DROPS Jóladagatal - Hefur þú opnað dyr dagsins!
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
DROPS Christmas Calendar

Festive Drums

Heklaðar trommur / jólaskraut úr DROPS Safran og DROPS Glitter. Stykkið er heklað í stykkjum með röndum. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-1679

#dropsfestivedrums

DROPS Design: Mynstur e-409
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stykkið mælist: Þvermál: ca 5 cm. Hæð: ca 5 cm.

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 gr litur 18, Natur
50 gr litur 19, Rauður
50 gr litur 20, Kirsuber
Og notið:
DROPS GLITTER frá Garnstudio
1 rúlla litur 01, Gull

1 tromma ca 12 grömm án fyllingar.

FYLGIHLUTIR:
Vatt til fyllingar.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3.

HEKLFESTA:
24 fastalykkjur á breidd og 26 umferðir á hæðina með heklunál nr 3 = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

LITASKIPTI-1 (á við um trommu-1):
Heklið síðustu lykkju í umferð með lit sem er í umferð, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á síðustu lykkjunni, skiptið yfir í næsta lit og heklið síðasta uppsláttinn og dragið þráðinn í gegn með nýja litnum, heklið síðan næstu umferð með þessum lit.

LITASKIPTI-2 (á við um trommu-2):
Í 2. og 4. umferð í mynsturteikningu er skipt yfir í nýjan lit áður en loftlykkjan er hekluð í byrjun umferðar.

LEIÐBEININGAR ÞRÆÐIR:
Gerið 3 þræði af DROPS Gitter úr sama þræð úr 1 rúllu Glitter þannig:
1. Gerið einfalda lykkju (það er alveg eins lykkja og þegar byrjað er á heklverkefni), gerið lykkjuna ca 2-3 cm langa.
2. Þræðið þráðinn af rúllunni í gegnum lykkjuna þannig að þráðurinn myndi nýja lykkju, gerið nýju lykkjuna ca 40-50 cm langa.
3. Leggið lykkjuna meðfram þræðinum frá rúllunni, þannig að 1 þráður verði að 3 þráðum.
4. Byrjið í gagnstæðri hlið lykkjunnar og prjónið með þessum + þráðunum + 1 þræði af DROPS Safran þar til 2 cm eru eftir á lykkjunni.
Endurtakið síðan liði 2 til 4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

------------------------------------------------------

TROMMUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Mynstrið samanstendur af tveimur trommum. Hver tromma samanstendur af tveimur botnum sem eru heklaðir í hring og einu hliðarstykki. Tromma-1 hefur hliðarstykki með láréttum röndum og er hekluð í hring. Tromma-2 hefur hliðarstykki með lóðréttum röndum og er hekluð fram og til baka.

BOTN:
Stykkið er heklað í hring.
Notið heklunál 3 og litinn Natur í DROPS Safran.
Heklið loftlykkjuhringinn eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1.
UMFERÐ 1: Heklið A.2 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.3 alls 6 sinnum um loftlykkjuhringinn = 12 stuðlar og 1 loftlykkja. Munið að fylgja heklfestunni.
Heklið síðan umferðina þannig:
Heklið A.2 (= byrjun og lok umferðar), heklið A.3 alls 6 sinnum umferðina hringinn. Þegar A.2/A.3 hefur verið heklað til loka eru 42 fastalykkjur og 1 loftlykkja í umferð.
Nú er síðasta umferðin hekluð þannig:
Heklið * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu / næstu 20 lykkjur, 2 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 2 sinnum = 44 fastalykkjur og 1 loftlykkja. Klippið og festið þráðinn.
Heklið alls 4 botna (2 fyrir hvora trommu).

HLIÐARSTYKKI (TROMMA-1):
Stykkið er heklað í hring með röndum.
Notið heklunál 3 og litinn Kirsuber, heklið 44 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið mynsturteikningu A.4 (= byrjun og í lok umferðar), heklið A.5 í hverja loftlykkju umferðina hringinn = 44 fastalykkjur og 1 loftlykkja. Lesið LITASKIPTI-1 í útskýringu að ofan.
Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka eru síðustu 4 umferðirnar endurteknar þar til stykkið mælist ca 5 cm – stillið af að endað sé með 1 umferð í litnum Kirsuber. Klippið og festið þræðina. Stykkið er eins og sívalningur.

HLIÐARSTYKKI (TROMMA-2):
Stykkið er heklað fram og til baka með röndum.
Notið heklunál 3 og litinn Rauður. Heklið mynsturteikningu A.6 og lesið LITASKIPTI-2 í útskýringu að ofan.
Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka eru síðustu 4 umferðirnar endurteknar þar til stykkið mælist ca 18 cm – stillið af að endað sé með 1 umferð í litnum Rauður.
Klippið þráðinn og skiljið eftir ca 15 cm þráð fyrir frágang. Saumið niður síðustu umferðina sem var hekluð við fyrstu umferðina. Stykkið er eins og sívalningur.

FRÁGANGUR:
Nú á að hekla 2 botna við hvort hliðarstykki, heklað er í gegnum bæði lögin.
Gerið 3 þræði DROPS Glitter – lesið LEIÐBEININGAR ÞRÆÐIR, leggið 3 þræðina saman með 1 þræði DROPS Safran í litnum Kirsuber (tromma-1) eða litnum Rauður (tromma-2) (= 4 þræðir).
Leggið 1 botn við 1 hliðarstykki, haldið stykkinu þannig að réttan á botninum snúi upp og að rétta á hliðarstykkinu snúi að þér.
Notið heklunál 3 og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju / umferð, heklið fastalykkjur í gegnum bæði lögin þar til botninn og hliðarstykkið hefur verið heklað saman alla leiðina hringinn, heklið eina lykkju með því að hekla 20 loftlykkjur og endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
Klippið og festið þráðinn. Fyllið trommuna með smá vatti og festið hinn botninn í gagnstæða hlið á sama hátt, en án þess að gera lykkju.

Mynstur

Byrjið hér! Heklið 3 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju (= loftlykkjuhringur). Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri = Byrjið hér! Heklið 3 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju (= loftlykkjuhringur). Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri
Umferðin byrjar með 1 loftlykkju, endið umferðina með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju = Umferðin byrjar með 1 loftlykkju, endið umferðina með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju
1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn / 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan = 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn / 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
2 fastalykkjur í lykkjuna fyrir neðan = 2 fastalykkjur í lykkjuna fyrir neðan
Umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið í næstu umferð = Umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið í næstu umferð
1 loftlykkja = 1 loftlykkja
1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan með litnum Rauður/Kirsuber = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan með litnum Rauður/Kirsuber
1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan með litnum Natur = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan með litnum Natur
Heklstefna = Heklstefna
Byrjið hér og heklið í þá átt sem örin vísar = Byrjið hér og heklið í þá átt sem örin vísar
Diagram for DROPS Extra 0-1679
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsfestivedrums eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1679

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.