Mahler skrifaði:
Hallo, das ist ein tolles Muster. Vielen Dank für die Übersetzung. Mit freundlichen Grüßen Mahler
08.09.2013 - 17:52
Sandy skrifaði:
Thank you for giving this pattern in the written format. I don't enjoy knitting from charts. And I cannot knit lace or crochet patterns from charts. So thank you again.
19.06.2013 - 17:51
Helle Wamberg skrifaði:
Ville det ikke være mere relevant at strikke efter"dominostrik"-regler, så rækkefølgen i diagrammet er 1,3,6,10,15,21,28,36,halvcirk. Derefter 2,5,9,14 osv. Så slipper man for at hæfte ende for hver vifte ?
17.06.2013 - 14:20
Martina skrifaði:
Shelley, Fancy Fans Wunderschönes Tuch, gefällt mir sehr.
28.02.2013 - 19:32Elfriede skrifaði:
Bitte wo finde ich die deutsche anleitung für den DROPS Schal in Krausrippen mit Ventilator Muster in "Fabel" ganz lieben dank für ihre hilfe
22.02.2013 - 15:13DROPS Design svaraði:
Liebe Elfriede, entweder gehen Sie über die deutsche Seite oder Sie klicken auf das dropdown-Menü unter den Bild und wählen "Deutsch".
07.04.2013 - 10:52
Maªcarmen skrifaði:
Me gustaria poder hacerme este chal pero no entiendo la hilera 3 haber si alguien sabe como va
25.01.2013 - 17:21DROPS Design svaraði:
Hola! Debes interpretar la instrucción para la HILERA 3 así: 2 pts tejidos juntos de derecho, 9 derechos, * deslizar 1 pt a la ag derecha como si fueses a tejerlo de derecho, 2 pts tejidos juntos de derecho, pasar el pt deslizado por encima, 6 derechos *, repetir de *a* 5 veces en total, 3 pts derechos, 2 pts tejidos juntos de derecho = 49 pts. Saludos afectuosos!
26.01.2013 - 08:42
Elena skrifaði:
Magestuoso .hermosisimo
15.01.2013 - 16:11
Alicja skrifaði:
Molto interessante
12.01.2013 - 10:17
Mªcarmen skrifaði:
Pero que preciosidad yo quiero uno agual haber si soy capaz de hacerlo
11.01.2013 - 18:12
Ann-Marie Gren skrifaði:
Seashell elegance
10.01.2013 - 14:21
Soft mermaid#softmermaidshawl |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal í garðaprjóni úr DROPS Fabel með sólfjaðramynstri
DROPS 148-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið samanstendur af mörgum sólfjöðrum sem eru prjónaðar saman jafnóðum. Byrjað er neðst niðri á sjalinu með sólfjöður 1 – sjá mynsturteikningu A.1. Prjónið síðan sólfjöður 2 eins og útskýrt er frá að neðan. Prjónið síðan sólfjöður 3 o.s. frv. SÓLFJÖÐUR 1: Fitjið upp 61 l á hringprjóna nr 4 með Fabel og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 49 l. UMFERÐ 4-7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 9-10: Prjónið slétt. UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 37 l. UMFERÐ 12-15: Prjónið slétt. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 37 l. UMFERÐ 17-18: Prjónið slétt. UMFERÐ 19: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 29 l. UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt. UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 21 l. UMFERÐ 28-29: Prjónið slétt. UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 21 l. UMFERÐ 31-34: Prjónið slétt. UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, 2 l slétt saman = 17 l. UMFERÐ 36-42: Prjónið slétt. UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 13 l. UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt. UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 9 l. UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt. UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l slétt saman = 5 l. UMFERÐ 56-58: Prjónið slétt. UMFERÐ 59: Prjónið 1 sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl = 3 l UMFERÐ 60: Prjónið slétt. UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið. SÓLFJÖÐUR 2: Fitjið upp 30 l á prjóninn, að auki eru prjónaðar upp 31 l meðfram 1. SÓLFJÖÐUR hægri kantur (séð frá réttu) – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í annarri hverri umferð í garðaprjóni (þ.e.a.s. í hverja rönd í garðaprjóni) og ca 1 l í hverja hálfa umf = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1 en frá 2. umf (þ.e.a.s. byrjið með sl lykkjum frá röngu). SÓLFJÖÐUR 3: Prjónið upp 31 l meðfram 1. SÓLFJÖÐUR vinstri kantur (séð frá réttu), síðan eru fitjaðar upp 30 nýjar l í lok umf = 61 l. