Dorrit Laustsen skrifaði:
På halstørklædet skal man slå masker op på rundpind nr 9. Der skal vel stå nr 8, da der intet er nævnt om pinde nr 9 andre steder, og ej heller noget om at skifte til nr 8 efter opslagningen?
17.12.2024 - 11:27DROPS Design svaraði:
Hej Dorrit, ja det har du ret i, det må være pind nr 8. Vi skal få det rettet :)
17.12.2024 - 13:23
Jolanda Steiner skrifaði:
In schwarz sehr elegant und zu vielen Gelegenheiten tragbar!
28.05.2023 - 19:20
Martine skrifaði:
In de titel staat dat de muts in gerstekorrel is maar in de werkbeschrijving zie ik dit niet terug
01.03.2022 - 15:43
Věra skrifaði:
Moc děkuji,ale ne ne,takto jsem to nemyslela....návod jsem četla,pochopila,že pletu trojitě.....nechápu ale proč 3 klubka antracitu a jen 2 klubka jablíčko když v béžovém proužku nepoužiju antracit....připadá mi,že by to mělo být obráceně....3 klubka jablko a 2 klubka antracit ,dle návodu je jasné,že antracitu bude spotřeba trochu menší......děkuji Věra
24.10.2020 - 21:59
Věra skrifaði:
Dobrý den,prosím není mi jasné proč mám mít na šálu 3 klubíčka antracit a 2 klubíčka jablko když se celá šála plete s barvou jablko a v béžovém proužku dokonce dvojitě bez antracitu....logicky mi to nesedí.....děkuji za odpověd Věra
22.10.2020 - 00:52DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Věro, šálu pleteme trojitou přízí, tj. 3 vlákny naráz - viz návod: Na kruhovou jehlici č.8 nahodíme 1 vláknem jablkové příze Kid-Silk, 1 vláknem antracitové příze Kid-Silk a 1 vláknem světle šedozelené příze Sky (= trojitou přízí) ... Barevný efekt vznikne právě kombinací různých odstínů, vč. antracitové. Hodně zdaru! Hana
24.10.2020 - 21:14
Annette skrifaði:
Ich finde die Mütze-Schal-Kombination sehr schön. Da so viele verschiedene Farben (4 von 2 verschiedenen Garnsorten) wäre es sehr lieb, wenn ihr einen alternativen Farbvorschlag machen würdet. Da das Beispiel ja für eine Grünkombi ist, wäre z.b. eine blaue oder rote Alternative super! Vielen Dank!
08.12.2019 - 11:22DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden, auch telefonisch oder per E-Mail weiter helfen und neue Farbenalternative vorschlagen. Viel Spaß beim stricken!
09.12.2019 - 10:02
Morning Meadow#morningmeadowset |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð húfa og hálsklútur úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Sky. Stykkið er prjónað í perluprjóni (tvöfalt á hæðina), með röndum og með kögri.
DROPS 204-52 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um húfu): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hvert merki. RENDUR (á við um hálsklút): ATH: Skiptið alltaf um lit í sömu hlið á stykki. * 9 cm með 1 þræði í litnum eplagrænn Kid-Silk, 1 þræði í litnum öskugrár Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós sægrænn Sky, síðan 2 umferðir með 2 þráðum í litnum eplagrænn Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós beige Sky *, prjónið frá *-* til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 54-60 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum í litnum eplagrænn DROPS Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós beige DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í 1 þráð í litnum eplagrænn Kid-Silk, 1 þráð í litnum öskugrár Kid-Silk og 1 þráð í litnum ljós sægrænn Sky (= 3 þræðir) og haldið áfram með stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til allt stroffið mælist 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 27-30 mynstureiningar með 2 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 19-21 cm setjið 6 merki í stykkið þannig: Setjið fyrsta merki í byrjun umferðar, setjið næsta merki eftir 9-10 lykkjur, setjið næstu 4 merki eftir 9-10 lykkjur, nú eru eftir 9-10 lykkjur í umferð á milli síðasta merkis og fyrsta merkis í umferð. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur á undan hverju merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2-2 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 1-2 sinnum = 18-12 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar brugðið saman 2 og 2 = 9-6 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25-28 cm. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 34 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í litnum eplagrænn DROPS Kid-Silk, 1 þræði í litnum öskugrár DROPS Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós sægrænn DROPS Sky (= 3 þræðir). Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 17 mynstureiningar með 2 lykkjum) og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 159 cm – stillið af að endað sé eftir 9 cm með 1 þræði í litnum eplagrænn Kid-Silk, 1 þræði í litnum öskugrár Kid-Silk og 1 þræði í litnum ljós sægrænn Sky. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með 1 númeri grófari prjónum. KÖGUR: 1 kögur: Klippið 6 þræði ca 40 cm af hverjum lit af eftirfarandi litum: eplagrænn Kid-Silk, öskugrár Kid-Silk og ljós sægrænn Sky. Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjunni í gegnum lykkju í uppfitjunarkanti. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega. Festið 9 kögur meðfram uppfitjunarkanti og 9 kögur í meðfram affellingarkanti. Klippið kögrið til þannig að það verði ca 16 cm langt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningmeadowset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.