DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bernardita

Prjónað axlarskjól úr DROPS Fabel með dominoferningum og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL

DROPS 151-40
DROPS Design: Mynstur nr fa-250
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL
Yfirmál: ca 88/96 - 104/114 - 126/138 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-250 gr litur nr 547, grár/brúnn

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 46 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATALA, NR 538: 3 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðju l.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að fækkið um 2 l fyrir miðju á ferningnum í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónið stuttar umferðir – fyrsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 6 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram (í hvert skipti sem snúið er við er prjónað yfir 3 l fleiri en í fyrri umf) þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir allar l. Prjónið 66-78-93 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 63-75-90 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram (í hvert skipti sem snúið er við er prjónað yfir 3 fleiri l en í fyrri umf) þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir einungis fyrstu 3 l á prjóni. Prjónið 1 umf yfir allar l. Nú hefur verið prjónað alls 91-107-127 umf þar sem er breiðast.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í einni umf frá réttu. Prjónið eina umf þar til 7 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl.
Fellt er af fyrir hnappagötum þegar Dominoferningurinn mælist (mælt meðfram annarri hliðinni, ekki fyrir miðju á ferningnum):
STÆRÐ S/M: 16, 22 og 28 cm.
STÆRÐ L/XL: 20, 28 og 34 cm.
STÆRÐ XL/XXL: 24, 32 og 40 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið samanstendur af ferningum sem prjónaðir eru fram og til baka á hringprjóna.

FERNINGUR 1: Fitjið upp 139-163-193 l á hringprjóna nr 3,5 með Fabel. Prjónið DOMINOFERNINGUR fram og til baka í umf – sjá útskýringu að ofan!
FERNINGUR 2: Fitjið upp 70-82-97 nýjar l á prjóni, prjónið upp 69-81-96 l frá réttu meðfram hægri hlið á fyrsta ferningi = 139-163-193 l. Prjónið DOMINOFERNINGUR fram og til baka.
FERNINGUR 3: Prjónið upp 69-81-96 l frá réttu meðfram efstu hægri hlið á öðrum ferningi, prjónið upp l í framhaldinu á þessum tveimur ferningum. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan.
FERNINGUR 4: Prjónið 69-81-96 l á prjóni (frá réttu), fitjið upp 70-82-97 nýjar l í lok umf = 139-163-193. Prjónið DOMINOFERNINGUR, JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í fyrsta ferning, staðsetjið þær ca 12-17 cm inn frá hlið, sjá mynd.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Alice Hougård Jørgensen wrote:

Efter min opfattelse må der være fejl/mangler i opskriften. Hvis der skal være symmetri i modellen, må der skulle laves 1. rude, 2. rude, 1 kile, 3. rude og 4. rude med knaphuller. Derudover burde det fremgå af opskriften, hvordan modellen er stykket sammen vha. et foto eller tekst.

04.03.2024 - 17:31

DROPS Design answered:

Hej Alice, den er faktisk asymmetrisk, vi skal se om vi finder flere billeder af den :)

13.03.2024 - 14:57

country flag Gabriele Illigens wrote:

Haben Sie evtl ein Schema zu dieser Anleitung? Ich komme so einfach nicht zurecht. Was bedeutet den zb obere Seite des zweiten Vierecks? Eine Zeichnung würde mir sehr helfen.

29.04.2023 - 20:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Illigens, die Maschen vom 3. "Viereck" fassen Sie auf der rechten Seiten vom 2. Viereck/Domino, dh legen Sie die Arbeit flach mit der Vorderseite oben/nach aussen und fassen Sie die Maschen auf der rechten Seiten vom vorigen Viereck (genauso wie bei dem 2. Viereck), dies wird ganz oben der Arbeit sein. Viel Spaß beim stricken!

