Hvernig á að prjóna sokka með pífukanti

Keywords: kantur, pífa, sokkar,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við byrjum á sokk með pífukanti, eins og í sokkum «Dainty Duo» í DROPS 229-19. Við fitjum upp með 2 þráðum, en höldum áfram að prjóna með 1 þræði. Eftir það eru prjónaðar 4 umferðir í sléttprjóni áður en 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar saman. Síðan er prjónað stroff (1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið). Þessir sokkar eru prjónaðir úr DROPS Fabel, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

Myndbandið að ofan er hægt að nota í eftirfarandi mynstrum

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.