DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 14-25
DROPS design: Modell nr ee-003-by
--------------------------------------------------------

Peysa og tátiljur:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS Snow frá Garnstudio
PEYSA:
150-200-200 (250-250) gr nr 01, natur
50 - 50 - 50 (100-100) gr nr 31, ljós mynta
50 - 50 - 50 (100-100) gr nr 37, mynta
50 gr í allar stærðir í þessum litum:
nr 13 kamel, 23 dökk beige +
Litavalmöguleiki 1: nr 30 ljós bleikur og nr 36 bleikur
Litavalmöguleiki 2: nr 12 ljós blár og nr 21 gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 4 stuðlahópar á breiddina og 4 umferðir á hæðina verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉ TALA, NR 512: 4-4-4 (5-5) st

TÁTILJUR:
100-100-100 (100-100) gr nr 01, natur
DROPS HEKLUNÁL NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 10 fastalykkjur á breiddina og 11 umferðir á hæðina verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. 1 rúða í mynsturteikningu = 1 umferð með stuðlahópum.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í byrjun á umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
1 stuðlahópur = 2 stuðlar í sömu lykkju.
½ stuðlahópur – 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli).
--------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1!
Heklið 31-34-40 (43-46) loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 9 og natur. Heklið rendur eftir M.1 þannig (ef að það er meira pláss eftir M.1 er heklað til loka með natur):
UMFERÐ 1: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 2 loftlykkjur, 2 stuðlar í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina = 10-11-13 (14-15) stuðlahópar, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 2 stuðlar á milli 2 fyrstu stuðlahópa frá fyrri umferð (heklið í lykkju, ekki utan um hana alla), * 2 stuðlar á milli næstu 2 stuðlahópa *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 2 stuðla efst á síðasta stuðli = 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 10-11-13 (14-15) stuðlahópar í umferð – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2.
Endurtakið 2. umferð áfram. Þegar stykkið mælist ca 20-23-23 (27-30) cm er fitjað upp fyrir ermum í hvorri hlið þannig: Klippið frá. Heklið 16-19-19 (25-28) loftlykkjur, heklið eins og áður yfir bakstykki, í lok umferðar eru heklaðar 16-19-19 (25-28) loftlykkjur. Snúið stykkinu og heklið eins og útskýrt er í 1. umferð. Endurtakið í hinni hliðinni og haldið áfram með mynstur alveg eins og áður = 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 20-23-25 (30-33) stuðlahópar í umferð. Þegar stykkið mælist 30-33-36 (40-45) cm klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Heklið 16-16-19 (22-22) loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 9 og natur. Heklið rendur eftir M.1 og stuðlahópa alveg eins og á bakstykki = 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 5-5-6 (7-7) stuðlahópar eftir 2. umferð. Þegar stykkið mælist 20-23-23 (27-30) cm heklið 16-19-19 (25-28) loftlykkjur fyrir ermi í annarri hliðinni alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 30-33-36 (40-45) cm klippið frá. Heklið annað framstykki til viðbótar með útaukningu fyrir ermi í gagnstæðri hlið.

STROFF:
Heklið 2 umferðir með stuðlahópum neðst á hvorri ermi með natur – það á að vera ca 1 stuðull af 3 loftlykkjum + 8-8-10 (10-11) stuðlahópar í umferð.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið 1 umferð með stuðlahópum upp meðfram kanti að framan á hvoru framstykki með natur = ca 12-13-14 (16-18) stuðlahópar.

FRÁGANGUR:
Saumið axla/erma sauma kant í kant – byrjið yst á hvorri ermi og saumið inn – skiljið eftir 5-6 stuðlahópa mitt að aftan fyrir op fyrir háls. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt kant í kant.

