Hélène Jacques skrifaði:
For A1 I read 2 yarns over but on the video wee see only one . Which one is the good way
06.07.2022 - 20:12DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jacques, follow the diagram as it is, ie make 2 yarn overs on first row in A.1 but on 2nd row in A.1 you will knit only one of the both yarn overs and drop the 2nd yarn over so that the hole will be larger. Happy knitting!
07.07.2022 - 08:48
Angelique skrifaði:
Hallo Video super schön möchte das Tuch stricken ohne dem Video hätte ich es nicht verstanden. Da in der Zeichenerklarung ein Fehler ist da steht 2 zusammen stricken und dann 2 Umschläge zwischen 2 Maschen du strickst im Video nur 1 Umschlag. Liebe Grüße Angelika
06.06.2022 - 13:22
Nat skrifaði:
Hallo, 1 Frage: wird der Tuch mit 2 Fäden gestrickt oder nur mit einem? 2 Frage: wird die 4 Masche nach dem Picotrand Muster auch Kraus Rechts gestrickt? Danke
28.05.2022 - 08:25DROPS Design svaraði:
Liebe Nat, das Tuch wird nur mit 1 Faden Kid-Silk gestrickt - siehe Maschenprobe und wählen Sie die richtige Nadelgrösse; Das ganze Tuch wird krausrechts gestrickt, dh auch die 4 Maschen vom Picotrand wenn Sie 1. und 2. Reihe wiederholen. Viel Spaß beim stricken!
30.05.2022 - 07:48
Katka skrifaði:
Dobrý den. Nevím si rady s počítáním řad. V 9. řadě (lícová) přidám prvním oko před značkou. Pak se má přidávat v každé 6. řadě, což se asi nepočítá od první řady, pak by se přidávalo v rubu. Teda- první šestou řadou je po té 9. řadě, ve které je poprvé přidáno 15. řada od začátku, pak následně 21., 27, 33... atd? Nevím si s tím rady... Stejně pak s ujímáním?.. Děkuji Katka
26.05.2022 - 17:49DROPS Design svaraði:
Milá Katko, ano, je to přesně tak, jak píšete - přidáváme/ujímáme vždy v lícových řadách (pokud není výslovně uvedeno jinak) a počítat začínáme od rubové řady, která následuje po poslední řadě s přidáváním/ujímáním. Hodně zdaru! Hana
20.07.2022 - 08:00
Val skrifaði:
Baby doll
19.01.2022 - 15:17
Jo skrifaði:
I love this mini shawl! Great for left over Kidsilk! I would call it “spring wisps”
17.01.2022 - 11:59
Pink Soda Shawl#pinksodashawl |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað frá hlið í garðaprjóni með picotkanti.
DROPS 229-7 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, frá hlið. Sjalið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með picotkanti meðfram annarri hliðinni. SJAL: Fitjið upp 6 lykkjur á prjóna 4,5 með DROPS Kid-Silk. Setjið 1 prjónamerki eftir 2 fyrstu lykkjurnar í umferð (séð frá réttu) og látið prjónamerkið fylgja með að innanverðu við picotkantinn þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið mynstur A.1 (= picotkantur). Það hafa verið auknar út 2 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 (= picotkantur), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Nú hefur fækkað um 2 lykkjur. Endurtakið umferð 1 til 4, JAFNFRAMT í 9. umferð er aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn nákvæmlega á undan prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umferð – aukið út allan tímann á undan prjónamerki þannig að það verða fleiri og fleiri lykkjur í garðaprjóni hægra megin við prjónamerki (séð frá réttu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til það eru alls 46 lykkjur á undan prjónamerki, stykkið mælist ca 25 cm á breiddina og ca 68 cm meðfram beina kantinum á sjalinu. Prjónið 4 umferðir með mynstri eins og áður, en án útaukninga. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, þetta er gert til að gataumferðin við prjónamerkið komi til með að halda áfram þrátt fyrir að það sé ekki útaukning. Prjónið 3 umferðir með mynstri eins og áður, en án útaukninga. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umferð þar til einungis 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (séð frá réttu). Prjónið 8 umferðir eins og áður án úrtöku. Fellið af. Sjalið mælist ca 139 cm frá hlið að hlið. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinksodashawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.