DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

In Pieces

Hekluð poncho peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað með pufflykkjum, kimono ermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-40
DROPS Design: Mynstur sk-049
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-750-800-900 g litur 19, tígulsteinn

HEKLFESTA:
Mynstur A.2b mælist ca 2,7 cm á breidd og 3 cm á hæð.
14 stuðlar á breidd og 7 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.15.
ATH: Það er mikilvægt að þráðurinn sé dreginn eins langt og hann þarf að vera (2 cm) þegar pufflykkjan er hekuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermar. Kraginn er heklaður í hring.

FRAMSTYKKI:
Heklið 84-88-96-104-112-120 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með tvöföldum þræði Sky (þetta er gert til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Heklið síðan með 1 þræði Sky. Heklið síðan þannig:
Heklið A.1a yfir fyrstu 4 loftlykkjur, endurtakið A.2a þar til 4 loftlykkjur eru eftir (= 19-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 4 loftlykkjum) og endið með A.3a yfir síðustu 4 loftlykkjur.
Þegar A.1a til A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.1b til A.3b. Endurtakið síðan A.1b til A.3b á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið þar til stykkið mælist ca 42-44-43-45-44-46 cm.
Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið, þ.e.a.s. klippið þráðinn frá og byrjið frá röngu þannig:
Heklið A.5a (= útaukning fyrir ermi), endurtakið A.2b yfir pufflykkjurnar (= 21-22-24-26-28-30 mynstureiningar) og endið með A.4a (= útaukning fyrir ermi). Þegar A.4a og A.5a hefur verið heklað til loka, klippið frá. Heklið 25-25-25-21-17-17 lausar loftlykkjur fyrir ermi, haldið áfram með A.4b, heklið A.2b eins og áður, heklið A.5b og endið með 25-25-25-21-17-17 lausar loftlykkjur fyrir ermi (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Heklið A.6 yfir fyrstu loftlykkjuna, heklið A.7 yfir næstu 24-24-24-20-16-16 loftlykkjur (= 6-6-6-5-4-4 mynstureiningar yfir 4 loftlykkjur), heklið A.8 yfir næstu pufflykkju, endurtakið A.2b yfir næstu 27-28-30-32-34-36 pufflykkjur, heklið A.9 yfir næsta loftlykkjuboga, heklið A.10 yfir næstu 24-24-24-20-16-16 loftlykkjur (= 6-6-6-5-4-4 mynstureiningar yfir 4 loftlykkjur) og endið með A.11 yfir síðustu loftlykkju.
Útaukningar fyrir ermi er nú lokið = 41-42-44-44-44-46 pufflykkjur í umferð. Heklið síðan þannig:
Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkju, A.2b yfir næstu 39-40-42-42-42-44 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Endurtakið síðan A.1b til A.3b á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 61-63-65-66-68-70 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu, skiptið stykkinu upp og axlirnar eru heklaðar til loka hvor fyrir sig.

VINSTRI ÖXL:
Heklið vinstri öxl þannig (fyrsta umferð = frá röngu): Hekli A.1b yfir fyrstu pufflykkju, endurtakið A.2b yfir næstu 16-16-17-17-17-18 pufflykkjur og endið með A.12 yfir næstu 3 pufflykkjur. Þegar A.12 hefur verið heklað til loka á hæðina er næsta umferð hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkju, heklið A.2b yfir næstu 12-12-13-13-13-14 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 5-5-5-6-6-6 umferðir á allri öxlinni. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI ÖXL:
Heklið hægri öxl þannig (fyrsta umferð = frá réttu): Hoppið yfir miðju 1-2-2-2-2-2 pufflykkjur (= háls), heklið A.13 yfir næstu 3 pufflykkjur, endurtakið A.2b yfir næstu 16-16-17-17-17-18 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkjur. Þegar A.13
hefur verið heklað til loka á hæðina er næsta umferð hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkju, heklið A.2b yfir næstu 12-12-13-13-13-14 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 5-5-5-6-6-6 umferðir á allri öxlinni. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm. Klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
Heklið eins og framstykki þar til allar útaukningar hafa verið gerðar til loka = 41-42-44-44-44-46 pufflykkjur.
Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkjuna, endurtakið A.2b alls 39-40-42-42-42-44 sinnum og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Endurtakið síðan A.1b til A.3b á hæðina. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm – stillið af eftir framstykki. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma niður þar til ca 38 cm eru eftir (= klauf).

KRAGI:
Kraginn er heklaður í hring. Byrjið með 1 keðjulykkju á hægri öxl og heklið 4 loftlykkjur, heklið 1 pufflykkju um hverja af 7-8-8-8-8-8 pufflykkjum á bakstykki eins og áður, heklið 2 pufflykkjur um hverja af næstu 1-1-1-2-2-2 umferðum á framstykki, heklið 1 pufflykkju um hverja af 7-8-8-8-8-8 pufflykkjum á framstykki, heklið 2 pufflykkjur um hverja af síðustu 1-1-1-2-2-2 umferðum á framstykki og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð = 18-20-20-24-24-24 pufflykkjur.
Heklið síðan hringinn þannig: A.14 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.15 umferðina hringinn. Haldið áfram þar til heklaðar hafa verið alls 7-7-7-8-8-8 pufflykkjur á hæðina á öllum kraganum. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjið á næstu umferð, við ör

symbols = byrjið hér

symbols = keðjulykkja

symbols = loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju
symbols = 1 PUFFLYKKJA (um loftlykkju): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjuna, sækið þráðinn og dragið í gegn og gerið hann 2 cm langan *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 9 lykkjurnar á heklunálinni, heklið 1 loftlykkju, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um sömu loftlykkju, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegn og gerið hann 2 cm langan *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 9 lykkjurnar.
symbols = 1 PUFFLYKKJA (í loftlykkju): * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í loftlykkjuna, sækið þráðinn og dragið í gegn og gerið hann 2 cm langan *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 9 lykkjurnar á heklunálinni, heklið 1 loftlykkju, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í sömu loftlykkju, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegn og gerið hann 2 cm langan *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum = 9 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 9 lykkjurnar.

symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Crochetingbeauty wrote:

Is there a written pattern somewhere I can use. I’ve tried several times to read the chart but have failed. Please and thankyou.

