Gloria skrifaði:
Actual,sencillamente precioso. Para cuando el patrón?
11.08.2019 - 20:38
Chantal skrifaði:
I love this sweater. It might be a bit challenging for my level but I am always up for a challenge.
30.07.2019 - 16:06
Retha Knoetze skrifaði:
Thanks that I could download one of ur patterns. Hope I'm going to do justice to ur pattern
15.07.2019 - 19:46
Geneviève skrifaði:
Aimerai crocheter ce modèle tel quel !
14.07.2019 - 14:37
Cornelia Wenzel skrifaði:
Sehr schön, möchte ich gern häkeln
10.06.2019 - 20:11
Lidi Bakker skrifaði:
Mouwen zijn te lang.
10.06.2019 - 16:10
Koszinski skrifaði:
Tres beau se pull
10.06.2019 - 09:29
Karin skrifaði:
Snygg! Roligt med fler virkmönster!
09.06.2019 - 10:37
Astrid skrifaði:
Leuk haakpatroon Super voor de jeugd
08.06.2019 - 23:57
Flávia skrifaði:
Lindo
08.06.2019 - 13:51
Black Thunder#blackthundersweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með röndum úr DROPS Air. Stykkið er heklað í stuðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-8 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. Lykkjuna frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. UMFERÐ MEÐ 2 LITUM: Heklaðu með 3 dokkum í sömu umferð, þannig að þú sleppur við langa þræði á röngunni. Þ.e.a.s. heklaðu með 1 dokku með milligrár/natur í hvorri hlið á peysunni og 1 dokku í litnum natur/svartur mitt í peysu. UMFERÐ MEÐ 3 LITUM: Heklaðu með 5 dokkum í sömu umferð, þannig að þú sleppur við langa þræði á röngunni. Þ.e.a.s. heklaðu með 1 dokku í litnum milligrár/natur í hvorri hlið á peysunni, 1 dokku í litnum milligrár/natur í hvorri hlið á peysunni og 1 dokku í litnum natur/svartur mitt í peysu. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið síðan þráðinn í gegn í lokin, síðan er næsti stuðull heklaður. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri). Fækkið um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 stuðla til viðbótar alveg eins. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (= 2 stuðlar færri). ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum neðan frá og upp og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Heklið 67-71-75-83-91-99 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með litnum milligrár. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftykkju frá heklunálinni – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 66-70-74-82-90-98 fastalykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-12-11-11-10-10 cm á að hekla með 2 litum – sjá MYNSTUR og LITASKIPTI, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 23-25-27-31-35-39 stuðlum með litnum milligrár, heklið A.1 yfir næstu 20 stuðla með litnum natur/milligrár og heklið 1 stuðul í hvern af þeim 23-25-27-31-35-39 stuðlum sem eftir eru með litnum milligrár. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina er haldið áfram með mynstur eins og í síðustu umferð, með úrtökum og útaukningum eins og áður (þ.e.a.s. það er fækkað um 2 lykkjur og aukið út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-11-11-12-12 umferðir með litnum natur. Haldið áfram með úrtöku og útaukningu eins og áður, en nú er byrjað á nýju lit, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 23-25-27-31-35-39 stuðla (með litnum milligrár/natur), heklið A.2 yfir næstu 20 stuðla með litnum natur/svartu og heklið eins og áður yfir 23-25-27-31-35-39 stuðla sem eftir eru (með litnum natur/milligrár). Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram eins og í síðustu umferð, með úrtöku og útaukningu eins og áður (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur og aukið út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til ekki fleiri lykkjur eru til með natur úr í hvorri hlið. Stykkið mælist ca 44-45-46-49-51-53 cm. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul með litnum svartur til loka. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm heklið ekki lengur yfir miðju 24-24-24-24-26-26 stuðla (= hálsmál) = 21-23-25-29-32-36 stuðlar á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á öxl jafnframt því sem fækkað er um 1 stuðul í fyrstu umferð, við hálsmál – sjá ÚRTAKA = 20-22-24-28-31-35 stuðlar. Heklið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá affellingarkanti, prjónamerki merkir hvar á að sauma ermina í. Heklið hina öxlina á sama hátt og setjið 1 prjónamerki í hlið. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm er ekki lengur heklað yfir miðju 28-32-35-39 stuðla á hvorri öxl. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul á öxl jafnframt því sem fækkað er um 2 stuðla við hálsmál – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið um 2 stuðla í hverri umferð alls 2 sinnum = 20-22-24-28-31-35 stuðlar. Heklið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá affellingarkanti, prjónamerkið merkir hvar ermin er saumuð í. Heklið hina öxlina á sama hátt og setjið 1 prjónamerki í hlið. ERMI: Heklið 37-37-39-41-41-43 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með litnum milligrár, snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 36-36-38-40-40-42 fastalykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm byrjar mynstur og þegar stykkið mælist 9 cm byrjar útaukning í hvorri hlið, þ.e.a.s. þetta er gert samtímis þannig: ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 12-7½-7-5½-5-4½ cm millibili alls 4-6-6-7-8-8 sinnum = 44-48-50-54-56-58 stuðlar. MYNSTUR: Þegar stykkið mælist 6-6-6-5-5-5 cm er heklað með 2 litum – munið eftir MYNSTUR og LITASKIPTI, þ.e.a.s næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 8-8-9-10-10-11 stuðlum með litnum milligrár, heklið A.1 yfir næstu 20 stuðla með litnum natur/milligrár og heklið 1 stuðul í hvern af þeim 8-8-9-10-10-11 stuðlum sem eftir eru með litnum milligrár. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram eins og í síðustu umferð, með úrtöku og útaukningu eins og áður (þ.e.a.s fækkað er um 2 lykkjur og aukið er út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 10-10-11-11-12-12 umferðir með litnum natur. Haldið áfram með úrtöku og útaukningu eins og áður, en nú er byrjað á nýjum lit, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.2 yfir miðju 20 stuðla með litnum natur/svatur, heklið eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru (með litnum natur/milligrár). Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina heldur mynstrið áfram eins og í síðustu umferð, með úrtöku og útaukningu eins og áður (þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur og aukið út um 2 lykkjur á milli hverra litaskipta). Haldið svona áfram þar til ekki fleiri lykkjur eru með litnum natur í hvorri hlið. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul með litnum svartur til loka. Heklið áfram þar til stykkið mælist 50-50-49-47-46-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt – saumið í ystu lykkjubogana. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið með 1 keðjulykkju við aðra öxlina og heklið upp frá réttu ca 72 til 90 stuðla í kringum hálsmál með litnum svartur. Heklið 1 umferð með stuðlum og jafnið lykkjufjöldann til 72-76-78-82-86-90 stuðlar. Heklið 1 umferð til viðbótar með stuðlum. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blackthundersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.