Mamieflo skrifaði:
Bonjour Nathalie Je me sens un peu perdue 1. DOMINO Je fais S/M donc Domino marqueur à la maille 19 mais ensuite, 18 de chaque côté. ensuite on n'a plus ce marqueur 2.RANGS RACCOURCIS si je comprends on fait les 6 rangs à la suite AU 6ème rang sur l'endroit, on tricote toutes les mailles et on arrive à nouveau sur les 2 rangs DOMINO. EST-CE BIEN CELA ?? Merci
17.10.2016 - 15:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mamieflo, on tricote le domino sur les 37 premières m (le marqueur doit bien rester dans la m centrale jusqu'à la fin), et les rangs raccourcis sur les 41 dernières m vu sur l'envers. Au 1er rang sur l'envers, tricotez les 37 m du domino + 32 m (il en reste 9), tournez et tricotez le rang suivant sur l'end sur ces m (dim. pour le domino). Au rang 3, tricotez les 35 m du domino, puis 23 des 41 m (=il reste 18 m en fin de rang), Tournez et tricotez ces m (dim. pour le domino). Puis tricotez 2 rangs sur toutes les m (celles du domino + les 41 m en fin de rang sur l'envers) en dim. pour le domino au rang sur l'endroit. Répétez ainsi ces 6 rangs. Bon tricot!
17.10.2016 - 16:26
Agnes skrifaði:
Hvor er den smuk Agnes
29.06.2013 - 18:40
Ammetz skrifaði:
Playful and eye-catching--great design.
28.06.2013 - 13:35
Annie skrifaði:
Hat and collar are both really ugly!
26.06.2013 - 13:36
Petra skrifaði:
Sieht nach einer kleinen Herausforderung aus, würde es zuerst für Kinder probieren, dann für mich, interessantes Muster
21.06.2013 - 19:55
Claudotte skrifaði:
J'ai hâte d'avoir les explications, car cela fera un magnifique cadeaux pour toute ma progéniture fille
19.06.2013 - 13:35
Hanna skrifaði:
Sieht das raffiniert aus!
11.06.2013 - 17:14
Antje skrifaði:
Sehr, sehr schön. Ganz toller Farbverlauf. Freue mich schon. Auch gaanz tolles edles Weihnachtsgeschenk!
10.06.2013 - 14:12
Moni skrifaði:
JA! Meine Schultern und mein Nacken freuen sich schon auf diesen Kragen. Super finde ich die 6 Knöpfe zum Öffnen.
01.06.2013 - 22:34
Andrea skrifaði:
Mein Namensvorschlag ist Edelkastanie: es erinnert mich an Herbstspaziergaenge kuschlig warm eingepackt, heisse Marroni am Weihnachtsmarkt, Leckereien wie Vermincelle und creme de marron...
01.06.2013 - 13:06
Ursula#ursulaset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað hálsskjól og húfa úr DROPS Fabel með dominoferningum.
DROPS 151-41 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti á fyrsta Dominoferningi. Byrjið á umf 8 frá byrjun (= 1. umf frá réttu yfir allar l) og fellið af þannig: 3 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, 8-9 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman og prjónið sl út umf (með úrtöku í Dominoferningi eins og áður). STUTTAR UMFERÐIR (HÚFA): Yfir síðustu 41-43 l (séð frá röngu) eru prjónaðar stuttar umf þannig: UMFERÐ 1 = frá röngu: Prjónið 32-34 l sl, snúið við. UMFERÐ 2 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 3 = frá röngu: Prjónið 23-25 l sl, snúið við. UMFERÐ 4 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 5 = frá röngu: Prjónið sl yfir allar 41-43 l. UMFERÐ 6 = frá réttu: Prjónið sl yfir allar l. Endurtakið umf 1- 6. STUTTAR UMFERÐIR (HÁLSSKJÓL): Yfir síðustu 46-50 l (séð frá röngu) á að prjóna stuttar umf þannig: UMFERÐ 1 = frá röngu: Prjónið 21-25 l sl, snúið við. UMFERÐ 2 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 3 = frá röngu: Prjónið 14-17 l sl, snúið við. UMFERÐ 4 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 5 = frá röngu: Prjónið 4-6 l sl, snúið við. UMFERÐ 6 = frá réttu: Prjónið sl til baka. UMFERÐ 7 = frá röngu: Prjónið sl yfir allar 46-50 l. UMFERÐ 8 = frá réttu: Prjónið sl yfir allar l. Endurtakið umf 1- 8. DOMINOFERNINGUR: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að fækkið um 2 l fyrir miðju á ferningnum í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. LEIÐBEININGAR (á við um húfu): Prjónið upp l meðfram hlið á ferningi yst í lykkjubogann. Þá verður húfan falleg í báðum hliðum og er því hægt að nota hana beggja vegna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið, fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. Hægt er að snúa húfunni við og nota hana beggja vegna. HÚFA: Fitjið upp 78-80 l á hringprjóna nr 3,5 með Fabel. Allar l eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá úrskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu yfir allar l. Prjónið nú (1. umf = ranga) þannig: * Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 37-37 l, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 41-43 l. Haldið áfram þar til ferningurinn hefur verið prjónaður til loka, prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir þær 41-43 l sem eftir eru. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sl yfir þær fyrstu 41-43 l, prjónið upp 19-19 l meðfram hlið á ferningi – LESIÐ LEIÐBEININGAR, fitjið upp 18-18 nýjar l á prjóninn = 78-80 l *. Endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 6-7 DOMINOFERNINGAR (á síðasta ferningi er fellt af með sl frá röngu þegar ferningurinn hefur verið prjónaður til loka). FRÁGANGUR: Saumið saman uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn. Þræðið þráð í gegnum lykkjur meðfram kanti efst uppi og dragið húfuna saman. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið, fram og til baka á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 79-83 l á hringprjóna nr 3,5 með Fabel. Allar l eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu yfir allar l. * Prjónið nú (1. umf = rétta) þannig: Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 33-33 l, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 46-50 l. Haldið áfram þar til ferningurinn hefur verið prjónaður til loka – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar ferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónuð 1 umf slétt frá röngu yfir þær l sem eftir eru. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 46-50 l, prjónið upp 17-17 l meðfram hlið á ferningnum, fitjið upp 16-16 nýjar l á prjóninn = 79-83 l *. Endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 16-17 ferningar (í síðasta ferningi er fellt af með sl frá röngu þegar ferningurinn hefur verið prjónaður). Saumið tölur í. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ursulaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.