Veridiana skrifaði:
É muito lindo. Por favor traduzam a receita para o idioma portuguêObrigada
10.06.2012 - 13:09
THERESE skrifaði:
Moi aussi, je l'aime beaucoup. En plus, ça doit aller à toute vitesse avec le big fabel!
07.06.2012 - 10:49
Lena skrifaði:
En rigtig frisk trøje det er lige mig må eje den
06.06.2012 - 15:37
GOEMAERE Elsa skrifaði:
Voilà un gilet "zig-zag" qui va faire des ravages!! j'aime beaucoup.
05.06.2012 - 19:24
Elke skrifaði:
Wunderschönes Muster!
04.06.2012 - 21:54
Yvonne Ström skrifaði:
Snygg, svart och vit
03.06.2012 - 20:28
Taru Timlin skrifaði:
Todella upea!
02.06.2012 - 11:33
Elisabeth skrifaði:
Rigtig flot
01.06.2012 - 22:43
Jolanda skrifaði:
Super!
01.06.2012 - 10:15
Renée Rhodin skrifaði:
Beautyful=)
01.06.2012 - 07:53
Salt and Pepper#saltandpeppercardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Big-Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel með stuttum ermum, röndum og öldumynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 140-27 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 fyrir öldumynstur og mynsturteikningu A-2 fyrir rendur. Mynsturteikning A-1 sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu, 1 mynstureining = 19 l á breiddina. Örvar í mynstri A-1 eiga við um vinstri kant að framan, sjá útskýringu í texta. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er hægra framstykkið prjónað og fitjað er upp fyrir ermum, síðan er vinstra framstykki prjónað á sama hátt. Síðan eru þessi tvö stykki sett saman og bakstykkið prjónað niður. Til að fá pláss fyrir allar l eru stykkin prjónuð fram og til baka á hringprjóna HÆGRA FRAMSTYKKI Fitjið LAUST upp 32-41-51-60 l á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur. Prjónið (1. umf = rétta) þannig: * Prjónið 1 l sl við miðju að framan, umf 1 með mynstri A-1 yfir 29-38-48-57 l (þ.e.a.s. 1½-2-2½-3 mynstureiningar) og endið með 2 l sl í hliðum. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram með öldumynstur eftir A-1 (næst síðasta l í hlið er prjónuð eins og fyrsta l í A-1), 1 l garðaprjón í hvorri hlið og rendur eftir A-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42 cm í öllum stærðum, fitjið upp 37 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 69-78-88-97 l. Nýju l eru prjónaðar inn í A-1, en þær 8 síðustu l á ermi, eru prjónaðar í garðaprjóni jafnframt þar sem þær eru prjónaðar inn í A-1 (þ.e.a.s. að það verða nú 3½-4-4½-5 mynstureiningar í A-1 + 1 l í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist alls 64-66-68-70 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið (= miðja á öxl), merkið í randarmynstri (A-2) hversu langt þú ert komin. Prjónið nú bakstykki ofan frá og niður – nú verður að prjóna rendur í gagnstæða átt, þ.e.a.s. frá því þar sem þú er komin í mynstri og niður svo að þær passi á móti hver annarri á hliðarsaumum. Prjónið 2 cm, endið eftir 1 umf frá röngu, geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og það hægra, nema spegilmynd – þ.e.a.s. að prjónað er þannig (1. umf = rétta): Prjónið 1 l garðaprjón, 1 l sléttprjón, síðan A-1 yfir 28-37-47-56 l – byrjið við ör í þinni stærð í mynstri (stærð XS/S og XL/XXL byrjar með 2 l sl saman, stærð M/L og XXXL byrjar með 1 uppslætti og síðan 1 l sl), endið með 1 l sléttprjóni og 1 l garðaprjóni við miðju að framan. Þegar fitja á upp l fyrir ermi, verður það að gerast í lok umf frá röngu. Sjáið til þess að stykkið endi á sama stað í mynstri eins og hægra framstykki. BAKSTYKKI: Prjónið l af vinstra framstykki eins og áður eftir A-1 og A-2, fitjið síðan upp 16 nýjar l aftan á hálsi, og prjónið inn l af hægra framstykki á prjóninn eins og áður eftir A-1 og A-2 = 154-172-192-210 l. Prjónið nú áfram með mynstri með síðustu 8 l í hvorri hlið í garðaprjóni – það eru nú 8-9-10-11 mynstureiningar af A-1 (í stærð XS/S og XL/XXL verður að auki 1 l aukalega síðust í hvorri hlið, í stærð M/L og XXXL verður að auki 1 l aukalega einungis í annarri hliðinni). Þegar stykkið mælist ca 22-24-26-28 cm (stillið af svo að það verða prjónaðar jafn margar rendur frá prjónamerki á öxl á bakstykki eins og á framstykki þar sem fitjaðar voru upp l fyrir ermi), fellið af 37 l í byrjun á næstu 2 umf = 80-98-118-136 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og 1 l í sléttprjóni innan við þessa l í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 62-64-66-68 cm frá prjónamerki á öxl (stillið af eftir 1 umf frá röngu og í sömu rönd í A-2 eins og byrjun á framstykki), skiptið yfir í svartur. * Prjónið umf 1 með A-1 einu sinni, síðan sl til baka frá röngu yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fellið síðan af með sl frá réttu. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxl og saumið hliðarsauma og sauma undir handveg saman innan við 1 kantlykkju. KANTUR AÐ FRAMAN + KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp með litnum svartur á hringprjóna nr 4 innan við 1 kantlykkju: 290-298-306-314 l upp meðfram hægri kanti að framan, aftan við háls og niður meðfram vinstri kanti að framan (það eiga að vera ca 21 l á 10 cm). Prjónið stroff frá röngu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l br og 2 l garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, aukið út um 1 l í hverja og eina af þeim miðju 24 brugðnu mynstureiningunum á hálsi (séð frá réttu) svo að það verða 3 l br og 2 l sl = 314-322-330-338 l. Prjónið nú áfram með sl yfir sl og br yfir br með 2 l garðaprjóni í hvorri hlið þar til kanturinn mælist 10-10-11-12 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #saltandpeppercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.