HETTA:
Öll hettan er hekluð í natur.
Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur, eftir það eru heklaðir ca 13-14-15 (16-17) stuðlahópar í kringum kant í hálsi alveg eins og á peysu. Haldið áfram með stuðlahópa þar til hettan mælist ca 22-24-26 (29-30) cm, klippið frá.
Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið fallega saman efst uppi, kant í kant.
Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan á að vera ca 1 - 2 cm að ofan og neðsta ca 10 - 12 cm frá neðri kanti.
--------------------------------------------------------

TÁTILJUR:
Lengd fótar: 10-11-12 (14-15) cm

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í byrjun á 1 umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 fastalykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

--------------------------------------------------------

TÁTILJA:
Tátiljurnar eru heklaðar sem eitt stykki og saumaðar saman við miðju að framan og miðju að aftan.
Heklið 7-8-9 (10-11) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 7 og natur. Heklið fastalykkjur fram og til baka – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1 (byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni) = 7-8-9 (10-11) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist 7-8-9 (10-10) cm er aukið út í annarri hliðinni fyrir fótinn með því að hekla 3-3-3 (4-4) nýjar loftlykkjur, haldið áfram með fastalykkjur yfir allar lykkjur = 10-11-12 (14-15) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist 15-18-21 (24-26) cm fellið af 3-3-3 (4-4) fastalykkjur fyrir fót með því að snúa stykkinu og hekla til baka þegar komið er að þeim. Haldið áfram með fastalykkjur yfir 7-8-9 (10-11) fastalykkjur sem eftir eru á stykki þar til stykkið mælist 22-26-30 (34-36) cm.

FRÁGANGUR:
Brjótið tátiljuna saman tvöfalda og saumið saman við miðju að aftan og miðju að framan með smáu spori þannig að saumurinn verði ekki þykkur – skiljið eftir op ca 5-6-7 (8-8) cm efst mitt að framan (brjótið e.t.v. upp efsta hlutann).
Heklið aðra tátilju alveg eins.

DÚSKUR:
Gerið 2 litla dúska ca 3 cm að þvermáli – sjá www. garnstudio.com – og saumið einn dúsk mitt framan á hverja tátilju.

Teppi: SjáDROPS Baby 14-21

Mynstur

symbols = natur
symbols = kamel
symbols = ljós minnta
symbols = minnta
symbols = bleikur/gallabuxnablár
symbols = ljós bleikur/ísblár
symbols = dökk beige
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (98)

country flag Sue wrote:

Is there a pattern the same made with 8 ply yarn and a smaller 5 crochet hook. Thanks 😃

05.01.2024 - 13:22

DROPS Design answered:

See previous answer - one of the links could help. Happy crocheting!

05.01.2024 - 15:41

country flag Sue wrote:

Can this pattern be modified with 8 ply yarn and a smaller 4 or 5 hook. Thanks😃

05.01.2024 - 13:19

DROPS Design answered:

Dear Sue, this pattern is worked with a bulky yarn, you would have to adapt the pattern to your own tension. Please find all our crocheted jackets for babies here and for kids here. Happy crocheting!

05.01.2024 - 15:41

country flag Emilie wrote:

Rebonjour, et merci pour votre réponse rapide! Il me semble que dans les vidéos , les rayures sont faites avec 2 rangs de la même couleur. Ici on change de couleur à la fin de chaque rang, si j’ai bien compris: alors les fils doivent traverser l’ouvrage, est-ce que vous voyez ce que je veux dire? Comment puis-je faire pour ne pas les couper dans ce cas là ? Merci beaucoup

19.10.2022 - 17:22

DROPS Design answered:

Bonjour Émilie, on peut effectivement couper le fil dans ce cas-là, ou bien utiliser la technique de cette vidéo qui va permettre de ne pas couper, mais de la faire suivre en hauteur, vous crochèterez ainsi alternativement ou successivement sur l'endroit/sur l'envers, du côté où se trouve le fil dont vous avez besoin. Bon crochet!

20.10.2022 - 09:42

country flag Emilie wrote:

Bonjour, J’aimerais savoir s’il faut couper les fils à chaque changement de couleur ou s’il est possible de faire autrement ? Merci beaucoup, je trouve ce modèle superbe !

