Gerda skrifaði:
STOR BLOMRUTA Varv 1: 3 luftmaskor + 16 stolpar?? Så man börjar i princip en fyrkant med vad som räknas som 17 stolpar?!?! Stämmer detta verkligen? Tack för fint mönster dock!
02.03.2021 - 01:15DROPS Design svaraði:
Hei Gerda. Grytekluten med en stor blomsterrute hekles ikke som en firkant før du skal hekle 6. omgang. Mens gryteklut med 1 stor rute og gryteklut med 4 små ruter hekles som en firkant fra 1. omgang. mvn DROPS design
10.03.2021 - 11:57
Tarah skrifaði:
Hi there. I'm trying to buy the yarn for this and another pattern, but two of the yarns are no longer for sale. Can you give a sustitute for Paris 42 Army and 45 Dusty Orange?
18.05.2020 - 06:05DROPS Design svaraði:
Dear Tarah, you are welcome to contact your DROPS store for any assistance choosing colours. Happy crocheting!
18.05.2020 - 08:47
Anneke skrifaði:
Ben het grote vierkant aan het haken,vraag mij alleen af of je na de 6e toer niet het werk meer hoeft te keren,ik kom er niet helemaal uit,misschien kunt U mij helpen.Alvast dank
16.08.2019 - 13:01DROPS Design svaraði:
Dag Anneke,
De 6e toer haak je als toer 5 (met nog 1 stokjes grope tussen de hoeken.), dus dat betekent dat je deze toer ook moet keren.
01.09.2019 - 14:33
Silvia Montorsi skrifaði:
Posso chiedere nelle istruzioni cosa significano gli asterischi? C'è qualche indicazione da qualche parte? grazie
05.06.2015 - 16:04DROPS Design svaraði:
Buongiorno Silvia. Gli asterischi indicano alcune istruzioni da ripetere il numero di volte indicato. P.es, in questo modello, quando trova scritto: * 3 m.a nell’anello, 1 cat *, ripetere da *-* in totale 3 volte, deve ripetere le istruzioni tra gli asterischi (quindi 3 m.a nell’anello, 1 cat) tre volte. Quindi: 3 m.a, 1 cat, 3 m.a, 1 cat, 3 m.a, 1 cat e poi prosegue come indicato nelle istruzioni. Buon lavoro!
05.06.2015 - 16:49
Eva skrifaði:
Tak, men så kommer et par grydelapper til at veje op til 300 gr, og det kan næppe være rigtigt?
28.10.2013 - 19:23DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Naturligvis bruger du mindre af nogle farver end andre, men du kan kun minimum köbe 50 gr af hver farve og jeg kan desvaerre ikke fortaelle dig hvor mange gram af hver farve der bliver brugt per grydelap. God fornöjelse :-)
29.10.2013 - 14:59
Eva skrifaði:
Kan I skrive, hvor meget garn der skal bruges til alle tre par grydelapper?
28.10.2013 - 09:48DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Der staar hvor meget der skal bruges per par grydelap. Du kan sagtens regne med det.
28.10.2013 - 18:58
Ludivine skrifaði:
Bonjour et merci de votre réponse ! Effectivement, c'est au fil de mon travail que j'ai compris que les 15 ms formaient l'attache :-) Ces maniques sont vraiment mignonnes et décoratives !
26.09.2013 - 14:10
Ludivine skrifaði:
Pouvez-vous me dire s'il vous plaît où et comment fait on les attaches de ces maniques ?? Je ne vois pas l'explication pour crocheter les attaches ? Merci de votre aide.
21.09.2013 - 22:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Ludivine, l'attache des maniques se fait à l'avant dernier tour (arceau de 15 ml) puis au dernier tour, on crochète 15 ms dans cet arceau. Bon crochet!
23.09.2013 - 09:09
Sollini skrifaði:
Kan dere legge ut navn og nummer på de riktige fargene, og ikke bare den i pastell?
12.08.2013 - 16:24Giselle skrifaði:
Hola soy de argentina me fascina su pagina no me decido q hacer porque me encanta todo... lastima q no puedo conseguir sus lanas. puedo dar una sugerencia? seria buenisimo q dieran un grafico de puntos principalmente para ganchillo, para mi es mas facil leerlo bueno me despido los felicito por el trabajo q realizan saludos cordiales
27.01.2013 - 18:02DROPS Design svaraði:
Querida Giselle, muchas gracias por tus conceptos. Para comprar nuestras lanas, debajo de la ventana de “Minoristas” puedes elegir la opción que te sea más conveniente. En cuanto a los gráficos en ganchillo, no todos los patrones lo incluyen, mas tenemos a tu disposición una enorme selección de videos tutoriales que te serán de gran ayuda en la realización de tus proyectos. Cariños!
28.01.2013 - 02:59
DROPS Extra 0-697 |
|
![]() |
![]() |
Heklaðir pottaleppar með ferningum úr DROPS Paris.
