Eleonora skrifaði:
Semplice e molto portabile
25.01.2014 - 22:33
Isabelle skrifaði:
Gilet magnifique...vivement les explications !!
09.01.2014 - 22:55
Christine skrifaði:
J'aime ce camaïeu de bleus, la forme toute simple qui devrait faire de ce gilet un basique à marier avec un jean.
06.01.2014 - 17:35
Rosy skrifaði:
C'est le modèle en Fabel que j'attendais !!
04.01.2014 - 11:23
Ina skrifaði:
Wat een prachtig vest. Ik hoop dat hier patroon van komt. Deze ga ik dan zeker breien.
03.01.2014 - 15:31Le Biavant Veronique skrifaði:
Un basique intemporel parfait pour les loisirs et même le travail avec tout simplement un tee shirt blanc
03.01.2014 - 11:35
Marianne CONRAD skrifaði:
Très joli ce petit gilet, et la couleur est ravissante
28.12.2013 - 18:34
Katrin skrifaði:
Sehr schöne Farbverläufe. Perfekt zur Jeans.
26.12.2013 - 17:48
Kirsten Grymer skrifaði:
Jeg ville ønske flere opskrifter strikket på rundpind i glatstrikning, så man kan klippe trøjen eller vesten op bagefter. Skal gerne strikkes oppefra i f.eks. ensfarvet grå med papegøjestriber.
26.12.2013 - 16:28
Lene Ahlbäck skrifaði:
Enkel stilren modell,den ser jag fram emot att gå igång med.En fin vår sommarkofta.
22.12.2013 - 22:19
Seascapes#seascapescadigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa í garðaprjóni úr DROPS Fabel og DROPS Delight. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: *2 umf garðaprjón Fabel, 2 umf garðaprjón Delight *, endurtakið frá *-* í gegnum allt stykkið. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (með prjónamerki á milli), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 184-200-220-240-264-288 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan! Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 46-50-55-60-66-72 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 92-100-110-120-132-144 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA AÐ OFAN. Endurtakið annan hvern cm alls 8 sinnum = 152-168-188-208-232-256 l. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING AÐ OFAN. Endurtakið annan hvern cm alls 8 sinnum = 152-168-188-208-232-256 l. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING AÐ OFAN. Endurtakið með 2-2-2½-2½-3-3 cm millibili alls 6 sinnum = 176-192-212-232-256-280 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af 6 l fyrir handveg í hvorri hlið (felldar eru af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki) og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 82-90-100-110-122-134 l. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umf þannig: 2 l 1-2-4-6-8-10 sinnum og 1 l 0-1-1-1-2-3 sinnum = 78-80-82-84-86-88 l. Þegar stykkið mælist 54-56-58-59-61-63 cm fellið af miðju 30-30-30-32-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf við hálsmál = 22-23-24-24-25-25 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 41-45-50-55-61-67 l. Fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 39-40-41-42-43-44 l. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm fellið af fyrir hálsmáli. Fellið af 8-8-8-9-9-10 l, fellið síðan af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 22-23-24-24-25-25 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 41-45-50-55-61-67 l. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki , nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið garðaprjón og rendur eins og áður. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l innan við kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið með 3-2½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 12-14-15-17-19-20 sinnum = 70-76-80-86-92-96 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-46-44-43 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna lengri axlakúpu og breiðari axla) fellið af í byrjun á hverri umf fyrir axlakúpu þannig: 4-4-4-3-3-3 l 1 sinni, 2 l 3-4-4-4-4-4 sinnum, 1 l 0-1-1-3-8-11 sinnum, síðan er fellt af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-57 cm. Fellið af 3 l í hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Stykkið mæilst ca 55-56-56-57-57-58 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið ermasauma. HÁLSMÁL: Takið upp 94-108 l frá réttu með Fabel á hringprjóna nr 4 meðfram kanti í hálsmáli. Prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af með sl frá röngu. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið fram og til baka í garðaprjóni og röndum. Prjónið upp 98-102-106-110-112-114 l innan við 1 kantlykkju við miðju á framstykki með Delight. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Í næstu umf frá réttu eru felldar af 6-6-6-7-7-7 l fyrir hnappagötum þannig: Prjónið 7-6-5-8-4-6 l sl, * prjónið næstu 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15-16-17-14-15-15 l sl *, endurtakið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-6-6-6 sinnum) og endið á 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 4 l sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. Haldið áfram í garðaprjóni og rendur þar til kantur að framan mælist ca 2-2-2-3-3-3 cm, fellið laust af allar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og hægri kantur að framan, án hnappagata. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seascapescadigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.