S Richey skrifaði:
Just wondering seeing about your patterns for sale on ETSY, and it didn\'t look like it was from your webpage, also the products of the patterns,
24.11.2024 - 21:56
Zdena skrifaði:
Zdá se mi, že po páté kruhové řadě, kde je napsáno toto : Takto pokračujeme – v každé kruhové řadě přidáme 6 ok; v každé další kruhové řadě tedy háčkujeme mezi dvěma přidáními vždy o 1 oko více.….nechápu, jak bychom měli mít jen o 1oko navíc, když přidáváme 6 ok v každé řadě. Děkuji
22.02.2023 - 14:36DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Zdeno, ano, je to tak - mezi 2 přidáními nám plynule narůstá počet ok: ve 3. kr.ř. háčkujeme 2 kr.sloupky do jednoho oka, pak 1 kr. sloupek, a toto opakujeme. Ve 4. kr. ř. už máme 2 kr.sloupky do jednoho oka, pak 2 kr. sloupky, a toto opakujeme. V 5. kr. ř. máme 2 kr.sloupky do jednoho oka, a potom už 3 kr. sloupky, a toto opakujeme. A takto postupně oka přibývají, vždy po 1 mezi jedním přidáním (= 2 kr. sloupky do jednoho oka) a dalším přidáním (= další 2 kr. sloupky do jednoho oka). Přidání máme v jedné kruhové řadě celkem 6 (= v každé kruhové řadě přidáme celkem 6 ok). Hodně zdaru! Hana
22.02.2023 - 20:05
Lucie skrifaði:
Dobry den, prosim, nenasla jsem v navodu informaci, do jakeho mista/rady hackuji dvojite (hnedou i bezovou prizi najednou)? Dekuji, Lucie
21.01.2023 - 19:14DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Lucie, tento klobouček háčkujeme celý oběma přízemi současně, tj. dvojitou přízí. Hodně zdaru! Hana
22.01.2023 - 19:40
Maria Angeles skrifaði:
Donde puedo comprar las lanas en Madrid España
16.01.2023 - 16:02
Michelle Jonsson skrifaði:
Hej, var kan man se svårighetsnivån på stickmönstret?
22.11.2022 - 17:51
Annette Staghøj skrifaði:
Hvorfor bliver arbejdet spids der hvor jeg vender?
20.11.2022 - 17:50DROPS Design svaraði:
Hei Annette. Usikker på hvorfor du får en spiss. Avslutter du omgangene slik det står i oppskriften? På begynnelsen av hver omgang med fastmasker hekles det 1 luftmaske, denne luftmasken erstatter IKKE første fastmaske. Omgangen avsluttes med 1 kjedemaske i første fastmaske på omgangen (ikke i luftmasken). mvh DROPS Design
21.11.2022 - 12:57
Cardamom Hat#cardamomhat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Stærð XS - XL.
DROPS 234-84 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (ekki í loftlykkju). LEIÐBEININGAR: Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fjölga á lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 48 fastalykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í 6. hverja lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju og út, ofan frá og niður – jafnframt er stykkinu snúið í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR. HATTUR: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 6 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, síðan eru heklaðar 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, síðan er heklað * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, síðan er heklað * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið síðan * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn með því að auka út um 6 lykkjur í hverri umferð, en í hverri umferð er hekluð 1 lykkja fleiri á milli hverra útaukninga. Þegar heklaðar hafa verið alls 8-9-10-10 umferðir eru 48-54-60-60 fastalykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 8-6-4-8 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 56-60-64-68 fastalykkjur. Heklið síðan hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu eins og áður). Þegar stykkið mælist 17-18-19-20 cm frá miðju á hatti, heklið barð eins og útskýrt er að neðan. BARÐ: UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, heklið síðan fastalykkjur hringinn eins og áður jafnframt því sem aukið er út um 8-4-8-4 fastalykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 64-64-72-72 fastalykkjur. UMFERÐ 2: 1 loftlykkja, síðan er heklað * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 7-7-8-8 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 72-72-80-80 fastalykkjur. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið síðan * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 8-8-9-9 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 80-80-88-88 fastalykkjur. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, heklið síðan * 2 fastalykkjur í fyrstu/næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af 9-9-10-10 næstu fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 88-88-96-96 fastalykkjur. Haldið áfram hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 1 umferð er eftir þar til hatturinn mælist 23-24-25-26 cm, mælt frá miðju á hatti. Nú er hekluð 1 umferð með krabbahekli þannig: Heklið 1 krabbahekllykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, en í gagnstæða átt (heklið frá vinstri til hægri). Klippið þræðina og festið. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cardamomhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-84
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.