Turid skrifaði:
Jättesnygg och gosig.
17.07.2012 - 19:11
Nadine skrifaði:
Vivement les explications.
07.07.2012 - 18:51
Yolande skrifaði:
Yes moi qui suis une fondue des ponchos!!! j'adore en porter en automne et au printemps alors vivement les explications!!
06.07.2012 - 03:05
Helena skrifaði:
Jättesnygg krage
19.06.2012 - 14:40
Anne skrifaði:
Heeft dit model mouwen? Ziet er goed uit.
17.06.2012 - 22:08
Siv Jansson skrifaði:
Den var tuff. Jättehärlig till vintern.
07.06.2012 - 20:57
José Serné skrifaði:
Superleuk!
31.05.2012 - 22:11Rossana Astrada skrifaði:
Hermoso!! sencillo y elegante a la vez!
31.05.2012 - 17:34Marcia Martha Do Valle Pereira skrifaði:
Este tambem merece meu voto!
31.05.2012 - 16:19
Wendy Bishop skrifaði:
Super Flot... - er vild med jeres ponchoer og sjaler
31.05.2012 - 15:07
Moon River#moonriverponcho |
|
|
|
Prjónað poncho úr DROPS Vienna eða DROPS Melody og DROPS Snow. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA 1 (á við um fram- og bakstykki þegar prjónað er fram og til baka): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkað er um 1 l í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Prjónið svona þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚRTAKA 2 (á við um bakstykki og poncho þegar prjónað er í hring): Fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerkið), prjónið næstu 2 l slétt saman. ÚRTAKA 3 (á við um garðaprjón með Snow): Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. MÆLING: Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt, það er mikilvægt svo ekki strekkist á stykkinu þegar mælt er. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Síðan er stykkið sett saman og prjónað í hring á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-70-76 l á hringprjóna nr 6 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 6-6-7 cm (1. umf = rétta). Skiptið yfir í Vienna eða Melody og hringprjóna nr 7, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA 1 = 2 l færri. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf. Þegar stykkið mælist 20-21-22 cm eru allar l settar á þráð. BAKSTYKKI: Fitjið upp 158-176-194 l á hringprjóna nr 6 með Snow. Prjónið garðaprjón 6-6-7 cm (1. umf = rétta). Skiptið nú yfir í Vienna eða Melody og hringprjóna nr 7, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Setjið 1 prjónamerki 47-53-59 l inn frá hvorri hlið = 64-70-76 l milli prjónamerkja, látið þau fylgja áfram með í stykkinu. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki og hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA 1 og 2 = 6 l færri. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf. Haldið áfram þar til stykkið mælist 20-21-22 cm – ATH: Prjónið jafn margar umf eins og á framstykki. PONCHO: Setjið allar l á sama prjón, setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu milli fram- og bakstykkis = alls 4 prjónamerki (meðtalin 2 prjónamerki á bakstykki frá því áður), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú í hring í sléttprjóni yfir allar l – JAFNFRAMT er úrtöku haldið áfram hvoru megin við hvert prjónamerki í 4. hverri umf þar til lykkjum hefur verið fækkað 11 sinnum (talið frá 1. úrtöku), nú er lykkjum fækkað í annarri hverri umf 0-2-4 sinnum = 134-142-150 l eftir. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48 cm (nú á öll úrtaka að vera lokið). Í næstu umf er skipt yfir í Snow og hringprjóna nr 6, prjónið nú áfram GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka. Prjónið 4 umf garðaprjón, síðan er fækkað um 20 l – LESIÐ ÚRTAKA 3 – jafnt yfir í næstu umf. Endurtakið úrtöku um 20 l jafnt yfir í umf þegar stykkið mælist 50-52-54 cm, fækkið nú um 32-34-36 l jafnt yfir í umf þegar stykkið mælist 55-57-59 cm = 62-68-74 l eftir. Haldið áfram þar til stykkið mælist 58-61-64 cm. Stykkið er nú mælt héðan. KRAGI: = 62-68-74 l. Haldið áfram hringinn í garðaprjóni þar til kraginn mælist 7 cm. Í næstu umf er aukið út um 8 l – LESIÐ ÚTAUKNING – jafnt yfir í umf. Endurtakið útaukningu með 8 l með 7 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (alls 3 sinnum), aukið nú út um 8-4-2 l jafnt yfir þegar kraginn mælist 28 cm = 94-96-100 l á prjóni. Haldið áfram þar til kraginn mælist 34 cm, fellið af allar l. KANTUR AÐ FRAMAN: Með Snow og hringprjóna nr 6, prjónið upp frá réttu 26-28-30 l innan við 1 kantlykkju meðfram opi á framstykki (ekki yfir l á uppfitjunarkanti). Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka, fellið laust af allar l. Prjónið upp á sama hátt meðfram opi á bakstykki. Setjið kant á framstykki yfir kant á bakstykki, saumið niður skammhliðar efst á opinu með nokkrum smáum sporum. Endurtakið eins meðfram opi í hinni hliðinni á poncho. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonriverponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.