefur fækkað um 22-24-25-26-28-29 lykkjur í umferð = 45-49-51-53-57-59 lykkjur (+ 21-23-24-25-27-28 uppslættir). UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 1 uppslætti, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja garðaprjón. UMFERÐ 3 (rétta): 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, 1 kantlykkja garðaprjón. Endurtakið umferð 2 og 3. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki þannig – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 19-19-19-17-10-10 cm millibili alls 2-2-2-2-3-3 sinnum = 37-41-43-45-45-47 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 50-49-49-46-44-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur eru uppslættirnir felldir af eins og eigin lykkja. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana í lykkjurnar eina og eina. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið í hinni hliðinni. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Michela wrote:
Salve , vorrei lavorare questa maglia a righe a maglia rasata invece che a coste inglesi Qualche suggerimemto? Sono veramemte alle prime armi Grazie
15.09.2022 - 16:02DROPS Design answered:
Buonasera Michela, può procedere a maglia rasata se preferisce, e rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia in caso di bisogno. Buon lavoro!
17.09.2022 - 19:24Ida wrote:
Na vele pogingen neig ik het op te geven dit te breien... zo jammer! Ik worstel met de wol en met de steek... is er een mogelijkheid om een ander patroon te breien of de wol te ruilen ?
04.09.2022 - 12:58Christine wrote:
Hello, can this pattern be knitted in the round?
24.11.2019 - 01:08DROPS Design answered:
Dear Christina, you an knit the body in the round up to the point where you decrease for the armoles, from there you have to split the stitches and knit each piece back and forth. The sleeves canbe knitted on the round until you start to shape the top of the sleeves. I hope this helps. Happy Knitting!
24.11.2019 - 13:25Lis Hede wrote:
Hvor meget garn skal der bruges hvis man strikker den i 1 farve?
07.06.2019 - 08:36DROPS Design answered:
Hei Lis. Vi har dessverre ikke oversikt over garnmengde ensfarget i alle størrelser. Du kan se på en ensfarget modell i samme garn (som feks 201-23 eller 196-34. Se på garnmengden for 1 farge) for å få en ide. Husk at denne modellen er strikket med helpatent, og dette krever mer garn enn om arbeidet er strikket i enkel struktur/glattstrikk. God fornøyelse
07.06.2019 - 09:07Elisabetta wrote:
Davvero carina e casual! Aspetto pubblicazione in italiano!
24.02.2019 - 19:35Potirka wrote:
Nie mogę znaleźć opisu tego wzoru
08.02.2019 - 15:33Vasileia wrote:
Very nice!!
20.01.2019 - 22:15Stephi wrote:
Superschön und lässig
15.01.2019 - 14:43Susanne Randrup wrote:
Super smart og super anvendelig, tidsløs.
11.01.2019 - 15:01Andrea wrote:
Lässig kuschelig
08.01.2019 - 14:49