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1 en frá 2. umf (þ.e.a.s. byrjið með sl lykkjum frá röngu). SÓLFJÖÐUR 4: Prjónið á sama hátt og SÓLFJÖÐUR 2. SÓLFJÖÐUR 5: Prjónið upp 30 l meðfram 2. SÓLFJÖÐUR vinstri kantur (séð frá réttu), prjónið upp 1 l í hornið efst á SÓLFJÖÐUR 1 og prjónið að lokum upp 30 l meðfram 3. SÓLFJÖÐUR hægri kant = 61 l. Prjónið á sama hátt og SÓLFJÖÐUR 1 en frá 2. umf (þ.e.a.s. byrjið með sl lykkjum frá röngu). SÓLFJÖÐUR 6: Prjónið á sama hátt og SÓLFJÖÐUR 3. Fyrsta, önnur og þriðja umf með sólfjöður hefur verið prjónuð. Haldið svona áfram – sjá mynsturteikningu A.1 fyrir staðsetningu og röð. Þegar prjónaðar hafa verið alls 36 sólfjaðrir eru prjónaðir hálfir hringir á milli hverra sólfjaðra svo að kanturinn efst á sjalinu verði beinn. HÁLFUR HRINGUR Á MILLI SÓLFJAÐRA: Prjónið upp frá réttu, 61 l meðfram kanti á milli 2 sólfjaðra – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í annarri hverri umf í garðaprjóni (þ.e.a.s. í hverri rönd í garðaprjóni) ca 1 l í hverri hálfri umf + 1 l mitt á milli tveggja sólfjaðra í horni efst á sólfjöður frá umf undir. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3. Prjónið slétt. UMFERÐ 4: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið með 1 l sl = 49l. UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 8-14: Prjónið slétt. UMFERÐ 15 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l. UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt. UMFERÐ 18: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 25 l. UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt. UMFERÐ 26: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 13 l. UMFERÐ 27: Prjónið slétt. UMFERÐ 28: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 7 l. UMFERÐ 29: Prjónið slétt. UMFERÐ 30: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 4 l. UMFERÐ 31: Prjónið slétt. UMFERÐ 32: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l, herðið að og festið. HÁLFUR HRINGUR YST Í HÆGRI HLIÐ Á SJALI (séð frá réttu): Fitjið upp 30 l á prjóninn, að auki eru prjónaðar upp 31 l meðfram 29. SÓLFJÖÐUR í hægri kanti (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið á sama hátt og HÁLFUR HRINGUR Á MILLI SÓLFJAÐRA. HÁLFUR HRINGUR YST Í VINSTRI HLIÐ Á SJALI (séð frá réttu): Prjónið upp 31 l meðfram 36. SÓLFJÖÐUR í vinstri kanti (séð frá réttu) og fitjið upp 30 nýjar l í lok umf = 61 l. Prjónið á sama hátt og HÁLFUR HRINGUR Á MILLI SÓLFJAÐRA. KANTUR Í GARÐAPRJÓNI EFST Á SJALI: Fitjið upp 4 l á 1 sokkaprjón nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt (= rétta). Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: * Takið upp síðustu l í garðaprjóni í vinstri hlið á sjali (með rönguna að þér), prjónið fyrstu l á vinstri prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið sl út umf, snúið við, prjónið sl til baka yfir 4 l, snúið við *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í ca hverja l í garðaprjóni meðfram öllum kantinum efst á sjali. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softmermaidshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.