19.10.2022 - 14:43

DROPS Design answered:

Bonjour Émilie et merci :) Vous pouvez faire suivre les fils pour éviter d'avoir à les couper (et d'avoir trop de fils à rentrer) - retrouvez ici quelques astuces supplémentaires. Bon crochet!

19.10.2022 - 16:19

country flag Sheila Eastman wrote:

I do not understand at all how to do the sleeves. What does it mean to crochet over the back piece?Why are you making 2 separate chains? This is very badly explained!You can see that many are confused about the sleeves. I'll have to make up my own solution.

02.07.2022 - 03:42

DROPS Design answered:

Dear Sheila, for the sleeve you cast on and make a chain of 16...28 chain stitches (depending on the size). Now continue working by inserting the hook in the stitch in the back and work according to the pattern. Continue working on the back until finishing the row. When you are at the end of the row, cast on and make a chain of 16...28 stitches (depending on the size). Turn the work and work as explained in the first row on the back. Here is a video on how to cast on the stitches after the back: https://www.garnstudio.com/video.php?id=30&lang=en. Happy crocheting!

02.07.2022 - 16:11

country flag Shikk wrote:

Hi, I made it past the sleevs thanks to reading the comments but I cannot for the life of me work out the left front peace. Anyone want to explain? I feel like I'm having brain block.

23.06.2021 - 00:54

DROPS Design answered:

Dear Shikk, can you be more specific, in what exactly you cannot work ut in the front piece ? Happy Crafting.

23.06.2021 - 01:54

country flag Mary wrote:

I was confused at first about the stitches but printed the pattern in english and figured it out. Now I finished the back and I am confused about the sleeves. It says cast on new stitches for sleeves? Do I do the sleeves separate and sew them on at the end? Or do I crochet them on to each side of sweater. I have been crocheting a long time and this pattern is very confusing. I have made lots of baby sweaters but the way this pattern is written I just don't get it. Thanks Mary

24.01.2021 - 02:40

DROPS Design answered:

Dear Mary, sleeves will be crocheted at each side of the back piece as follows (you should cut the yarn when stated), then crochet new chains for the first sleeve, work the stitches on back piece just as before (as if you wouldn't have cut the yarn and crochet chains before), and crochet new chains at the end of the row for 2nd sleeve. Turn piece and now work as before over all stitches: you have now the new stitches for the sleeves on each side (piece is now looking like a T). Happy crocheting!

25.01.2021 - 09:24

country flag Mary wrote:

Does tr mean treble stitch or Double crochet stitch? In the US treble is different for double and is 9mm crochet hook your size or american size. The chart is unclear to me. Thank you Mary

23.01.2021 - 00:48

DROPS Design answered:

Dear Mary, make sure you are printed the correct English pattern, ie this jacket is worked with double crochet (US-crochet) / treble crochets (Uk-English) - read more about diagrams here. Happy crocheting!

25.01.2021 - 08:30

country flag Anna wrote:

Bonjour, doit-on crocheter la partie poignet en cercle en assemblant l'avant et l'arrière? Et quelle partie concerne la bordure avant? Tout le pourtour des avants? juste le côté boutons? ou ailleurs? Sur le modèle il me semble qu'une bordure parcours la partie bouton jusqu'au capuchon. Oour les explications du capuchon viennent après les paragraphe "poignet"... Merci d'avance!

23.11.2020 - 22:52

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, vous pouvez faire la bordure des poignets après assemblage ainsi vous pourrez la faire en rond, sans couper le fil. La bordure des devant se fait seulement le long de chaque devant, mais vous pouvez la prolonger autour de la capuche pour un résultat plus "fluide". Bon crochet!

24.11.2020 - 09:40

country flag Sofia wrote:

Found the pattern to this model, nr 14/25 Cozy Cuddle, on this web page: crochetdesignsfree1.blogspot.com/2016/02/shelter-in-crochet-for-children-step-by.html?m=1 Stolen pattern or Ok?

01.03.2020 - 18:35