Paula María skrifaði:
Can this be done in circular needles?, do you have a pattern with the diamond heel but for circular needles?
18.05.2026 - 02:50DROPS Design svaraði:
Hi Paula, The number of stitches needed when working socks in the round, make it difficult to use a circular needle (it would have to be very short) and that is why the pattern suggests double pointed needles. If you click on "Videos" at the top of the pattern, we do have a video explaining how to work with double pointed needles. Regards, Drops Team.
18.05.2026 - 06:54
Elsa skrifaði:
Moet je bij het meerderen van de hiel nu elke naald 2 steken meerderen of elke 2e naald? Het instructiefilmpje heeft geen geluid en lijkt elke naald te doen.
20.03.2026 - 15:17DROPS Design svaraði:
Dag Elsa,
Met iedere 2e naald wordt bedoeld de ene naald wel en de andere naald niet. Het patroon is altijd leidend, de video instructies kunnen ook op andere patronen van toepassing zijn of een meer algemene instructie zijn.
22.03.2026 - 12:39
Paola skrifaði:
Non riesco a capire a che punto del dietro si devono aumentare le maglie. Quante maglie intercorrono tra un aumento e l’altro del tallone ? Qui parla di 18 maglie ma dalla foto sembrano al massimo 2 o 4 maglie. Grazie
03.02.2026 - 09:29DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola, deve lavorare come riportato nei paragrafi dedicati agli aumenti. Buon lavoro!
04.02.2026 - 23:47
Delilah skrifaði:
Chapeau! Never seen this tevchnique before......takes all the "scaryness" of turning a heel out of sock knitting..... What clever cookies you are at Drops. Look forward to the technique in a jumper form perhaps? Whoo Hoo!
28.11.2025 - 10:56
Moonstone Glow Socks#moonstoneglowsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar í DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni með demantshæl. Stærð 35 – 43.
DROPS 261-69 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá legg og niður að tá. Til að rýma fyrir hælnum eru lykkjur auknar út fyrir hælinn á meðan prjónað er niður á við. Þegar hælinn hefur náð tilgreindri breidd og lengd er lykkjum fækkað fyrir hæl á meðan prjónað er að tá. Útaukningin og úrtakan gefa hælnum tígullaga / demantslaga lögun. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) í 16-17-18 cm Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Nú á að auka út lykkjur fyrir hæl hvoru megin við 10-18-18 lykkjur fyrir miðju undir fæti. Hællykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í stroffprjóni eins og áður. Setjið 1 merki á milli fyrstu 2 brugðnu lykkja í umferð – látið þetta merki fylgja með áfram í stykkinu = miðja undir fæti. ÚTAUKNING 1: Prjónið þar til 5-9-9 lykkjur eru eftir á undan merki og aukið út 1 lykkju með því að nota vinstri prjóninn til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn, prjónið 10-18-18 lykkjur sléttprjóni (merkið situr fyrir miðju í þessum lykkjum) notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). Næsta umferð: Prjónið stroffprjón og sléttprjón, endið þegar 6-10-10 lykkjur eru eftir á undan merki – nú á að auka aftur út eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING 2: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og prjónað er slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn, prjónið 12-20-20 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum lykkjum) notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og prjónað er slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). ÁFRAM ÚTAUKNING: Aukið út í annarri hverri umferð eins og útskýrt er að ofan alls 8-8-8 sinnum, það verða 2 lykkjur fleiri í sléttprjóni fyrir miðju undir fæti í hvert skipti sem aukið er út = 76-80-84 lykkjur í umferð og 30-38-38 lykkjur í sléttprjóni fyrir miðju undir fæti (= hællykkjur), ásamt 2 lykkjum slétt í hvorri hlið frá stroffprjóni. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur í stroffprjóni og sléttprjóni, endið umferðina fyrir miðju undir fæti. Setjið 1 mæli-merki fyrir miðju í hællykkjurnar í þessari umferð – mikilvægt – mæli-merkið er notað til að mæla lengd fótar frá, þ.e.a.s. þetta merki á ekki að fylgja áfram með í stykkinu. ÚRTAKA 1: Nú á að fækka lykkjum fyrir hæl undir fæti. Næsta umferð: Prjónið sléttprjón og stroffprjón þar til eftir eru 13-17-17 lykkjur á undan merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 22-30-30 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum sléttprjónuðu lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). Næsta umferð: Prjónið stroffprjón og sléttprjón, endið þegar eftir eru 12-16-16 lykkjur á undan merki – nú á að fækka aftur lykkjum eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA 2: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið 20-28-28 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). ÁFRAM ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð eins og útskýrt var að ofan alls 11-12-11 sinnum, það verða 2 lykkjur færri í sléttprjóni fyrir miðju undir fæti í hvert skipti sem lykkjum er fækkað = 54-56-62 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir 8-14-16 lykkjur undir fæti og stroffprjóni eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. FÓTUR: Prjónið þar til stykkið mælist 15½-17-17½ cm frá mæli-merki á hæl, mælt undir fæti. Það eru eftir 4½-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 27-28-31 lykkjur ofan á fæti og undir fæti (= 2 merki). Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4-4 sinnum = 10-12-10 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 20-22-23½ cm frá mæli-merki á hæl, mælt undir fæti. ATH: Sokkurinn er styttri en fótmálið, þar sem hann teygist við notkun. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonstoneglowsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-69
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.