Eva skrifaði:
Vil veldig gjærne få oppskrift på dette modell !!
11.06.2012 - 18:37
Sarah Helene Seufert skrifaði:
A versatile knit vest-- color-wise & style-wise. Seems like a go-anywhere piece--PERFECT!
11.06.2012 - 01:03Andrea skrifaði:
Einfacher teil und vielseitig zu kombinieren. super über diverse shirts zu tragen.
10.06.2012 - 21:18
FY skrifaði:
Modèle qui me semble fait pour les débutantes comme moi BRAVO
10.06.2012 - 20:51
Marie Danneels skrifaði:
Deze brei ik ZEKER voor mijn schoondochter. Jong en zeer vrouwelijk !
02.06.2012 - 09:22
Kat skrifaði:
Beste fra denne sesongen :)
01.06.2012 - 13:41
Eva skrifaði:
Den skal jeg strikke !!
31.05.2012 - 19:32
Heidi#heidivest |
||||
|
||||
Prjónað vesti úr DROPS Puddel í garðaprjóni með stuttum umferðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-26 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. STUTTAR UMFERÐIR-1: Prjónaðar eru stuttar umferðir til að fá bogalaga form á stykkið, prjónið þannig: UMFERÐ 1 og 2: Prjónið 26-28-30-32-36-40 l, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 3 og 4: Prjónið 24-26-28-30-34-38 l, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 5 og 6: Prjónið 22-24-26-28-32-36 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram svona með að prjóna 2 l færri í hvert sinn, þar til einungis 10 l eru eftir sem ekki hefur verið prjónað yfir, prjónið 1 sinni fram og til baka yfir þessar l. Prjónið nú 2 umf yfir allar l. Nú hafa verið prjónaðar 20-22-24-26-30-34 l með garðaprjóni í ytri kanti og 2 umf garðaprjón innst. Endurtakið frá umf 1 alls 3 sinnum. Boginn mælist nú ca 30-33-36-39-45-51 cm yst og 2 cm innst. STUTTAR UMFERÐIR-2: Prjónaðar eru stuttar umferðri til að fá bogalaga form á stykkið, prjónið þannig: UMFERÐ 1 og 2: Prjónið 26-27-27-27-28-30 l, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 3 og 4: Prjónið 24-25-25-25-26-28 l, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 5 og 6: Prjónið 22-23-23-23-24-26 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna yfir 2 l færri í hvert sinn, þar til einungis 10-11-11-11-10-10 l eru eftir sem ekki hefur verið prjónað yfir, prjónið 1 sinni fram og til baka yfir þessar l. Prjónið nú 2 umf yfir allar l. Nú hafa verið prjónaðar 20-20-20-20-22-24 umf í garðaprjóni í ytri kanti og 2 umf í garðaprjóni innst. Endurtakið frá umf 1 alls 3 sinnum. Boginn mælist nú ca 30-30-30-30-33-36 cm yst og 2 cm innst. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI. Fitjið upp 36-40-44-50-56-62 l á prjóna nr 7 með Puddel og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm, er aukið út um 1 l á hvorri hlið, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12 cm = 40-44-48-54-60-66 l. Þegar stykkið mælist 20 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf á hvorri hlið þannig: Prjónið 3 l 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 l 1-1-0-1-2-3 sinnum og 1 l 0-1-2-2-3-3 sinnum = 36-38-38-40-40-42 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-39-40-41 cm, fellið af miðju 8-8-8-10-10-10 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsi = 13-14-14-14-14-15 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 37-38-39-41-42-43 cm. HÆGRA KANTSTYKKI: ALLAR MÆLINGAR ERU GERÐAR Í ÞEIRRI HLIÐ SEM ER STYTTRI! Fitjið upp 28-30-32-34-38-42 l á prjóna nr 7 með Puddel. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 16-18-20-23-26-29 cm, prjónið nú SNÚNINGUR-1 frá réttu – sjá skýringu að ofan. Þegar 3 mynstureiningar með stuttum umferðum eru prjónaðar er haldið áfram í garðaprjón yfir allar l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 6 og 12 cm, er aukið út um 1 l í styttri hliðinni=30-32-34-36-40-44 l. Þegar stykkið mælist 20 cm er fellt af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki (fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf á styttri hliðinni) = 28-29-29-29-30-32 l. Haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist 35-36-37-39-40-41 cm. Nú eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR-2. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar mælist stykkið ca 37-38-39-41-42-43 cm á styttri hliðinni. Í næstu umf frá röngu er fellt af fyrstu 13-14-14-14-14-15 l fyrir öxl, prjónið út umf = 15-15-15-15-16-17 l eftir fyrir kraga. Prjónið garðaprjón þar til kraginn mælist ca 5-5-5-6-6-6 cm (mælt frá öxl). Fellið af. VINSTRA KANTSTYKKI. Prjónið á sama hátt og hægra kanstkykki, en snúið röngunni út fyrir frágang. FRÁGANGUR: Allir saumar eru saumaðir kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman uppfitjunarkant á kantstykkjum við miðju að aftan og saumið kantstykki við bakstykki að neðan. Saumið axlarsauma og hliðarsauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið hann við hálsmálið. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #heidivest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 4 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.