In Pieces |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð poncho peysa úr DROPS Sky. Stykkið er heklað með pufflykkjum, kimono ermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-40 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.15. ATH: Það er mikilvægt að þráðurinn sé dreginn eins langt og hann þarf að vera (2 cm) þegar pufflykkjan er hekuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermar. Kraginn er heklaður í hring. FRAMSTYKKI: Heklið 84-88-96-104-112-120 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með tvöföldum þræði Sky (þetta er gert til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Heklið síðan með 1 þræði Sky. Heklið síðan þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 4 loftlykkjur, endurtakið A.2a þar til 4 loftlykkjur eru eftir (= 19-20-22-24-26-28 mynstureiningar með 4 loftlykkjum) og endið með A.3a yfir síðustu 4 loftlykkjur. Þegar A.1a til A.3a hefur verið heklað til loka, haldið áfram með A.1b til A.3b. Endurtakið síðan A.1b til A.3b á hæðina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið þar til stykkið mælist ca 42-44-43-45-44-46 cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið, þ.e.a.s. klippið þráðinn frá og byrjið frá röngu þannig: Heklið A.5a (= útaukning fyrir ermi), endurtakið A.2b yfir pufflykkjurnar (= 21-22-24-26-28-30 mynstureiningar) og endið með A.4a (= útaukning fyrir ermi). Þegar A.4a og A.5a hefur verið heklað til loka, klippið frá. Heklið 25-25-25-21-17-17 lausar loftlykkjur fyrir ermi, haldið áfram með A.4b, heklið A.2b eins og áður, heklið A.5b og endið með 25-25-25-21-17-17 lausar loftlykkjur fyrir ermi (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.6 yfir fyrstu loftlykkjuna, heklið A.7 yfir næstu 24-24-24-20-16-16 loftlykkjur (= 6-6-6-5-4-4 mynstureiningar yfir 4 loftlykkjur), heklið A.8 yfir næstu pufflykkju, endurtakið A.2b yfir næstu 27-28-30-32-34-36 pufflykkjur, heklið A.9 yfir næsta loftlykkjuboga, heklið A.10 yfir næstu 24-24-24-20-16-16 loftlykkjur (= 6-6-6-5-4-4 mynstureiningar yfir 4 loftlykkjur) og endið með A.11 yfir síðustu loftlykkju. Útaukningar fyrir ermi er nú lokið = 41-42-44-44-44-46 pufflykkjur í umferð. Heklið síðan þannig: Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkju, A.2b yfir næstu 39-40-42-42-42-44 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Endurtakið síðan A.1b til A.3b á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 61-63-65-66-68-70 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu, skiptið stykkinu upp og axlirnar eru heklaðar til loka hvor fyrir sig. VINSTRI ÖXL: Heklið vinstri öxl þannig (fyrsta umferð = frá röngu): Hekli A.1b yfir fyrstu pufflykkju, endurtakið A.2b yfir næstu 16-16-17-17-17-18 pufflykkjur og endið með A.12 yfir næstu 3 pufflykkjur. Þegar A.12 hefur verið heklað til loka á hæðina er næsta umferð hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkju, heklið A.2b yfir næstu 12-12-13-13-13-14 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 5-5-5-6-6-6 umferðir á allri öxlinni. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm. Klippið frá og festið enda. HÆGRI ÖXL: Heklið hægri öxl þannig (fyrsta umferð = frá réttu): Hoppið yfir miðju 1-2-2-2-2-2 pufflykkjur (= háls), heklið A.13 yfir næstu 3 pufflykkjur, endurtakið A.2b yfir næstu 16-16-17-17-17-18 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkjur. Þegar A.13 hefur verið heklað til loka á hæðina er næsta umferð hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkju, heklið A.2b yfir næstu 12-12-13-13-13-14 pufflykkjur og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 5-5-5-6-6-6 umferðir á allri öxlinni. Stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm. Klippið frá og festið enda. BAKSTYKKI: Heklið eins og framstykki þar til allar útaukningar hafa verið gerðar til loka = 41-42-44-44-44-46 pufflykkjur. Heklið A.1b yfir fyrstu pufflykkjuna, endurtakið A.2b alls 39-40-42-42-42-44 sinnum og endið með A.3b yfir síðustu pufflykkju. Endurtakið síðan A.1b til A.3b á hæðina. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm – stillið af eftir framstykki. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma niður þar til ca 38 cm eru eftir (= klauf). KRAGI: Kraginn er heklaður í hring. Byrjið með 1 keðjulykkju á hægri öxl og heklið 4 loftlykkjur, heklið 1 pufflykkju um hverja af 7-8-8-8-8-8 pufflykkjum á bakstykki eins og áður, heklið 2 pufflykkjur um hverja af næstu 1-1-1-2-2-2 umferðum á framstykki, heklið 1 pufflykkju um hverja af 7-8-8-8-8-8 pufflykkjum á framstykki, heklið 2 pufflykkjur um hverja af síðustu 1-1-1-2-2-2 umferðum á framstykki og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð = 18-20-20-24-24-24 pufflykkjur. Heklið síðan hringinn þannig: A.14 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.15 umferðina hringinn. Haldið áfram þar til heklaðar hafa verið alls 7-7-7-8-8-8 pufflykkjur á hæðina á öllum kraganum. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Johanna wrote:
Truly original, love it !
15.06.2019 - 23:51Cornelia Wenzel wrote:
Würde ich gern nach häkeln
10.06.2019 - 20:17Angelique Pieters-de Kort wrote:
Eindelijk een mooie trui die je kunt haken!
08.06.2019 - 11:11Elsa Alís Domínguez wrote:
My favorite of this collection !! Please include it to expand the crochet catalog !!
06.06.2019 - 09:46