Helen skrifaði:
Sehr schön. Ich möchte mehr Modelle mit diesem Ausschnitt ob Jacken oder Pullover
23.12.2012 - 09:15Malika Redouane skrifaði:
Je le trouve tres joli
20.12.2012 - 15:18Eva Baumgartner skrifaði:
"Schilf im Wind"
17.12.2012 - 10:52
Babette Godey skrifaði:
Indémodable ! qui se porte facilement
16.12.2012 - 23:46
Margrethe skrifaði:
Super sød! Wie Gabriele sagst: Zu jeans
16.12.2012 - 22:44
Tina Nielsen skrifaði:
Rigtig sød model
13.12.2012 - 11:30
Annette skrifaði:
Sød model
13.12.2012 - 00:19
Gabriele skrifaði:
Sehr schönes romantisches Modell zu Jeans.
12.12.2012 - 17:08
Springfield#springfieldcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL
DROPS 147-11 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st er skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar á 1 st í 3. ll í byrjun fyrri umf. MYNSTUR Í KANTI AÐ FRAMAN: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið 89-96-106-116-126-139 ll með Muskat og heklunál nr 4. Snúið við og heklið til baka þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 2-4-4-4-4-2 fl, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 72-78-86-94-102-112 fl (þessi fyrsta umf er hekluð frá röngu, fyrsta ll í umf = 1 fl). Haldið áfram með 1 st í hverja fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram með 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af fyrir handveg með því að hekla kl yfir fyrstu 2-3-6-8-10-13 st í umf, heklið nú 1 kl + 3 ll í næsta st, heklið st fram þar til 2-3-6-8-10-13 st eru eftir, snúið við. Nú eru 68-72-74-78-82-86 st í umf. Heklið nú fram og til baka yfir þessar l þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, heklið nú 2 umf einungis yfir fyrstu 19-21-22-24-26-28 st í annarri hliðinni fyrir öxl. Klippið frá. Heklið nú 2 umf með st yfir 19-21-22-24-26-28 st á hinni öxlinni (miðju 30 st = hálsmál). HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 49-52-57-62-67-74 ll með heklunál nr 4 með Muskat. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hvera af næstu 2-5-5-5-5-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 40-43-47-51-55-60 fl (þessi fyrsta umf er hekluð frá röngu, fyrsta ll = 1 fl). Snúið við og haldið áfram þannig: Mynstur A.1 yfir fyrstu 19 fl – byrjið á umf merktri með ör, haldið áfram með 1 st í hvern og einn af 21-24-28-32-36-41 síðustu fl. Haldið svona áfram – þ.e.s.a. endurtakið 4 efstu umf í mynstri yfir síðustu 19 l við miðju að framan og st yfir þær l sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, heklið ekki lengur yfir síðustu 2-3-6-8-10-13 st við handveg. Haldið áfram með mynstur eins og áður (nú eru 19-21-22-24-26-28 st eftir í mynstri A.1). Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-51 cm, heklið ekki lengur yfir síðustu 19 l við miðju að framan (þ.e.a.s. allt A.1) = 19-21-22-24-26-28 st eftir í umf. Haldið áfram fram og til baka með st yfir þessa þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, klippið frá. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. eftir 1 umf með fl eru heklað þannig: Heklið 21-24-28-32-36-41 st, síðan A.2 yfir síðustu 19 l við miðju að framan. ERMI: Til þess að fá sömu áferð eins og á fram- og bakstykki, verður að hekla ermina fram og til baka og sauma saman í lokin. Heklið 45-47-50-52-55-57 ll með heklunál nr 4 með Muskat. Snúið við og hekið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni. Heklið nú 1 fl í hverja af næstu 3-5-3-5-3-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 37-39-41-43-45-47 fl (þessi fyrsta umf er hekluð frá röngu, fyrsta ll = 1 fl). Snúið við og haldið áfram með 1 st í hverja l. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í fyrsta og síðasta st. Endurtakið útaukningu 11-12-12-13-14-14 sinnum til viðbótar í STÆRÐ S: Til skiptis í 3. og 4. hverja umf. STÆRÐ M og L: Í 3. hverja umf. STÆRÐ XL: Til skiptis í aðra hverja og 3. hverja umf. STÆRÐ XXL og XXXL: Önnur hver umf. Eftir allar útaukningar eru 61-65-67-71-75-77 st í umf. Þegar stykkið mælist 54-53-50-49-47-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), setjið 1 prjónamerki í hlið (þetta prjónamerki merkir hversu langt sauma á ermina saman). Haldið áfram með st þar til stykkið mælist 55-55-54-54-53-52 cm, klippið frá. KANTUR FYRIR VASA (skraut): Heklið 20-20-22-22-24-24 LAUSAR ll með heklunál nr 4 með Muskat. Snúið við og hoppið yfir 1 ll og heklið 1 fl í hverja af 19-19-21-21-23-23 ll sem eftir eru. Haldið áfram fram og til baka með fl þar til kanturinn mælist 3 cm, klippið frá. Heklið 2 alveg eins kanta fyrir vasa. FRÁGANGUR: Allir saumar eru saumaðir kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið axlarsauma og hliðarsauma. Saumið nú ermasauma upp að prjónamerki og saumið ermar í fram- og bakstykki. Saumið 1 kant fyrir vasa á hvort framstykki (saumið niðri við uppfitjunarkantinn og meðfram hlið) – lokið á að vera staðsett ca 10-10-11-11-12-12 cm frá neðri kanti og nákvæmlega innan við gatamynstur í kanti að framan. Á vinstri kant að framan eru saumaðar 4 tölur. Saumið fyrstu 1 cm frá úrtöku við hálsmál – og ca 0,5 cm inn frá miðju að framan, skiptið hinum 5 tölunum jafnt yfir að framan. Hneppið í gegnum l í hægri hlið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springfieldcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.