Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig hægt er að hekla perlur inn í stykki. Áður en byrjað er að hekla þræðið eins margar perlur á þráðinn eins og á að nota með nál. Færið perlurnar frá og fitjið upp eins og venjulega. Heklið að þeim stað þar sem perlurnar eiga að koma inn í stykkið.
Myndbandið sýnir fyrst hvernig perlurnar eru settar inn í stykkið þegar heklaðir eru stuðlar frá réttu, síðan frá röngu og að lokum hvernig perlurnar eru heklaðar inn þegar heklaðar eru fastalykkjur.
Þegar heklaðir eru stuðlar þá er þráðurinn sóttur fyrir aftan perluna, heklið stuðul í næstu lykkju eins og venjulega, passið uppá að flytja perlu að fram- eða bakhlið áður en þráðurinn er dreginn í gegn í lokin.
Þegar heklaðar eru fastalykkjur er þráðurinn sóttur upp fyrir aftan perluna, dragið þráðinn í gegn, hoppið yfir næstu lykkju og heklið næstu lykkju eins og áður.
Í næstu umferð með fastalykkju / stuðli passið uppá að hekla lykkjur ofan við perluna þannig að fjöldi lykkja verði alltaf sá sami í umferð. Þvoið flíkina á röngu og notið þvottaskjóðu til þess að vernda perlurnar í þvotti.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.
Great clear videos - no sound though?
12.06.2012 - 20:20Hi, how do you add more beads to the rest of the piece ?
05.02.2012 - 10:18Drops Design :
Either you put these beads on from the beg, or you have to cut the yarn and put beads on and then continue.
06.02.2012 - 17:40