Hvernig á að hekla stórt blóm
Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við heklum stórt blóm sem meðal annars er notað í toppnum «Flower in the Sky» í DROPS 78-19. Heklið þannig: Heklið 6 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju.
Umferð 1: Heklið 12 fastalykkjur um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju.
Umferð 2: Heklið * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 keðjulykkja í fastalykkju frá byrjun á umferð = 6 loftlykkjur.
Umferð 3: * 2 fastalykkjur, 3 stuðlar, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun á umferð.
Umferð 4: Heklið * 5 loftlykkjur, 1 fastalykkju í 2 stuðul (= miðja á boga), 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul og 1 fastalykkju, 1 fastalykkja á milli tveggja neðstu fastalykkja *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum.
Umferð 5: Heklið * 5 fastalykkjur um loftlykkjuboga, 1 picot (= 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í 1. loftlykkju frá heklunálinni), 5 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju frá byrjun á umferð.
Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum lykkjurnar. Þráðurinn er notaður síðar til að sauma blómin saman.
Blómið í toppnum er heklað úr DROPS Muskat, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.
Super einfach und schnell zu machen. Ich habe dünnes Garn benutzt und fange bei solchen Sachen immer mit einem magic ring an (statt mit Luftmaschen), gefällt mir besser. Bei dem geringen Materialverbrauch kann man Reste aller Art verwenden.
17.05.2024 - 15:36