02.05.2023 - 08:44

country flag Pepin wrote:

Bonjour Dans le modèle 151-40 sur la photo le 1er domino est il celui de droite ou de gauche ? J’ai un problème pour monter le 2ème domino. Merci pour votre réponse

15.11.2022 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pépin, le 1er domino est celui du côté gauche (quand on le porte - le côté où on va coudre les boutons), quand il est terminé, coupez le fil. Montez les mailles de la moitié du 2ème domino et relevez l'autre moitié des mailles de ce 2ème domino le long du côté droit du haut du 1er domino (le long des rangs, à droite, vu sur l''endroit). Bon tricot!

15.11.2022 - 14:33

country flag Juliette Le More wrote:

Bonjour Avez-vous une photo du dos et épaule gauche, car on ne voit pas comment les motifs s'accrochent ? Je ne comprends pas comment démarrer le 4ème motif ?

06.03.2022 - 18:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le More, nous n'avons pas d'autres photos de ce modèle et ne l'avons plus - le 4èume motif se fait en commençant par tricoter les mailles du 3ème motif qui sont sur l'aiguille, puis, vous montez 70-82-97 mailles à la fin de ce rang et vous tricotez 1 domino - vous avez ainsi 1 domino de chaque côté, comme sur la photo. Bon tricot!

07.03.2022 - 09:20

country flag Sieglinde Conrad wrote:

Guten Morgen , wo kann ich denn die Wolle für dieses Tuch kaufen ????? Fabel 547

16.11.2019 - 07:06

DROPS Design answered:

Liebe Frau Conrad, diese Farbe gehört nicht mehr zur Farbkarte, Ihr DROPS Laden kann Ihnen aber gerne eine andere Farbe vorschlagen. Viel Spaß beim stricken!

18.11.2019 - 08:52

country flag Niza wrote:

Es posible que mustren como es la espalda del patron. ...??????

13.04.2019 - 08:00

DROPS Design answered:

Hola Niza. El modelo es de una colección antigua y no disponemos de otras fotos.

13.04.2019 - 20:30

country flag Kathrin Schliesche wrote:

Hallo, ich versuche mich gerade an dem schönen Stück, aber leider ist mir nicht klar, wie ich nach dem ersten Dominoviereck weitermachen soll. Wenn ich Maschen extra anschlage und dann noch aus dem Rand des 1. Vierecks welche dazunehme, ragen diese Extramaschen ja über den Rand hinaus?? Mir fehlt im Moment jede Vorstellung, eine Skizze wäre hilfreich. Danke!

14.02.2019 - 09:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schliesche, für das Domino brauchen Sie eine ungerade Maschenanzahl, die mittlere Masche wird die Masche mit der Markierung (= Abnahme sein), einfach dann das Domino stricken. Viel Spaß beim stricken!

14.02.2019 - 11:40

country flag June Tharp wrote:

OMG!!! I NEED this pattern!!! Is there any way I can get it in Crochet? I LOVE LOVE LOVE THIS!!

02.02.2019 - 14:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Tharp, we are sorry, this is only as knitting pattern, why do not have a try knitting with our lessons and videos?

04.02.2019 - 11:13

Maru Uribe wrote:

Hola queridos diseñadores. Inicié ésta bonita prenda, ya hice el primer cuadrado pero por más que leo las instrucciones no sé cómo continuar, tal vez con algún dibujo se entienda mejor donde montar los puntos para hacer los otros tres cuadros y donde tejer las vueltas cortas. Agradecería me explicarán como seguir esta labor, de antemano, muchas gracias! 😉

26.06.2018 - 09:56

DROPS Design answered:

Hola Maru. Cada siguiente cuadrado se trabaja de la siguiente manera: para hacer un lado del cuadrado se montan puntos nuevos y para hacer el otro lado se recogen puntos sobre un borde del cuadrado anterior. En los primeros 4 min del vídeo siguiente se explica cómo se trabaja esta parte:

30.06.2018 - 19:57

Maike Keil wrote:

Guten morgen. Vielen vielen Dank! Das heisst ich brauche nicht zu trennen♥

12.06.2018 - 11:14