Marina Grundmann skrifaði:
Für die Drops Alpaca wird Nadelgröße 3 empfohlen. Ist es richtig, für die Handschuhe Nadelgröße 5 zu verwenden, so wie Sie es in der Anleitung beschreiben ?
08.01.2023 - 13:52DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Grundmann, die Handschuhen werden hier zweifädig gestrickt, dh mit 2 Fäden Alpaca - beachten Sie, daß Ihre Maschenprobe stimmt, dh 17 M x 22 Reihe glatt rechts mit 2 Fäden Alpaca = 10 x 10 cm - mit Nadel Nr 5 oder die benötigte Grôße, um diese Maschenprobe zu erhalten. Viel Spaßb eim stricken!
09.01.2023 - 10:10
Cathrine Spro Schlotterbeck skrifaði:
Jeg lurer på dette med "strikk en vott til på samme måte". Jeg endte opp med to høyrevotter! :-D Er det i tovingsprosessen jeg kan "justere den til i bli en venstretommel" eller skulle jeg ha skjønt at jeg skal speilvende oppskriften? Og hva blir det i såfall da? Sette merke 24 masker inn fra høyre i stedet for venstre på arbeidet? hjelp :-)
30.08.2022 - 13:34DROPS Design svaraði:
Hej Cathrine, vanterne er helt like ovenpå og i hånden, så tommelfingeren vender du bare, så den ene bliver højre og den anden venstre :) Se også gerne vores videoer nederst i opskriften :)
31.08.2022 - 14:02
Kajsa Lindh skrifaði:
Tusen tack!
17.01.2022 - 14:16
Kajsa skrifaði:
Hej! Jag förstår inte riktigt hur tummen görs... finns det beskrivningsvideo på denna variant?
16.01.2022 - 22:55DROPS Design svaraði:
Hej Kajsa. Det är samma princip som i denna video. Mvh DROPS Design
17.01.2022 - 13:31
Erna skrifaði:
Snug as a bug
04.08.2021 - 02:35
Smooth Ice#smoothicemittens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir og þæfðir vettlingar úr 2 þráðum DROPS Alpaca.
DROPS 226-52 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 2 lykkjur fyrir þumal með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Þegar vettlingarnir hafa verið prjónaðir til loka eru þeir þæfðir í þvottavél. VETTLINGUR: Fitjið upp 52-52-56 lykkjur á sokkaprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit úr DROPS Alpaca. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-17 cm setjið 1 prjónamerki í 22.-22.-24. lykkju í umferð (= prjónamerki fyrir þumal). Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Endurtakið útaukningu í ystu hlið við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð alls 6-7-8 sinnum = 56-58-64 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 21-23-25 cm. Setjið þumallykkjurnar og 1 lykkju hvoru megin við þumallykkjur á þráð (= 15-17-19 lykkjur). Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á bakhlið við þumallykkjur, þar sem lykkjur voru settar á þráð = 44-44-48 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 34-37-41 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið nú og fækkið lykkjum fyrir toppinn á vettlingnum þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 33-33-36 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 22-22-24 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. UMFERÐ 5: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 11-11-12 lykkjur. Notið nál og þræði tvöfaldan þráð í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist 36-39-43 cm frá uppfitjunarkanti að toppi. ÞUMALL: Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjóna 5 og prjónið upp 5 lykkjur á bakhlið á þumli (þar sem 3 lykkjur voru fitjaðar upp) = 20-22-24 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar þumallinn mælist ca 6½-6½-7 cm frá opi fyrir þumal er fækkað um 4-4-6 lykkjur jafnt yfir (fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) = 16-18-18 lykkjur. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 12-14-14 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8½-8½-9 cm prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6-7-7 lykkjur. Þumallinn mælist ca 9-9-9½ cm frá þumalopi. Notið nál og þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið að og festið vel. Prjónið hinn vettlinginn á sama hátt. ÞÆFING: Til þess að koma í veg fyrir að þumallinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumli þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #smoothicemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.