Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við heklum einfalt fiðrildi, sem hentar t.d. sem skraut á húfu. Heklið 5 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
Fyrst eru heklaðir 2 stórir «vængir» og eftir það 2 minni «vængir». Dragið lykkjuna (keðjulykkjuna) þannig að það verða ca 3-4 cm, bregðið þræðinum um heklunálina, dragið heklunálina í gegnum loftlykkju og sækið þráðinn, dragið þráðinn í gegn og gerið alveg eins langt og uppslátturinn og keðjulykkjan/fyrri lykkja = 3 langar lykkjur á heklunálinni. Endurtakið þetta 7 sinnum til viðbótar = 17 langar lykkjur/uppslættir á heklunálinni.
Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar löngu lykkjurnar, bregðið á ný þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna til að «loka» saman löngu lykkjunum og herða að. Heklið 3 loftlykkjur, eftir það 1 keðjulykkja í loftlykkju. Leggið 3 loftlykkjur á «bakhlið». Endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Eftir það eru heklaðir 2 minni «vængir». Endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, en dragið lykkjurnar einungis 2-3 cm (þær eiga að vera aðeins styttri en í 2 fyrri «vængjum» og heklið 2 loftlykkjur í stað 3 loftlykkjur. Endið fiðrildið með einni keðjulykkju í loftlykkju, herðið að. Klippið frá og festið enda. Nú vefjið þið þræði með öðrum lit utan um «maga» á fiðrildinu, 2-3 sinnum. Bindið þræðina saman og klippið «fálmara» að óskaðri lengd. Veljið sjálf hvaða garn og grófleika á heklunál er notað. Í þessu myndbandi heklum við með DROPS Snow og notum heklunál nr 8.
Hekluðu fiðrildin eru hekluð úr DROPS Melody/heklunál nr 4,5 og DROPS Kid-Silk/heklunál nr 3,5.
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.