Petra Sickert skrifaði:
Sehr geehrte Damen und Herren, mein Pullover ist fertig. Leider bekomme ich keine Verschlüsse wie abgebildet. Können Sie mir weiterhelfen, wo diese erhältlich sind und wie die Bezeichnung lautet. Bei Drops habe ich sie nicht bekommen - leider. Mit freundlichen Grüßen P. Sickert
24.08.2013 - 19:53DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, leider haben wir diese Hakenverschlüsse tatsächlich derzeit nicht im Sortiment. Sie müssten sie in einem Knopf-Fachgeschäft besorgen.
26.08.2013 - 08:35
Dagny Pedersen skrifaði:
Jeg er skuffet over mængden af garn, som blev anbefalet.Min strikkefasthed passede, alligevel måtte jeg have 1 ngl. garn mere i hver farve, som næsten blev brugt. mvh. Dagny
04.03.2013 - 16:18
Rosaria skrifaði:
Mi piacerebbe molto fare questo modello ma non riesco a visualizzare i diagrammi
27.08.2012 - 17:10DROPS Design svaraði:
Ora dovrebbe essere a posto. Grazie
27.08.2012 - 22:45
Helena Filipová skrifaði:
U tohoto návodu mi chybí VZOR: Viz schéma M. 1 až M. 4
19.02.2012 - 09:22
DROPS Design skrifaði:
Hola Eduardo! Ya puedes ver la traducción del texto de los diagramas. Saludos!
07.02.2012 - 05:02Eduardo Tejada skrifaði:
No puedo abrir los diagramas del modelo 0-811 me los podrán enviar en español? Gracias su sitio es fabuloso
07.02.2012 - 01:17
Anette Nim skrifaði:
Jeg opdagede desværre for sent at der er fejl i forklaringen til diagrammet. Farverne er byttet rundt, så baggrunden bliver lysebrun meleret. Meget ærgerligt.
31.01.2012 - 00:07
DROPS Design NL skrifaði:
Hoi Netty. De sluiting is ongeveer 6 cm breed - een beetje meer dan ik eerst dacht ;o). Ik voeg het toe aan het patroon.
19.01.2012 - 10:39
DROPS Design NL skrifaði:
Wij zullen proberen achteraan te komen welke maat het is, maar ga ik vanuit de foto, dan denk ik rond de 2,5-3 cm breed.
16.01.2012 - 11:12
Tante Janna's Atelier skrifaði:
Welke maat moet de zilveren haakjes / sluiting zijn? Wel handig om te weten. Groetjes Netty
13.01.2012 - 14:06
Leifur#leifursweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma með norrænu mynstri. Stærð S – XXXL
DROPS Extra 0-811 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 250-272-294-326-348-376 lykkjur á hringprjón 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 60-62-64-76-78-86 lykkjur jafnt yfir = 190-210-230-250-270-290 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 95-105-115-125-135-145 lykkjur (þessi merki merkja hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni og M.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 41-41-44½-48-48-51½ cm – stillið af eftir heila eða hálfa mynstureiningu M.1 á hæðina, prjónið M.2, haldið síðan áfram með M.3 að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm skiptist stykkið við merkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI. = 95-105-115-125-135-145 lykkjur. Haldið áfram með M.3 JANFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar / breiða öxl þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 7-4-2-1-0-0 lykkjur 1 sinni = 117-121-127-135-143-153 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Nú eru felldar af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 41-43-45-49-52-57 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram og fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. FRAMSTYKKI: = 95-105-115-125-135-145 lykkjur. Haldið áfram með M.3 JAFNFRAMT því sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið á sama hátt og á bakstykki = 117-121-127-135-143-153 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm fellið af miðju 11 lykkjur mitt framan í opi í hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm. Nú er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá miðju að framan þannig: 5-5-6-6-7-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 41-43-45-49-52-57 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram og fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Fitjið upp 62-64-66-68-70-72 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum koksgrár. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 11-13-13-15-15-17 lykkjur jafnt yfir = 51-51-53-53-55-55 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og haldið áfram í sléttprjóni og M.4 (lykkja með ör í mynsturteikningu = mitt á ermi – teljið út að hlið). Eftir M.4 er M.3 prjónað að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-7-7-9-9-9 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Endurtakið útaukningu alls 13-15-16-18-19-21 sinnum í stærð S: Í 10. hverri umferð, stærð M og L: Í 8. hverri umferð, stærð XL: Í 6. hverri umferð, stærð XXL: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð og stærð XXXL: Í 5. hverri umferð = 77-81-85-89-93-97 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-51-51-50-49-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og stykkið er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna. Fellið síðan af 3 lykkjur í byrjun á næstu 4 umferðum = 59-63-67-71-75-79 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist ca 53-53-53-52-51-49 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. OP Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 30 lykkjur á prjón 3 með litnum koksgrár meðfram opi í hálsmáli í hægri hlið. Prjónið sléttprjón í 2½ cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og haldið áfram í sléttprjóni í 2½ cm. Fellið laust af. Brjótið kantinn tvöfaldan að röngu og saumið niður á bakhlið á stykki með smáu lausu spori. Endurtakið meðfram klauf í vinstri hlið. Leggið kantana að hvorum öðrum, kant í kant og saumið niður í botni á klauf með lykkjuspori frá réttu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 90 til 100 lykkjur í kringum hálsmál (einnig yfir kanta) á hringprjón 3 með litnum koksgrár. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan sem prjónuð er slétt í hverri umferð. Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 2-2½ cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu – skiptið yfir í litinn rauður. Prjónið 3 umferðir slétt. Skiptið til baka yfir í litinn koksgrár og haldið áfram í sléttprjóni í 2½ cm, fellið laust af. Brjótið kant í hálsmáli að röngu og saumið niður á bakhlið við hálsmál með smáu lausum sporum. Saumið krækjur í hálsmálið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #leifursweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-811
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.