Fyrsta vísbendingin í þessu Crochet-Along verkefni samanstendur af mynsturteikningu, texta og myndum sem leiða þig áfram, skref fyrir skref. Ef þig langar til að byrja og sleppa við myndirnar, þá finnur þú mynsturteikninguna í heild sinni og kennslumyndböndin neðst á síðunni!
Nú skulum við byrja!
Í þessu fyrsta þrepi (A.1) notum við eftirfarandi litasamsetningu:
UPPFITJUN + 1. UMFERÐ: 01 hvítur
2.UMFERÐ: 05 ljós þveginn
3.UMFERÐ: 06 ljós gallabuxnablár
4.UMFERÐ: 17 ljós fjólublár
5.UMFERÐ: 16 fjólublár
HEKLLEIÐBEININGAR:
Það sem stendur á milli tveggja * á að endurtaka í hvert skipti þar sem stendur frá *-* í uppskrift.
Rauðu táknin í mynsturteikningu eru útskýrð í texta yfir myndum.
UPPFITJUN:
Heklið 4 loftlykkjur með litnum hvítur, tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér.
1. UMFERÐ:
Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull).
Heklið * 1 loftlykkju, 1 stuðul um loftlykkjuhringinn *, endurtakið frá *-* 11 sinnum alls, 1 loftlykkja = 12 stuðlar um loftlykkjuhringinn.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, lesið LITASKIPTI að neðan, skiptið yfir í litinn ljós þveginn og klippið frá þráðinn í litnum hvítur.
LITASKIPTI:
Til að fá fallega skiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litum.
2. UMFERÐ:
Heklið 3 loftlykkjur.
Heklið * 2 stuðla um næstu loftlykkju, 1 stuðul í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* 11 sinnum alls, 2 stuðlar um síðustu loftlykkju.
Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, lesið LITASKIPTI að ofan, skiptið yfir í litinn ljós gallabuxnablár og klippið þráðinn með litnum ljós þveginn frá.
3.UMFERÐ:
Heklið 4 loftlykkjur (samsvarar 1 tvíbrugðnum stuðli), heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í lokin í gegnum báða tvíbrugðu stuðlana, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið þráðinn í lokin í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni, 5 loftlykkjur.
Heklið * 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í lokin í gegnum báða þessa tvíbrugðnu stuðla, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni, 5 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* 11 sinnum alls.
Endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun umferðar, lesið LITASKIPTI að ofan, skiptið yfir í litinn ljós fjólublár og klippið frá þráðinn í litnum ljós gallabuxnablár.
4. UMFERÐ:
Heklið 1 loftlykkju.
Heklið 6 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn (= 72 fastalykkjur).
Endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju frá byrjun umferðar. Skiptið yfir í litinn fjólublár, lesið LITASKIPTI að ofan, ekki klippa frá þráðinn í litnum ljós fjólublár.
5.UMFERÐ:
Heklið 1 loftlykkju.
Heklið * 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 lykkjum, 1 hálfur stuðull um toppinn á tvíbrugðnastuðlahópnum frá 3. umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn (= 12 sinnum).
Endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar, lesið LITASKIPTI að ofan. Skiptið yfir í litinn hvítur og klippið frá þráðinn í litnum fjólublár. 72 fastalykkjur og 12 hálfir stuðlar.
Geymið stykkið og gerið annað stykki með nýrri litasamsetningu:
UPPFITJUN + 1.UMFERÐ: 01 hvitur
2.UMFERÐ: 17 ljós fjólublár
3.UMFERÐ: 16 fjólublár
4.UMFERÐ: 05 ljós þveginn
5.UMFERÐ: 06 ljós gallabuxnablár
Svona líta báðar litasamsetningarnar út með mynsturteikningu A.1 ásamt umferð 5.
Niðurstaða vísbendingar#1 eru 2 stk hringir þar sem hvor þeirra mælist 14,5 cm að þvermáli.
Notar þú aðra litasamsetningu en þá sem við notum hér?
Merktu þá hjá þér hvaða litanúmer þú setur í staðin áður en þú byrjar, þú getur fundið yfirlit yfir litanúmerinhér.
![]() |
= | 4 loftlykkjur, tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér. |
![]() |
= | loftlykkja |
![]() |
= | keðjulykkja í /um lykkju |
![]() |
= | fastalykkja um loftlykkjuboga |
![]() |
= | fastalykkja í lykkju |
![]() |
= | stuðull um loftlykkju/loftlykkjuhringinn |
![]() |
= | stuðull í lykkju |
![]() |
= | 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN Í BYRJUN UMFERÐAR: 4 loftlykkjur (samsvarar 1 tvíbrugðnum stuðli), heklið 2 tvíbrugðna stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í lokin í gegnum báða þessa tvíbrugðnu stuðla, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni |
![]() |
= | 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á þessum tveimur tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni |
![]() |
= | 5 loftlykkjur |
![]() |
= | Heklið 1 hálfan stuðul um toppinn á tvíbrugðna-stuðlahópnum frá 3. umferð. |
Thank you Helen :D I was freeking out. hahahaha You have a nice day
09.03.2017 - 18:36