Book Lovers#dropsbooklovers |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Heklað bókamerki með hjarta úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Valentínusardagur.
DROPS Extra 0-1592 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir hvernig hekla á snúruna. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur kemur til viðbótar). Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Passið uppá að fyrsta fastalykkjan sé hekluð í fyrstu fastalykkju og ekki sé heklað í keðjulykkju sem myndar lykkju í lok umferðar. Þetta er mikilvægt svo að umferðin komi ekki til með að færast til vinstri. ÚRTAKA: Heklið 2 fastalykkjur saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju, dragið þráðinn með til baka (2 lykkjur á heklunálinni), stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, dragið þráðinn með til baka (3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar. Það hefur fækkað um 1 lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BÓKAMERKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru hekluð 2 hjörtu sem eru tengd saman með snúru. Byrjið á að hekla snúruna, síðan er fyrra hjartað heklað, snúran er fest að innanverðu áður en hjartað er fyllt og heklað er til loka. Síðan er seinna hjartað heklað alveg eins. SNÚRA: Notið heklunál 2,5 og 1 þráð í hvorum lit af DROPS Merino Extra Fine (2 þræðir). Leggið þræðina saman, gerið lykkju og setjið lykkjuna á heklunálina, látið endana vera ca 10 cm langa – þeir eru notaðir þegar festa á snúruna. Notið vinstri vísifingur til að halda þráðunum frá hvorum öðrum, látið rauða þráðinn liggja efst yfir vísifintur og látið bleika þráðinn liggja neðst undir vísifingri og passið uppá að þræðirnir sem á að hekla með liggi í sömu röð allan tímann sem heklað er. Heklið snúru eftir mynsturteikningu A.1 þar til snúran mælist ca 30 cm – eða að óskaðri lengd. Klippið þræðina þannig að endarnir séu ca 10 cm langir (þeir eru notaðir til að festa snúruna), dragið rauða þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. HJARTA: Notið heklunál 2,5 og DROPS Merino Extra Fine í litnum rauður. UPPFITJUN og UMFERÐ 1: Heklið 2 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, í fyrri af þessum 2 loftlykkjum eru heklaðar 6 fastalykkjur, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, * heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hvora af næstu 2 fastalykkjum *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 fastalykkjur í síðustu fastalykkju = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, * heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 4 fastalykkjur *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 fastalykkjur í næstu lykkju og heklið 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju = 28 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 28 fastalykkjur. Nú er snúran fest við hjartað þannig: Takið snúruna, stingið inn öðrum endanum neðst í byrjun á hjartanu, festið þræðina vel að innanverðu. Fyllið smá með vatti í hjartað áður en heklað er áfram. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 4 fastalykkjum, * heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af næstu 6 fastalykkjum *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, heklið 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju og heklið 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú á að skipta stykkinu í tvennt mitt í hjartanu, klippið þráðinn og festið. Nú á umferðin að byrja á öðrum stað. HLUTI 1: UMFERÐ 11: Byrjið umferð mitt yfir 2. útaukningu frá síðustu umferð með útaukningum (þannig að fyrri byrjun á umferð komi að aftan á hjartanu). Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í sömu lykkju og keðjulykkjan var hekluð í, heklið alls 18 fastalykkjur, hoppið yfir næstu 18 fastalykkjur (tilheyrir hluta 2), brjótið stykkið og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 12-14: Nú er stuðst við HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur. Nú hafa verið heklaðar alls 4 umferðir meðtalin umferð þar sem stykkið skiptist. Fyllið hjartað með vatti jafnóðum og heklað er. Nú er lykkjum fækkað þannig: UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * heklið 2 næstu fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA, heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 5 sinnum og heklið síðustu 2 fastalykkjur saman = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið 2 og 2 fastalykkjur saman umferðina hringinn = 6 fastalykkjur. Klippið þráðinn, notið heklunál og þræðið þráðinn í gegnum ystu lykkjubogana á hverri fastalykkju, herðið á þræði þannig að gatið á toppnum lokist og festið endann. Hluti 1 af hjartanu er nú tilbúinn. HLUTI 2: UMFERÐ 11: Nú á að hekla í 18 fastalykkjurnar sem hoppað var yfir þegar stykkinu var skipt. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju eftir hluta 1, ekki hekla í 1 loftlykkjuna í byrjun á þessari umferð, heldur byrjið með að hekla fastalykkjur í sömu lykkju og keðjulykkjan var hekluð í. Heklið alls 18 fastalykkjur, brjótið stykkið saman og hoppið yfir hluta 1 og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu keðjulykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 12-14: Nú er stuðst við HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur. Nú hafa verið heklaðar alls 4 umferðir meðtalin umferð þar sem stykkið skiptist. Fyllið hjartað með vatti jafnóðum og heklað er. Nú er lykkjum fækkað þannig: UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, * heklið 2 næstu fastalykkjur saman – sjá ÚRTAKA, heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 5 sinnum og heklið síðustu 2 fastalykkjur saman = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið 2 og 2 fastalykkjur saman umferðina hringinn = 6 fastalykkjur. Klippið þráðinn, notið heklunál og þræðið þráðinn í gegnum ystu lykkjubogana á hverri fastalykkju, herðið á þræði þannig að gatið á toppnum lokist og festið endann. Hluti 2 af hjartanu er nú tilbúinn. Saumið nokkur spor í skiptinguna á milli hluta 1 og hluta 2 þannig að ekki verði bil á milli hluta 1 og 2. Heklið 1 hjarta til viðbótar alveg eins, en notið litinn bleikur – munið eftir að festa hinn endann á snúrunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsbooklovers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1592
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.