DROPS Extra 0-697 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá miðju og út. POTTALEPPUR – MEÐ 1 STÓRUM FERNINGI: Heklið 5 loftlykkjur með litnum ferskja með heklunál 4 og tengið í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur, 1 stuðull um hringinn, 1 loftlykkja, * 3 stuðlar um hringinn, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn vanillugulur. 3. loftlykkjur, 3 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðla um sama loftlykkjuboga, * 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga *, endurakið frá *-* alls 3 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn ljós gulur. 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga, * 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn natur. Heklið eins og umferð 3, með 1 stuðlahóp fleiri á milli horna, snúið stykkinu. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn ljós mynta. Heklið eins og umferð 3 með 1 stuðlahóp fleiri á milli horna, snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Skiptið yfir í litinn ljós turkos. Heklið eins og umferð 5 með 1 stuðlahóp fleiri á milli horna. UMFERÐ 7: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hvern af næstu 9 stuðlum, * 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hvern af næstu 18 stuðlum, * endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hvern af næstu 9 stuðlum, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 8: Heklið eins og umferð 7, með 1 fastalykkju fleiri á milli hverra horna. UMFERÐ 9: Skiptið yfir í litinn ljós gulur. 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 11 fastalykkjur, * 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hverja af næstu 22 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga, 15 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 11 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 1. Loftlykkju. UMFERÐ 10: Skiptið yfir í litinn vanillugulur. 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 fastalykkjur, * 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hverja af næstu 24 fastalykkjur, * endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 15 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 12 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. -------------------------------------------------------- POTTALEPPUR – STÓR BLÓMAFERNINGUR: Heklið 6 loftlykkjur með litnum ljós mynta með heklunál 4 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur, 16 stuðlar um loftlykkjuhringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), 1 stuðull í sömu loftlykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 3 lykkjur = 1 lykkja á heklunálinni (= 1 stuðlahópur), * 1 loftlykkja, 1 stuðull í næsta stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), 1 stuðull í sama stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið þráðinn í gegnum 3 lykkju = 1 lykkja á heklunálinni (= 1 stuðlahópur)*, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju í 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar = 16 stuðlahópar. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn vanillugulur. 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar um næstu loftlykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í 1 loftlykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sömu loftlykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju, 7 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sömu loftlykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar. (Það eru fjórir 7-loftlykkjubogar sem myndar hornið). UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn ljós bleikur. 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í sömu loftlykkju, * hoppið yfir 3-loftlykkjuboga, í næstu 3- loftlykkjuboga er heklað þannig: 4 stuðlar, 1 loftlykkja, 4 stuðlar. Hoppið yfir næstu 3-loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, hoppið yfir næstu 3-loftlykkjuboga, í 7-loftlykkjuboga er heklað þannig: 6 stuðlar, 2 loftlykkjur, 6 stuðlar. Hoppið yfir næstu 3-loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar. UMFERÐ 6: Skiptið yfir í litinn natur. 3 loftlykkjur, * 1 stuðull í 1. fastalykkju frá fyrri umferð, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkju í 8-stuðlahópinn, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 5 loftlykkjur, í hornið (2-loftlykkjubogi) er heklað þannig: 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja, 5 loftlykkjur *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. UMFERÐ 7: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar í 3-loftlykkjuboga, 4 stuðlar í næsta 3-loftlykkjuboga, 5 stuðlar í 5-loftlykkjuboga, í hornið (3-loftlykkjubogi) er heklað þannig: 3 stuðlar, 2 loftlykkjur, 3 stuðlar, 5 stuðlar í næsta 5-loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 4 stuðlar í 2 næstu 3-loftlykkjuboga, 5 stuðlar í næsta 5-loftlykkjuboga, í hornið (3-loftlykkjubogi) heklið þannig: 3 stuðlar, 15 loftlykkjur, 3 stuðlar, 5 stuðlar í næsta 5-loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. UMFERÐ 8: Skiptið yfir í litinn ljós turkos. 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hvern af næstu 16 stuðlum, * í horni (2-loftboga) er heklað þannig: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja, 1 fastalykkja í næstu 24 stuðla *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 15 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 8 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið þræðina. -------------------------------------------------------- POTTALEPPUR – MEÐ 4 LITLUM FERNINGUM: LITIR Á FERNINGUM: FERNINGUR 1: UMFERÐ 1: ljós bleikur UMFERÐ 2: natur UMFERÐ 3: vanillugulur FERNINGUR 2: UMFERÐ 1: ljós mynta UMFERÐ 2: natur UMFERÐ 3: ljós turkos FERNINGUR 3: UMFERÐ 1: natur UMFERÐ 2. ljós turkos UMFERÐ 3: ljós bleikur FERNINGUR 4: UMFERÐ 1: vanillugulur UMFERÐ 2: ljós bleikur UMFERÐ 3: ljós mynta UMFERÐ 4 er hekluð í litnum natur í öllum ferningum. -------------------------------------------------------- POTTALEPPUR – MEÐ 4 LITLUM FERNINGUM: Heklaðir eru 4 litlir ferningar sem saumaðir eru saman í lokin – lesið LITIR Á FERNINGUM að ofan! FERNINGUR: Heklið 5 loftlykkjur með DROPS Paris með heklunál 4 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um hringinn, 1 loftlykkja, * 3 stuðlar um hringinn, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. Skiptið um lit. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu! UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar í sama loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar, snúið stykkinu. Skiptið um lit. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga, * 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar. Skiptið um lit. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hvern af fyrstu 5 stuðlum, * 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í hvern af næstu 9 stuðlum *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum. Síðan er heklaður ferningur 1, 2 og 3 þannig: 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í 4 síðustu stuðla, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar. Ferningur 4 er heklaður þannig: 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 15 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 1 fastalykkja í síðustu 4 stuðla, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar. FRÁGANGUR: Saumið 2 og 2 ferninga saman með fastalykkjur við fastalykkjur, fyrst á lengdina og síðan á breiddina (15 loftlykkjubogar á ferningi 4 að toppi). Síðan er hekluð ein umferð í kringum allan pottaleppinn með litnum natur með heklunál 5, með byrjun í 1. fastalykkju eftir 15 loftlykkjuboga á ferningini 4 þannig: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 22 fastalykkjur, 1 fastalykkja í loftlykkjuboga (horn), 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í sama loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 22 fastalykkjur, 15 fastalykkjur um 15-loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun umferðar. Klippið og festið þræðina. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-697
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.