30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku ullargarni
DROPS Snow
100% Wełna
frá 385.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
Velja stærð:
DROPS Extra 0-547

#sweetchickset

DROPS Design: Mynstur nr EE-245
--------------------------------------------------------

PONCHO / AXLASKJÓL:
Stærð:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

GARN:
DROPS SNOW frá Garnstudio
200-250-250 gr litur nr 24, gulur

HÚFA:
Höfuðmál: ca 54-56-58 cm

GARN:
DROPS Snow frá Garnstudio
150-150-200 gr litur nr 24, gulur

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 8.
DROPS PRJÓNAR NR 7.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með garðaprjóni með prjóna nr 8 = 10 x 10 cm.
12 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með garðaprjóni með prjóna nr 7 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

TÖLUR:
DROPS TRÉTALA NR 511: 5-5-6 stykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Snow
100% Wełna
frá 385.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1540.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR PRJÓN (á við um poncho/axlaskjól):
Í hvert skipti sem snúið er við mitt í umferð er fyrstu lykkjunni lyft af prjóni eins og prjóna eigi slétt, hert á þræði og prjónað til baka, þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í öllum snúningunum.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 5-5-6 hnappagötum í hægri kanti að framan frá röngu þannig: 1 hnappagat = Prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn.Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) þannig að gatið verði ekki of stórt.
Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, * fellið af fyrir hnappagati, prjónið 6 lykkjur í stroffprjóni *, endurtakið frá *-* alls 4-4-5 sinnum, fellið af fyrir 1 hnappagati og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir að það myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Í byrjun umferðar: Lyftið 1. lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.
Í lok umferðar: Lyftið næst síðustu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO / AXLASKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið, fram og til baka.

PONCHO / AXLASKJÓL:
Fitjið upp 42-46-50 lykkjur á prjón 7 með DROPS Snow. Síðustu 2 lykkjur (= efst við hálsmál) á prjóni eru prjónaðar með 2 þráðum DROPS Snow í gegnum allt stykki.
Prjónið þannig (séð frá réttu): 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroffprjón 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni (með 2 þráðum).
Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu, JAFNFRAMT sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir í umferð = 34-38-42 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 8.
Munið að fylgja prjónfestunni.
Prjónið síðan garðaprjón JAFNFRAMT sem prjónaðar eru stuttar umferðir, með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið 21-25-29 lykkjur, snúið við – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN að ofan og prjónið 21-25-29 lykkjur til baka, prjónið 25-29-33 lykkjur, snúið við og prjónið 25-29-33 lykkjur til baka, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 36-38-40 cm efst – stillið af að endað sé eftir 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, JAFNFRATM sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 42-46-50 lykkjur.
Prjónið síðan frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, stroffprjón 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffprjónið mælist 2 cm. Í næstu umferð frá röngu er fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Haldið áfram í stroffprjóni með 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stroffprjónið mælist 4 cm. Stykkið mælist ca 112-118-124 cm neðst. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, frá hlið og saumað saman í lokin.

HÚFA
Fitjið upp 25-26-27 lykkjur á prjón 7 með DROPS Snow.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í garðaprjóni, JAFNFRAMT sem lykkjur eru auknar út og lykkjum fækkað í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Aukið út 1 lykkju í hægri hlið og fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) þar til stykkið mælist 9-10-11 cm.
Fækkið um 1 lykkju í hægri hlið og aukið út 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) þar til stykkið mælist 18-20-22 cm.
Aukið út 1 lykkju í hægri hlið og fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 22½-25-27½ cm (hálf húfan hefur nú verið prjónuð).
Fækkið um 1 lykkju í hægri hlið og aukið út 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 27-30-33 cm.
Nú er aukið út um 1 lykkju í hægri hlið og fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 36-40-44 cm.
Í lokin er fækkað um 1 lykkju í hægri hlið og aukið út 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 45-50-55 cm.

FRÁGANGUR:
Framhlið = sá hluti stykkis sem er með 3 heil horn.
Bakhlið = sá hluti stykkis sem er með 2 heil horn og 2 hálf horn.
Nú er húfan saumuð saman að aftan þannig – sjá teikningu:
Saumið húfuna saman kant í kant með því að sauma fyrsta hálfa hornið saman við fyrri helming á fyrsta heila horninu.
Saumið síðan seinni helming á fyrsta heila horninu saman við fyrri helming á seinna heila horninu.
Saumið síðan seinni helming á seinni heila horninu saman við seinni helming á hálfa horninu.
Í lokin er húfan saumuð saman við miðju að aftan.

DÚSKUR:
Leggið 36 cm af þræði saman tvöfalt (þannig að dúskurinn verði ca 18 cm að þvermáli). Haldið áfram að leggja þræðina saman tvöfalda þar til þeir fylla vel út í höndina. Leggið alla þræðina saman með því að vefja utan um þá og herða þráðinn utan um miðju á þráðunum nokkrum sinnum.
Festið dúskinn efst á húfuna með því að festa hann á hæðina þannig að löngu þræðirnir falli niður yfir húfuna. Festið vel. Klippið upp tvöföldu þráðarendana.

Mynstur

saumið a við a = saumið a við a
saumið b við b = saumið b við b
saumið c við c = saumið c við c
saumið d við d = saumið d við d
Diagram for DROPS Extra 0-547
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetchickset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-547

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Isabelle skrifaði:

Bonjour, Que voulez vous dire par "tricoter les deux dernières mailles vers le haut" ? Merci pour votre réponse Bon week-end

10.02.2024 - 17:46

DROPS Design svaraði:

Bonjour Isabelle, les 2 dernières mailles sur l'endroit se tricotent avec 2 fils, ces 2 mailles se trouvent côté col = en haut du chauffe-épaules. Bon tricot!

12.02.2024 - 07:27

country flag Laura skrifaði:

Ik ben teleurgesteld met het resultaat! Al volgde ik het patroon zoals beschreven in het nederlands, tot mijn verbazing klopt die niet en de muts is niet symmetrish aan beide zijden. Spijtig want ik keek er echt naar uit om die te dragen. Mooi op foto!

08.04.2022 - 20:24

country flag Cara skrifaði:

What does it mean when it says 2 garter stitches? Doesn't garter stitch apply a whole row or bunch of rows? How do I do 2 garter stitches?

14.02.2021 - 02:19

DROPS Design svaraði:

Dear Cara, knit two garter stitch mean that on that two stitches (not the whole row, but only on those two stitces, you so knit stitches in every row. (Or of you knit on the round, then you knit the stitches in one round and purl them in the next one, etc. Happy Knitting!

14.02.2021 - 13:09

Vero skrifaði:

Tutorial de este cubre hombros?

17.08.2012 - 17:35

country flag Ln skrifaði:

Nan mais franchement c'est concrètement impossible de porter ça, c'est a la limite du ridicule, en jaune en plus =O

15.04.2012 - 20:55

Mirja skrifaði:

Isn't there a mistake in the diagram. It is the same as the one in pattern 0-545. the hat is knit in zig-zags and the diagram should look different.

13.03.2010 - 01:11

country flag Gre skrifaði:

Lijkt wel een paaskuiken... ;-)

16.12.2009 - 15:51