26.09.2021 - 09:55

DROPS Design answered:

Dear Crochetingbeauty, we do not have a written out pattern not only because our patterns are available in several languages, but asle, because we believe that with diagrams, you can see not only the very next step, abut also, the bigger picture, as hoe the rows and stitches relate to each other en-large. However, we do have a lesson on howe to read the diagrams HERE, and you can always ask for help (either over the phone or in person) in the store, where you bought your DROPS yarn from. Happy Stitching!

27.09.2021 - 03:27

country flag Lavender wrote:

What does it mean when it says for the sleeves you have to 'cast on stitches'? I've never heard of that in crocheting only in knitting but is it the same thing? How do I do that?

09.03.2021 - 02:38

DROPS Design answered:

Dear Lavender, you will now crochet new stitches as shown in diagram (= A.5a starts at the arrow with 3 chains + 1 double treble in the first stitch on body), work body as before and finish with A.4 (starting with 1 double treble in the last stitch on body + 2 chains + 4 chains to turn with). Happy crocheting!

09.03.2021 - 07:52

country flag Maria B wrote:

Would it be alright if I asked someone to do a tutorial video on making this pattern? Of course, they would, in turn, ask you directly I'm sure

01.09.2020 - 08:34

DROPS Design answered:

Hi Maria, did you see this one?: How to crochet puff stitches shaped like hearts

02.09.2020 - 15:40

country flag Nancy's Robasco wrote:

Is there any help you can offer to make the pattern tighter so there are not openings to see through ?

10.07.2020 - 14:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Robasco, we are unfortunately not able to adapt every pattern to every single request - please contact your store for any individual assistance - or check our our crocheted patterns for sweaters. Happy crocheting!

10.07.2020 - 16:38

country flag Jenny Nilsson wrote:

Hej Jag är på vänster axel nu och förstår inte riktigt mönstret. Enligt beskrivningen så ska jag virka 1+12+1 (STL M) när jag är klar med A12 på höjden men då blir det tre puffmaskor över eftersom man ska virka 1+16+ A12 över de bästa tre så totalt 20.

31.03.2020 - 12:04

DROPS Design answered:

Hej Jenny, vi forstår ikke rigtigt dit spørgsmål, men du hækler puffm som tidligere og hækler A.12 over de sidste 3 mod halsen, så du tager ind ifølge diagrammet. God fornøjelse!

21.04.2020 - 09:26

country flag Ingrid Aarden wrote:

For the beginning chain it is stated that one has to work with 2 strands of Sky for elasticity. But in de US english version it is stated 1 single strand. Is this an errorin the US version?

29.02.2020 - 16:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Aarden, it looks like yes, thanks for your feedback, US-pattern will be edited, and cast on the fundation chain with 2 strands Sky (so that it will be more elastic). Happy crocheting!

02.03.2020 - 11:51

country flag Helena wrote:

Hallo, ich würde gerne wissen, in welche Masche man das erste Doppelstäbchen von A.4b häkelt? Vielen Dank für eine baldige Antwort. Liebe Grüße

11.11.2019 - 13:01

DROPS Design answered:

Liebe Helena, das letzte Doppelstäbchen in A.4b (diese Reihe ist eine Rückreihe und wird links nach rechts gelesen) wird in die erste Puff-Masche am Anfang der vorrigen Reihen gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

11.11.2019 - 13:11

country flag Corinne wrote:

Bonjour, je ne comprend pas comment faire les augmentations pour les manches A5a. Dois je commencer par 3 mailles en l’air? Sont-elles rattachées au devant déjà crocheté? Quel est le début des 4 lignes du diagramme A5a? Merci pour votre éclaircissement.

23.09.2019 - 17:54

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, avant les augmentations des manches, vous avez coupé le fil, vous commencez ensuite A.5a = 3 mailles en l'air, 1 double-bride dans la 1ère maille, crochetez A.2b comme avant et terminez par A.4a = 1 double-bride dans la dernière maille, 2 maille en l'air + 4 mailles en l'air pour tourner. Au rang suivant, crochetez: A.4a (=3 ml, 1 point soufflé, 1 ml), A.2a comme avant et A.5a (= 1 point soufflé dans la 2ème des 3 ml du début du rang précédent, 1 double bride dans la dernière maille en l'air, 2 mailles en l'air (+ les 4 ml du début du rang suivant)). Continuez ensuite ainsi en suivant A.5 et A.4 pour les augmentations de chaque côté. Bon crochet!

24.09.2019 - 10:17

country flag Crejann wrote:

Crejann 27.08.2019 - 13:10: Komt dit mooie patroon ook nog in het Nederlands? Ja hoor nu wel !!! Bedankt voor dit leuke patroon

30.08.2019 - 09:26

country flag Crejann wrote:

Komt dit mooie patroon ook nog in het Nederlands?

27.08.2019 - 13:10

DROPS Design answered:

Dag Crejann,

Het patroon staat er nu in het Nederlands op. Veel haakplezier!

31.08.2019 - 13:09