Carmen skrifaði:
Hallo Habe fuer Groesse 56/62 100 gr Wolle also 2 mal Baby Merino gekauft. Jetzt habe ich zu wenig? Laut Strickanleitung...."mit Krausrippe weiter stricken bis Arbeit 36cm misst"...36 cm von wo weg gemessen? Von Markierung am Buendchen oder messe ich ganze Arbeit Zweite Frage: die Erhoehung folgt auf diese 37 cm... oder? Danke fuer die Hilfe!!
20.12.2013 - 20:21
Carmen skrifaði:
Hallo Habe fuer Groesse 56/62 100 gr Wolle also 2 mal Baby Merino gekauft. Jetzt habe ich zu wenig? Laut Strickanleitung...."mit Krausrippe weiter stricken bis Arbeit 36cm misst"...36 cm von wo weg gemessen? Von Markierung am Buendchen oder messe ich ganze Arbeit Zweite Frage: die Erhoehung folgt auf diese 37 cm... oder? Danke fuer die Hilfe!!
20.12.2013 - 20:20
Alba Bordone skrifaði:
E' possibile avere delle descrizioni più semplici per queste ghettine? Sono una principiante. Non posso rivolgermi al negoziante, perchè è stata acquistata da mia figlia che vive a Oslo. Nella mia città (Siracusa, Sicilia) non ci sono rivenditori, purtroppo. Aiutatemi! Grazie!
06.10.2013 - 03:39DROPS Design svaraði:
Buonasera Alba. Per riuscire ad aiutarla ci sarebbe utile sapere quale punto esatto delle spiegazioni non le sono chiare. Può trovare aiuto anche presso il nostro forum, oppure rivolgendosi al seguendo indirizzo mail: italy@garnstudio.com. Grazie e buon lavoro!
06.10.2013 - 17:39
Heike Rizqi skrifaði:
Guten tag. ich bin jetzt bei den Erhöhungen angekommen, aber ich verstehe nicht wie es weitergehen soll? was meinen sie mit 11 m re,arbeit drehen 1 m abh. und Faden anziehen...wie kommen ich dann auf die nächsten 22 m. das versteh ich nicht. ich hoffe, Sie können mir weiter helfen. MfG
03.07.2013 - 23:55DROPS Design svaraði:
Liebe Heike, hier sehen Sie, wie man verkürzte R strickt: https://www.garnstudio.com/lang/de/video.php?id=66
04.07.2013 - 21:55
Marie Danneels skrifaði:
Vriendelijk dank om eens zo'n een patroontje te maken, gebreid op 2 naalden. Groeten, Marie
05.04.2013 - 12:55
Honey Suckle Tights#honeysuckletights |
|
|
|
Prjónaðar buxur fyrir börn í garðaprjóni úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 21-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í garðarpjóni í 2 hlutum neðan frá og upp. HÆGRI SKÁLM: Fitjið upp 62-66-70 (78-82) l (meðtalin er 1 kantlykkja á hvorri hlið) á prjóna nr 2,5 með Baby Merino. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5-5-5 (6-6) cm er sett 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stroffið mælist 5-5-5 (6-6) cm frá prjónamerki er skipt yfir í prjóna nr 3. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 16-16-16 (18-18) l jafnt yfir = 46-50-54 (60-64) l. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 1½-1½-2 (2½-3) cm millibili alls 7-8-8 (8-9) sinnum = 60-66-70 (76-82) l. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-34) cm frá prjónamerki eru felldar af 2-2-2 (3-3) l í byrjun á næstu 2 umf = 56-62-66 (70-76) l. Fellið nú af 1 l í byrjun umf frá réttu (= miðja að framan) – endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 0-1-3 (5-7) sinnum til viðbótar = 55-60-62 (64-68) l. Haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist 36-42-46 (52-58) cm frá prjónamerki – nú er prjónuð upphækkun frá miðju að aftan (þ.e.a.s. prjónaðar eru fleiri umf yfir l við miðju aftan á buxunum en að framan) þannig – byrjun umferðar er frá röngu: Prjónið 11-12-12 (12-13) l sl, snúið við, takið fyrstu l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið slétt til baka, prjónið 22-24-24 (24-26) l sl, snúið við, takið fyrstu l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið slétt til baka, prjónið 33-36-37 (37-40) l sl, snúið við, takið fyrstu l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið slétt til baka, prjónið 44-48-50 (54-54)l sl, snúið við, takið fyrstu l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið slétt til baka, prjónið 2 umf slétt yfir allar l. Prjónið sléttprjón yfir allar l í 2 cm fyrir fald áður en fellt er af. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri skálm, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið sauminn að innanverðu á fæti innan við 1 kantlykkju – ATH: Neðstu 5-5-5 (6-6) cm eru saumaðir með rönguna út svo að saumurinn sjáist ekki við uppábrot. Saumið buxurnar saman alla leið frá miðju að framan að miðju að aftan – saumið kant í kant yst í lykkjubogann. Brjótið faldinn efst tvöfaldan að röngu og saumið niður með smáu spori – skiljið eftir smá gat til þess að þræða teygju í gegn og saumið svo opið saman í lokin. Brjótið uppá 5-5-5 (6-6) cm neðst á hvorri skálm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #honeysuckletights eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.