Hvernig á að prjóna inn eina eða fleiri perlur

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum inn eina eða fleiri perlur í stykki. Ef þú ætlar að setja inn nokkrar perlur er það gert þannig: Prjónaðu þar til komið er að þeirri lykkju sem perlan á að vera. Stingdu heklunál í gegnum perluna, sækið lykkjuna með heklunálinni og dragið lykkjuna í gegnum perluna. Setjið lykkjuna aftur til baka á vinstri prjón og prjónið síðan áfram eins og venjulega.
Í næstu umferð er lykkjan með perlunni prjónuð slétt eða brugðið eftir því hvort prjónað er í sléttprjóni, garðaprjóni eða í einhverju öðru mynstri. Munið eftir að þvo stykkið á röngunni og jafnvel í þvottaskjóðu til að hlífa perlunum.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.

Athugasemdir (2)

Corrie wrote:

Heel duidelijk. dank je wel.

28.12.2011 - 21:32

Sylvia Durante Márquez wrote:

Excelente explicacion que ayuda mucho para hacer las labores en forma correcta, felicitaciones

13.02.2011 - 23:17

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.